Vísir - 29.08.1961, Page 3
VÍSIR
Þriðjudagur 29. ágúst 1961
s
■
m s
Flugdagur
í fyrradag hélt Flugmálafélag íslands hótíðlegt 25 ára
afmæli sitt með því að lialda Flugdag. Nokkur ór eru síðan
slíkur dagur hcfur verið haldinn, og sýningin nú flestum
kærkomin, því að sannleikurinn er sá, að slíkan dag mætti
halda oftar. í gær var sagt frá dcginum í frétt, en nú Iátum
við myndirnar tala.
Efst til hægri: Allur íslenzki „flugherinn" á lofti í cinu.
„Rón“ strýkst við höfuð áhorfcnda, og sýnir hvernig tog-
ari er staðsettur.
Fyrir neðan: Sex orrustuþotur varnarliðsins, af gerðinni
F-86 koma í fylkingu yfir völlinn. Ein þeirra kom síðar í
nokkurra metra hæð á 1000 km. hraða.
Fyrir ofan: Þyrilvængja fró varnarliðinu
var meðal þeirra véla sem komu við sögu ó
Flugdeginum. Hún lék ýmsar listir, flaug
lárétt og lóðrétt, „bakkaði“ og gerði ýmislegt
sem mcnn eru óvanir að sjó er um venjulegar
vélar er að ræða. Hún sýndi einnig bjÖrgun,
og hér sést maðurinn dreginn upp í vélina í
björgunarbelti.
Mjóa myndin er af einni þremur svif-
flugum sem léku listir sínar. Hún er þarna í
togi, en var sleppt lausri skÖmmu síðar. Svif-
flugið vakti almenna hrifningu áhorfenda, en
mest lof hlaut þó Þórhallur Filippusson fyrir
listflug sitt.
Loks sjáum við svo ó myndinni til vinstri.
er áhorfcndur virða fyrir sér eina furðusmíð
nútímans, orrustuþotu, en í bakgrunninum
sjáum við þyrilvængjuna um leið og hún
rennir sér að áhorfendum.