Vísir - 29.08.1961, Blaðsíða 16
VISIR
Þriðjudagur 29. ágúst.
Götur skemmast
Akureyri íimorgun.
Á LAUGARDAGINN gerði
hér meiri rigningu en elztu Ak-
ureyringar telja sig muna.
Afleiðingin af þessu feikilega
úrfelli, kom fljótt í ljós, því
götur hér stórspilltust og þó
hvergi meiri skemmdir en á
Oddeyrinni.
ornabörn á úræfum
— Það var undarlegt
að sjá þetta litla tjald þarna
uppi í regmöræfum. Það
var einnig undarlegt, að
sjá Iítinn sendiferðabíl við
tjaldið. — Hverjum hafði
dottið í hug að fara á slík-
um farkosti upp um torfær-
ustu fjallaleiðir? En hverj-
um skyldi detta í hug að
ganga með 6 mánaða barn
á jökul?
En þá fyrst brá okkur þó í
brún, þegar við komum að
tjaldinu og sá fyrsti sem kom
út til að taka á móti okkur var
Nýi Tónlistarskólinn, bíóið og konsertsalurinn.
(Ljósm. Vísis I.M.)
TÚNLISTARFÉLAGID ÚR ÞRÚÐ-
VANGI í NÝJA STÚRBYGGINGU.
NÝLEGA náði blaðamaður
frá Vísi sem snöggvast tali af
Ragnari Jónssyni formanni
Tónlistarfélagsins, og spurði
hann hvort blaðafregnir um
sölu Þrúðvangs væru réttar.
Jú, það er rétt. Tónlistarfélag
ið er nú að byggja stórhýsi við
Skipholt, beint fyrir neðan Sjó-
mannaskóla. Þar verður skóli
Tónlistarfélagsins, svo og kvik-
myndasalur, sem jafnframt
verður konsertsalur og rúma
mun 600 manns í sæti. Það pláss
sem skólinn f ær í þessu nýja
húsi er meir en heLmingi
stærri en hann hafði niðri á
Laufásvegi, — í Þrúðvangi. Allt
er húsið gert eftir nýjustu
kröfum hvað viðvíkur tæknileg-
um atriðum í konsertsal og í
tónlistarskóla.
Við hefðum gjarnan viljað
eiga Þrúðvang áfi'am, sagði
Ragnar. Eign svona í hjartá
bæjarins hlýtur að vaxa gífur-
lega í verði á næstu árum. Við
höfðum ekki efni á að halda
húsinu samhliða hinni fjár-
Höfuðdagurinn
er í dag. Það er gömul þjóðtrú
að haustveðrið muni verða eins
og á höfuðdginn.
fi’eku stórbyggingu okkar.
Við í Tónlistarfélaginu, á-
kváðu því að leyfa lögfræð-
ingafirma hér í bænum að at-
huga um sölu Þrúðvangs. Nú
hefur þetta tekizt. Fram-
kvæmdabanki fslands hefur
keypt eignina, og tekur við
henni er við flytjum í nýja
húsið. Við vonum að það verði
Gamla fólkið
á sýningu.
VISTFÓLKIÐ á Grund, um 80
manns, fór í fyrradag á Reykja
víkurkynninguna, í boði fram-
kvæmdanefndar hennar.
Formaður nefndarinnar, Björn
Ólafsson, f.yrrum ráðherra, tók
á móti gestunum og flutti við
það tækifæri ávarp. Síðan
fylgdu þeir Ágúst Hafberg og
Óskar Hallgrímsson vistfólk-
inu um hina mörgu sali kynn-
ingarinnar og útskýrðu og
lýstu þvi sem fyrir augun bar.
Forstöðumaður Gruijidar hef
ur beðið blaðið að færa fram-
kvæmdanefnd sýningarinnar
og starfsfólki hennar, innileg-
ustu þakkir fyrir boðið og göð-
ar mótttökur.
nú í vetur, m. a. vegna þess,
sagði Ragnar, að við höfum
skuldbundið okkur til að rífa
hið gamla braggabíó félagsins,
Tripolibíó í desember næstk.
berlappaður strákur um eins
og hálfs árs gamall.
Þannig lýsir þátttakandi í
einni fjallaferð Guðmundar
Jónassonar aðkomunni að tjaldi
skozkra hjóna sem voru á ferð
um Kjalveg. Þau höfðu tjaldað
norðarlega á Kjalvegi um 10
km. fyrir norðan Hveravelli.
♦
En öll sagan er ekki sögð enn.
Ferðaflokkur Guðmundar Jón-
assonar nam staðar við tjldið.
Er nokkuð að? var spurt. Jú,
bíllinn var bilaður og þau kom-
ust ekki lengra áfram skozku
hjónin. — Hvað eruð þið mörg?
— Það erum við og tvö börn
okkar, — annað er IV2 árs, hitt
er 6 mánaða.
Ferðamennirnir líta inn í
tjaldið. Það liggur sex mánaða
reifabarn í vöggu. Hvað hefðuð
þið gert, ef við hefðum ekki
verið hér á ferð? — Það vitum
við ekki. Bíllinn er mjög illa
bilaður og þið eru fjarri alfara-
leiðum. Vitið þið ekki, að þetta
er eins hættulegt og að vera úti
á miðri Sahara-eyðimörkinni?
Já þið voruð heppin að við
komum hérna.
♦
Nú hófst Guðmundur Jónas-
son handa um að hjálpa hinum
skozku hjónum til Hveravalla.
Skotinn settist við stýrið á bil-
uðum bíl sínum. Það varð að
taka bremsurnar úr sambandi
og þetta varð glæfraferð yfir
óteljandi læki og ár. Allt tókst
þetta þó á endanum. Síðan tók
það mikinn hluta dagsins að
gera við bílinn.
♦
— Hvar hafið þið verið á ferð
með börnin? eru skozku hjónin
spurð. — Norður á Tjörnesi og
norður á Hornströndum.
— Og hvert var ferðinni
heitið?
— Við ætluðum að Hvítár-
vatni. Við höfum með okkur
svolítinn kajak, sem hægt er að
blása og spenna út. Við ætluð-
um að róa á honum yfir Hvít-
ái-vatn, fara í Skriðufell og
ganga upp á Langjökull.
♦
— Ætluðuð þið að hafa börn-
in með í þessa jöklaferð?
— Já, auðvitað við bindum
þau bara á bakið og þá getum
við róið með þau á útblásnum
bát yfir Hvítárvatn. Svo vorum
við að hugsa um að ganga með
börnin á Heklu seinna.
Ferðafólkinu sem er með
Guðmundi Jónassyni rennur
kalt vatn milli skinns og hör-
unds, þegar það heyrir þessar
ferðaáætlanir með börnin.
— Þið hafið þó ekki ætlað að
vaða með börnin yfir Þjórsá?
— Nei, það ætluðum við nú
ekki, en það gæti verið ágæt
hugmynd.
Einn bátur í
Faxaflóa.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun.
AÐEINS einn bátur er nú á
síldveiðum í Faxaflóa. Er það
Svanur frá Akranesi, sem hef-
ir verið með reknet. Báturinn
hefir lagt net sín fjórum sinn-
um en aldrei fengið meira en
1 tunnu af síld í lögn.
Allir síldveiðibátarnir, sem
voru fyrir norðan og austan í
sumar liggja nú bundnir og
munu ekki halda út að leita
síldar meðan ekki horfir væn-
legar með veiði hér í Faxaflóa.
Afli dragnótabáta hefir
glæðst síðustu daga og fá þeir
nú allmikið af þorski og er þar
af leiðandi mikið annríki við
verkun aflans.
Fengu 218
kr. fyrir
SUMARSÍLDVEIÐUNUM er
nú að ljúka. Nokkur skip eru
þó enn að veiðum, aðallega
bátar frá Austfjörðum. í vik-
unni sem leið varð aflinn að-
eins 35.725 tn, og mál og var
heildaraflinn í vikulokin 1.525.
166 mál og tunnur eða helm-
ingi meiri en í fyrra.
Síldarbræðslurnar hafa tek-
ið á móti 1.131.802 málum.
Saltað hefir verið í 359.466
tunnur og frystar hafa verið
23.786 tunnur. Auk þessa voru
seld 10 þúsund mál af bræðslu
síld í norsk skip.
Lauslega áætlað má gera ráð
fyrir að útflutningsverðmæti
síldarinnar í heild sé um 500
milljónir króna. Þegar á heild-
ina er litið má segja að þetta
hafi verið happasumar fyrir þs
sem freistuðu gæfunnar á síld
veiðum eða í síldarvinnu fyrii
norðan og austan.
Verðmæti síldarinnar upp úi
sjó er um 218 milljónir krón;
og er því hlutur sjómanna næi
120 millj. kr. Söltunarlaun oí
vinna á plönum er vai'la undir
50 millj. kr. og er því ekki fjar
stæða að segja að síldarpening-
ar hafi drýgt fjölskyldutekjur
Framli. á 5. siðu.
(UiLh!
Norð-austan
og norðan
kaldi. Dálítil
rigning.