Vísir - 23.09.1961, Blaðsíða 4
4
VÍSIR
Laugardagur 23. sept. 1961
i>
Lítiö inn að Laugavegi 26
Húsgögn frá Húsbönaöi
OPNUM I DAG
Þernan á Heklu sýnir
verk í Salnum.
„Sumar“ trémynd j
NÚ hefir afmælissýning Mynd
listarskólans í Reykjavík stað-
ið yfir eina viku í Ásmundar-
sal við Freyjugötu, aðsókn hef-
ir verið mjög góð yfirleitt,
myndir seldar, þ.á.m. nokkrar
af höggmyndunum, enda er
verð þeirra ótrúlega lágt.
Verkum er mjög vel fyrir
komið á sýningunni, rúmlega
70 myndir á 2 hæðum, mál-
verk, teikningar, höggmyndir,
tré og járnmyndir auk hinna
sérkennilegu verka eftir gest
sýningarinnar, Diter Rot. Eins
er þarna tréskurðarmynd í
kúbískum stíl eftir Fríði
Bjarnadóttur, sem eitt slnn var
nemandi Ásmundar í skólan-
um, en Fríður er nú þerna á
strandferðaskipinu Heklu, sem
undanfarna daga hefir verið í
Ingólfsferðinni til Noregs.
Gífurleg aösókn er
enn að Árbæjarsafni
Húsbúnaður mun tryggja gæðin
munið húsgögnin frá Húsbúnaði
ÁRBÆJARSAFNI var lokað
um sl. helgi. Aðsókn var þá svo
mikil, enda veður gott, að á-
stæða þykir til að hafa safnið
opið um helgar eitthvað fram-
eftir hausti, ef veður spillast
ekki. Aðstæður til heimsókna í
safnið eru líka mun betri en
áður, þar sem tekin hefur ver-
ið upp kaffisala í veitingastof-
um í Dillonshúsi, þó að endur
byggingu hússins sé ekki að
fullu lokið.
Eins og kunnugt er, bjó Jón-
as Hallgrímsson einn vetur á
loftinu í Dillonshúsi. Það her-
bergi og loftið framan við verð
ur búið húsgögnum og munum
skálda sem safnið á nú Hegar
eða því kunna að berast. Veit-
ingastofurnar niðri .eru prýdd-
ar samtíma myndum (1836)
frá Gaimards-leiðangrinum og
myndum af íslenzkum þjóð-
búningum eftir útlenda mál-
ara frá ýmsum tímum, mynda-
Ath. frá
VW-wnboðinu.
SIGFÚS Bjarnason. forstjóri
VW-umboðsins, hefur beðið
blaðið að geta þess að verð á
VW De Lux gerð í Þýzkalandi
sé 3854 mörk. Sé verðið sem
nefnt er í frétt blaðsins í gær í
sambandi við hinn nýja VW-
1500, miðað við ,Standardgerð‘
sem aðeins eru fyrir heima-
markaðinn.
safn, sem Sigurgeir Sigurjóns-
son hrl. gaf safninu.
Árbæjarkirkju hefur nú bor
izt altarisbúnaður með sérbik-
urum fyrip 36 manns, gjöf frá
gömlum Skagfirðingi til hirm-
ar skagfirzku kirkju í nýju um
hverfi. Kirkja og sóknarbörn
færa gefendum, síra Sigurbirni
Á. Gíslasyni og Gísla for-
stjóra syni hans, alúðarþakkir
fyrir rausn þeirra og vinsemd
í garð kirkjunnar.
Kirkjan verður framvegis
opin til allra helgiathafna í
samráði við forstöðumann Ár-
bæjarsafns eða sóknarprestinn
séra Bjarna Sigurðsson á Mos-
felli.
Á sumrinu heimsótti safnið
forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson og forsetafrú Dóra
Þórhallsdóttir. Meðal annarra
gesta má nefna sendiherra
Bandaríkjanna og frú, sendi-
herra Dana og yfirsafnvörð
Lillehammers-safnsins í Nor-
egi, Valen Sunstad, sem skoð-
aði safnið vandlega og lauk
lofsorði á umhirðu alla. Gestir
urðu alls um 15 þús. talsins,
þar af um 6000 börn, sem fengu
ókeypis aðgang í fylgd með
fullorðnum. Safnið stendur
sjálft fyrir veitingum í Dillons
húsi og minjagripasölu í Ár-
bæ. en tekjur safnsins hafa
samanlagt numið um kr. 165
þús. í sumar, nær helmingur
upphæðarinnar frá utanbæjar-
fólki og útlendingum.
(Frá Skjala- og minjasafni
Reykjavíkurbæiar), —