Vísir - 23.09.1961, Síða 3
Ingólfsförin verður þeim
ógleymanleg.
FULLVÍST má telja, að för
hins fjölmenna hóps fslend-
inga til Norcgs, Ingólfsförin,
muni verða þátttakendum ó
gleymanleg, því svo vel hef-
ur förin verið undirbúin, og
móttökur Norðmanna ein-
lægar. Blaðinu hefur bor-
izt fjöldi ljósmynda frá ljós
myndara sínum Mats Wibe
Lund og í dag er Myndsjáin
hclguð sjálfri athöfn-
inni, er Bjarni Benedikts-
son, forsætisráðherra, af-
henti Norðmönnum að gjöf
frá íslendingum styttu Ing-
ólfs Arnarsonar. Meðal
heimamanna við þá athöfn
var Jcns Haugiand; dóms-
málaráðherra Norðmanna,
og er hann á efstu mynd-
inni ásamt Biarna Bencdikts
syni en ráðherrunum voru
færðir stórir og fagrir blóm-
vendir. Skólakrakkarnir í
Hrífudal höfðu við lok at-
hafnarinnar sungið þjóð-
söng íslendinga, Sjást þau
að neðan til vinstri haldandi
á íslenzkum flöggum og hin
hátíðlegustu. Þá er að neð-
an til hægri mynd af Bjarna
Bcncdiktssyni forsætisráð-
herra í ræðustólnum, cn
hann flutti aðalræðu þessar-
ar hátíðar og afhcnti gjöfina.