Vísir - 31.08.1961, Blaðsíða 10
10
VtSIR
Fimmtudagur 31. ágúst 1961
Jón Þorláksson við Ægisgarð í morgun.
Leiðréttmgar —
Frh. af 16. s.
28%. Kex og þurrkaðir ávextir
,úr 25% í 36%. Þá er felldur
niður einn álagningarflokkur
með 25% álagningu, þ. e. púð-
ursykur, kandís og flórsykur
og verður nú selt með 21% á-
lagi. Álagning á þurrkaða á-
vexti og kex hækkar hins veg-
ar í 28%. Álagning á smjörlíki
hækkar úr 8—9% í 15%. Við
borð lá, sagði Jónas Haralz, að
kaupmenn hættu að selja smjör
líki vegna þess að álagningin
var ekki fyrir dreifingarkostn-
aðinum í mörgum tilfellum.
Klössun lokið og
byrjað á öðru skipi
í morgun fór togari Bæjar-
útgerðarinnar, Jón Þorláksson,
í reynsluför, en nú er lokið
12 ára klössun skipsins á
skrokki þess og dieselvél. Er það
í fyrsta skipti sem vélvirkjar
hér á landi takast svo mikið
verk á hendur.
Jón Þorláksson lá vestur við
Ægisgarð í morgun, nýmálaður
í ljósgráum lit. Strax mátti sjá,
að nokkur útlitsbreyting hafði
orðið á togaranum. Hún liggur í
því, að afturmastur hefur verið
tekið í burtu. Lítið mastur sett
í staðinn framan við hinn
straumlínulagaða reykháf skips-
ins.
Á bryggjunni hitti blaðamað-
ur frá Vísi skipstjórann, Sigurð
I fausu lofti —
Framh. af 1 síðu.
arnir köstuðust til og sveifl-
uðust á örmjóum streng.
Höfðu allir strengir nema
einn slitnað, það var sú líf-
Hna sem allt hékk á.
Strax og fréttist bár-
ust af slysi þessu fóru fjöl-
mennar björgunarsveitir af
stað upp í fjöllin og unnu
þær björgunarafrek, sem
lengi mun verða minnzt,
uppi í 4000 metra hæð. Þótt
björgunarsveitirnar ynnu
baki brotnu voru aðstæður
allar svo erfiðar, að ekki varð
hjá því komizt að fjöldi fólks
varð að hafast við í línu-
vögnunum yfir nótt og var
það ömurleg dvöl, hangandi
þannig í lausu lofti og í
miklu næturfrosti, sem fæst-
ir voru undirbúnir að mæta.
Víða var geysilegum
erfiðleikum bundið að
bjarga fólkinu og eina leiðin
að björgunarmennirnir
gengju eins og línudansarar
út eftir þeirri cinu línu sem
hélt öllu uppi. Síðan voru
farþegarnir látnir svífa með
kaðli til jarðar. Síðasta far-
þeganum var bjargað
skömmu eftir hádegi í gær
og hafði bann þá verið
strandaður í meir en sólar-
liring.
iKristjánsson yfirvélstjóra, dig-
urhans Þorbjörnsson, yfirvél-
stjóra B.Ú.R., og verkstjórana
Jóhann Þorkelsson og Hjört
Kristjánsson, frá Vélsm. Héðni.
Einnig var þar kominn Sveinn
Guðmundsson forstjóri Héðins,
er fór með í reynzluförina.
Af samtölum við þessa menn
kom í ljós, að af hendi smiðj-
anna, sem verkið tóku að sér,
hefði verkáætlun staðizt — 3—
4 mánuðir. En það sem stóð á,
var gírinn í aðalvélina. Hann
var sendur út til viðgerðar og
endurnýjunar. Smiðjurnar og
aðrir verktakar hófu vinnu við
togarann 17. des. síðastl. 4. jan-
úar var gírinn sendur út, og
hann kom ekki aftur til lands-
ins fyrr en 27. júli síðastliðinn.
Það var gírinn, sem valdið hef-
ur þeim töfum, sem orðið hafa,
og seinkað verkinu um - 3—4
mánuði.
Sveinn Guðmimdsson gat
þess, að ákveðið hafi verið að
samskonar flokkunarviðgerð, 12
ára, skuli nú fara fram á öðrum
Bæjarútgerðartogara, Hallveigu j
Fróðadóttur, og verður byrjað
á því verki á morgun eða hinn.
I Skaut Sveinn því inn í, að gír
[ aðalvélarinnar myndi EKKI
verða sendur út til endurnýj-
! unar heldur kæmi það í hlut
Héðins-manna að vinna það
verk. Ásamt Héðni unnu j
verkið Stálsmiðjan, Slipp-,
1 urinn og Bræðurnir Ormsson.'
Gert var ráð fyrir að reynslu-
förin tæki allt að 4 klst. og
kvaðst Sigurður skipstjóri vona
að hann gæti farið á veiðar á
morgun. I
Frjáls álagning.
Þá eru afnumdar álagningar-
reglur á allmörgum vöruflokk-
um, fatnaði, skóm, matvöru,
hreinlætistækjum o. fl. (sjá 6
síðu) og gildir það jafnt um
innflutta vöru sem þá, sem
framleidd er hérlendis. Eftir
sem áður mun þó verðlagsstjóri
fylgjast með verðlagi þessarar
vöru, Er hér um að ræða 2%
heildarinnflutningsins.
Þá verður tekin upp sú ný-
breytni að verðlagsstjóri getur
heimilað innflytjendum að
halda eftir hluta af afslætti
þeim, sem þeir fá erlendis og er
það því nú í hag innflytjandans
að kaupa sem ódýrast, en svo
var ekki áður.
Miússuf —
Framh. at 1 síðu.
Rússa á Genfar-ráðstefnunni
um bann við kjarnorkutilraun-
um sem tilkynnti þessa ákvörð-
un Rússa. Næstur á eftir hon-
um talaði Ormsby Gore full-
trúi Breta. Hann harmaði að
Rússar skyldu nú ætla að hefja
hinar hættulegu kjarnorkutil-
raunir. Óhjákvæmilegt væri að
nú myndi hefjast kapphlaup
um kjarnorkutilraunir. —
Ormsby Gore sagði að Rússar
hefðu nú látið í 3 ár sem þeir
vildu semja, en nú væri það í
ljós komið sem marga hefði
grunað að þetta hefði allt verið
til að sýnast.
Krummi -
Framh at 1 síðu
vatni og nestaði hann vel af fisk
urgangi. Síðar sá ég hann, er eg
gaf honum fisk, að hann var
kominn í félag við tvo jafnaldra
sína. Hélt ég að hann myndi
semja sig að þeirra háttum, en
svo varð ekki. Ég frétti síðar
að hann var kominn niður að
Úlfarsfelli, þar sem hann var
í góðu yfirlæti. En hann virðist
ekki hafa tollað þar heldur, og
það hefur orðið hans bani.
Álagning —
Framh. af 1. siðu.
kæmi ekki til neinnar veltu-
aukningar, vegna þess að kaup-
gjald og þá um leið.kaupmátt-
ur stæði í stað. Þessum ábend-
ingum var ekki sinnt. En nú að
18 mánuðum liðnum hafa yfir-
völdin viðurkennt að ákvarð-
anir þeirra hafi verið óraun-
hæfar.
Auk þess sem veltuaukning-
in varð engin þá hefur ýmiss
konar rekstrarkostnaður auk-
izt, raunar allur annar reksfrar-
kostnaður, en sá sem verður
vegna mannahalds, t. d. ljós,
hiti, sími o. s. frv.
— Hvað viltu segja um af-
stöðu ykkar til þessara breyt-
inga?
— Auðvitað er þetta spor í
rétta átt, raunar er um stefnu-
breytingu að ræða og þessa
stefnu verður áð halda áfram
að taka. Markmið kaupmanna-
samtakanna er frjáls verzlun,
álagningin verði frjáls. Það er
neytendanum í hag ekki síður
en okkur. Eins og allt er nú í
pottinn búið getur það verið
hagur kaupmanna að gera inn-
kaup sem verða neytandanum
óhagstæð. Það er í mörgum til-
fellum hagstæðara fyrir okkur
að kaupa dýrari vöru, en þá,
sem við mundum kaupa ef við
verzluðum frjálst, vegna þessað
þá fáum við fleiri álaigningar-
krónur Álagningin er jú mið-
uð við innkaupsverðið. Þess
vegna refsa verðlagsákvæðin
þeirn. sem gera hagstæðust inn-
kaupin. Hámarksálagning er
sama og lágmarksálagning í
reyndinni. Svo er á það að líta,
að verðlagsákvæðin eru erfiður
Þrándur í Götu allrar nýsköp-
unar í verzluninni, bættrar
þjónustu o. s. frv.
— Geturðu gefið mér saman-
burð á álagningu hér og t. d. á
hinum Norðurlöndunum?
— 1 Danmörku er álagningin
frjáls. í Svíþjóð eru verðlags-
ákvæði, en þar er álagningin
allt að 70% hærri í smásölu
heldur en hér. Ég þekki þetta
ekki nákvæmlega í Noregi, en
kerfið er þar öðruvísi og flókn-
ara, en hún er alla vega mun
hærri en hér.
— Að lokum langar mig til
að spyrja þig um ástæðurnar
fyrir versnandi afkomu ykkar?
— Þar er fyrst og fremst
skilningsleysi stjórnarvaldanna
um að kenna. Laun verzlunar-
innar hafa stöðugt verið að
lækka á undanförnum árum
vegna óraunhæfra verðlagsá-
kvæða, en þó keyrði um þver-
bák eftir gengisfellinguna 1960.
— Við erum ekki hafðir með í
ráðum, þegar laun okkar «ru
ákveðin. Við erum raunar þeir
einu aðilar þessa þjóðfélags,
sem ekki fá að semja um okkar
kjör eða taka beinan þátt í því
að ákvárða þau. Bændur hafa
sína áð stöðu í 6-manna nefnd-
inrii svokölluðu, verkamenn og
aðrir óbreyttir launþegar við
saihningaborðið með vinnuveit-
endum við éigum engan fullt.
1 í þéim nefndum, sem skammta
okkur jaunin. Þetta verður að
breytast og við munum keppa
j að þvi að fá fulltrúa i þessum
nefndum.
Fiskverð
hækkar.
I dag kemur til framkvæmda
verðhækkun á fiski. Nýr þorsk-
. ur, slægður, kostar nú 2,80. Nýr
þorskur hausaður og slægður
kostar nú kr. 3,50. Ný ýsa slægð
en með haus kostar nú kr. 4.00.
en slægð og hausskorin kr. 5.00.
Flakaður borskur kostar nú
kr. 7.50. Ýsuflök kosta kr. 9.50.
Fiskfars kostar nú kr. 10.50.
Fyrsta útsalan
í 40 ár.
i
Ein elzta verzlunin við Aust-
urstræti, L. H. Múller, en fyrsti
I eigandi og stofnandi var L. H.
; Muller, norskur kaupmaður,
opnaði í morgun mikla útsölu
á ýmis konar fatnaðarvöru fyr-
ir di-engi og fullorðna menn.
Það er markverðast í sam-
bandi við þessa útsölu verzlun-
arinnar, að þetta er í fyrsta
skipti í 40 ár í sögu hennar, að
þar er haldin útsala. Eigandi
verzlunarinnar er Leifur Múll-
er, sem rekur hana af miklum
dugnaði.
Akureyri var
kjötlaus.
Akureyri, limmtudag. —
í MORGUN hófst hér á Ak-
ureyri sumarslátrun dilka, en
bærinn var kjötlaus orðinn. Var
í morgun slátrað 130 fjár úr
Arnarneshreppi en það átti að
nægja til að fylla kjötbúðir
KEA í bænum, 9 talsips, en
slátrunin fer fram hjá KEA.
Fossvogur
Frh. af 9. s.
mörgum tillagnanna. Eftir að
nefndin hefur athugað tillög-
urnar og rætt þær almennt, tel-
ur hún, að þetta fyrirkomulag
geti vel hentað í Reykjavík,
enda sé þá tekið sérstakt tillit
til loftslags og jarðvegs.
í heild hafa úrlausnirnar
gefið athyglisvert og alhliða
yfirlit um þau atriði, sem máli
skipta um nýtingu samkeppn-
issyæðisins, og allmargar verða
að teljast góðar. Þó verður að
segja það, að þær úrlausnir,
sem hafa í sér fólgnar snjall-
astar hugmyndir, hvað snertir
skipulag og byggingarlist, eru
jafnframt gallaðar að ýmsu
leyti. Þegar metnir hafa verið
kostir og gallar hverrar úr-
lausnar um sig, virðist engin
ein úrlausn bera af. Nefndinni
virðist því hæpið, að nokkur
einstök af tillögunum verði
lögð til grundvallar að bygg-
ingu svæðisins óbreytt.