Vísir - 31.08.1961, Qupperneq 1
VISIR
Fimintudíjffur 31. ágúst 1961. — 198: tlfl.
f lausu lofti.
■jr Það hefur nú loksins
tekizt að bjarga þeim síðustu
af 80 ferðamönnum, sem
héngu fastir í línubrautinni
við Miðdegistind í Ölpunum.
Ferðafólkið hafði orðið að
liafast við í loftinu, eftir að
orrustuflugvél flaug á lín-
una, og sleit hana. Þá þegar
höfðu þrír klefar línubraut-
arinnar hrapaði niður og sex
menn beðið bana. Hinir vagn-
arnir hengu eins og fyrir
kraftaverk enn uppi. Vagn-
arnir voru sumsstaðar í mörg
hundruð metra hæð yfir
jörð.
■fc Þegar slysið varð munu
um 90 manns hafa verið í
línubrautarvögnunum. Gerð-
ist þetta rétt eftir hádegi
einmitt þegar aðsóknin var
mest að línubrautinni. Klef-
Framh á bls 10.
Tveir vagnar Iínubrautarinnar hanga fastir í mörg hundruð metra hæð við Miðdegistind
Ölpunum. Björgunarsveitum tókst með óvenjulegum dugnaði að bjarga öllum.
Rússar hefja kjarnorkukapphlaup.
Ógnun við mannkynið
segir Kennedy.
Sovétstjórnin tilkynnti
seint í gærkvöldi að hún
hefði ákveðið að hefja til-
raunir með kjarnorkuvopn
á ný. Tilkynning þessi hef-
ur vakið furðu og skelíingu
um allan heim og hefur
Kennedy Bandarikjaforseti
gefið út sérstaka tilkynn-
ingu vegna þessa atburðar,
þar sem hann harmar þessa
ákvörðun Rússa og lýsir
því yfir að hún sé ógnun
við allt mannkynið.
í tilkynningu Rússa um
málið segir, að sovézkir vís-
indamenn geti nú framleitt
kjarnorkusprengjur sem jafn-
gildi að sprengimagni eitt
hundrað milljón tonnum af
TNT sprengiefni. Þá er á það
bent, að Rússar eigi gervitungl
sem geri þeim mögulegt að
kasta slíkum vítissprengjum
niður hvar sem er á jarðar-
kringlunni.
Ástæðan sem Rússar bera
fyrir sig, er geri þeim nauðsyn-
legt að hefja kjarnorkutilraunir
að nýju, segja þeir að sé sú að
| Atlantshafsbandalagið hafi á
prjónunum áform um kjarn-
orkuárás á Sovétríkin í sam-
bandi við Berlínardeiluna.
Það var Tsarapkin fulltrúi
(Framhald á 10. síðu).
Krumminn var tam
inn hér í bænum.
ALLMIKIL blaðaskrif hafa
orðið núna varðandi hrafn
alagning.
— segir formaður Kaup-
mannasamtakanna.
frjáls
Síðan gengið var fellt í
febrúar 1960 hafa Kaup-
mannasamtök íslands bar-
izt fyrir því að álagningar-
reglunum yrði breytt. Við
böfum verið svo til á lát-
lausum fundum með verð-
lagsyfirvöldunum, við-
skiptamálaráðherra og
einstökum öðrum ráðherr-
um um málið og mikil
bréfaskipti hafa og farið
fram í sambandi við þá.
Nú er nokkurn veginn séð
fyrir endann á þessu. —
Verðlagsyfii-völdin hafa
fallizt á mikilvægar breyt-
ingar á álagningunni og
ríkisstjórnm mun ætla að
gera ráðstafanir í sam-
bandi við þær, svo sem að
lækka tolla.
★
Þannig komst Sigurður Magn
ússon, formaður Kaupmanna-
samtaka Íslands að orði í upp-
hafi að stuttu viðtali, sem frétta
maður Vísis átti við hann í
gær.
— Það má segja að smásölu-
verzlunin hafi verið rekin með
beinu tapi, síðan gengið var
fellt í febrúar 1960, sagð Sig-
urður. Þá voru laun verzlunar-
innar skert um 25% á sama
tíma, sem allar aðrar stéttir
héldu launum sínum óskertum.
Þegar verðlagsyfirvöldin tóku
sínar ákvarðanir um álagningu
í smásölu eftir gengisfellinguna
gengu þau út frá þvi að verzl-
unarhagnaður myndi aukast
3VO í krónutölu, að kaupsýslu-
stéttin myndi fá jafnmargar
krónur í sinn hlut, eftir gengis-
fellinguna sem fyrir hana. Við
mótmæltum þessu kröftuglega
og bentum á þá einföldu stað-
reynd, að enda þótt um væri að
ræða hækkun vöruverðs þá
Framh. á bls 10
Sigurður Magnússon.
einn, sem Tíminn lýsir eftir
fréttaritara sínum sem ógnvaldi
Mosfellssveitar. En í morgun
skýrir Mbl. frá því að krummi
hafi verið skotinn á mánudag-
inn. í blaðagreinunum um
krumma, kemur ekki fram,
hvernig á því standi að hann
hafi leitað til mannabyggða og
gerzt svo hændur og seinna
uppivöðslusamur við sveitunga
sína í Mosfellssveit, að hann
var skotinn.
í morgun hitti blaðamaður
frá Vísi Sigurð Ólason hrl.
Hann kvaðst hafa lesið þessi
blaðaskrif, og það færi ekki-
milli mála að hrafninn hafi
hann sjálfur tamið, að mestu
heima hjá sér að Lönguhlíð 11
hér í bænum. Það voru strákar
sem fengu að vera í kofanum
mínum upp við Hafravatn nú
í vor, sem klifruðu upp í fjall
og rændu þessum hrafni þá sem
unga í hreiðri . Ég varð svo að
taka við honum, og ég tamdi
hann heima hjá mér. Sagði Sig-
urður ýmsar skemmtilegar sög-
ur af krumma. En að því kom
að hann varð svo frekur og á-
gengur við fólk að við urðum
að vísa honum úr vistinni. Þá
fór eg með hann upp að Hafra-
Framh. á bls. 10.
I