Vísir - 25.09.1961, Síða 1

Vísir - 25.09.1961, Síða 1
VISIR Kosta Bretar uppsetningu jr Decca-kerfis á Islandi? iiiii ... ' .. . árg. Mánudagur 25. september 1961. — 219. tbl. Einn af forustumönnum Hiíll hefur komið fram með brezkra togaraskipstjóra Laurie Oliver skipstjóri í Fjallkonan íslenzka tók á móti forseta fslands, er hann hcimsótti Gimli, þar sem aðallandnám íslendinga í Vesturheimi fór fram. Frú Ellpn Magnússon var í gervi fjallkonunnar. Fór fram liátíðleg athöfn við minnismerki fyrstu landnemanna og segir Jón H. Magnússon fréttaritari Vísis, sem tók þessa mynd, að um 1500 manns af íslenzku bergi brotnir hafi komið þarna saman og flestir eða allir hafi talað móðurmál sitt íslenzkuna. þá tillögu, að Bretar kosti uppsetningu á Decca radiómiðunarkerfi á fs- landi, sem geri brezkum togurum auðveldara að átta sig á því, hvort þeir eru fyrir utan landhelgis- línu eða ekki. Hann segir að uppsetning á slíku Decca-kerfi kosti 100 þús- und sterlingspund eða um 12 milljónir króna. Þó kostnaðurinn við þetta sé þannig mikill myndi það borga sig, segir Oliver, því að frá því íslenzka fiskveiðilandhelgin var víkkuð hafa brezkir tog- araeigendur orðið að greiða 30 þúsund sterlingspund í sektir, upptöku veiðarfæra og afla og annan kostnað. Laurie Oliver hefur lagt til- lögu þessa fyrir brezka sjávar- útvegsmálaráðuneytið. Hann leggur áherzlu á það í erindi sínu, hvað erfitt sé orðið að gera nákvæmar staðarákvarð- anir, þar sem landhelgislínan liggur langt undan ströndinni. „íslendingar“, segir hann, „eru sjálfir sjómennskuþjóð, og þeir munu því sjálfir skilja, hve erfitt það er að staðsetja sig svo langt frá ströndinni.“ Jafnframt því sem Decca- kerfið yrði sett upp við ísland, ætlast Oliver til þess, að fs- lendingar láti enn nokkuð und an, þannig að þeir sleppi tog- urum sem mælast allt að hálfri mílu innan við mörkin á þeirri forsendu að allur vafi í ákæru Frh. á 2. síðu. Kunnur Akur- eyringur bráð- kvaddur. Frá fréttaritara Vísis. — Akureyri í morgun. SÍÐASTL. föstudagskvöld varð kunnur borgari á Akur- eyri, Þórir Guðjónsson málara- meistari, bráðkvaddur austur í Þistilfirði. Þórir hafði undanfarið unnið með brúargerðarflokki við Sandá í Þistilfirði og var að tala við vinnufélaga sína þegar hann hné allt í einu niður og var þegar örendur. Þórir heitinn lagði á margt gjörva hönd. Hann gekk í bún- aðarskóla í æsku, síðan tók hann til við iðnnám og gerðist málarameistari. Um skeið fékkst hann við bóksölu og auk þess var hann í röð beztu leik- ara á Akureyri. Þórir var rúm lega sextugur að aldri, kvænt- ur og átti tvö uppkomin börn. Hann var vinsæll maður og hverjum manni skemmtilegri í viðræðum. Ungfrú Noregur Á laugardagskvöldið, um miðnætti var „Ungfrú Noregur“ kjörin fegurðar- drottning Norðurlanda, í fyrstu alnorrænu fegurðar- samkeppninni, sem haldin hefur verið. Hún heitir Rigmor Trengereid, er tuttugu ára gömul, ljós- hærð og auðvitað bráð- falleg. Úrslitin voru tilkynnt að Hótel Borg, á geysifjölmennum dansleik, sem haldin var í til- efni fegurðarsamkeppninnar. Einar Jónsson kynnti sjálfur hina nýkjörnu fegurðardrottn- ingu. Um miðnætti voru stúlk- urnar allar leiddar að hljóm- sveitarpallinum í danssal Borgarinnar, en Einar leiddi norsku stúlkuna út úr hópnum, fram á dansgólfið og tilkynnti úrslitin. Kolbrún Kristjánsdótt- ir, ein af fimm efstu þátttak- endunum í keppninni um titil- inn „Ungfrú ísland 1961“, krýndi fegurðardrottninguna. Síðan gengu stúlkurnar allar út á gólfið og þáðu gjafir frá Sportver og Belgjagerðinni og Álafoss. En aðalverðlaunin voru ferð til Mallorca og uppihald í 10 daga. Það er ferðaskrif- stofan Sunna, sem skipuleggur ferðina. ♦ „Ungfrú Norðurlönd“ var eðlilega mjög hamingjusöm yfir sigrinum, þegar einn af blaðamönnum Vísis hitti hana að máli eftir keppnina. Hún sagðist ekki vita hvenær hún færi í ferðina, héðan mundi hún halda til Noregs og taka upp fyrri störf, en hún er ljós- myndafyrirsæta. Foreldrar hennar eru bakarahjón, sem eiga verzlun í miðbiki Bergen- borgar. — Heldurðu ekki áð þau verði ánægð? — Það held ég sannarlega. — Hefurðu komið til Mall- orca? — Nei, ég hef aldrei komið þangað og ég hlakka mikið til þess að ferðast þangað. — Hefur verið gaman í keppninni? — Það hefur verið mjög gam- an að koma hingað ti) íslands. Og auðvitað er ég mjög ánægð með keppnina, eins og þú skil- ur. En það er bara búið að vera svo leiðinlegt veður. — Var búið að láta þig vita áður en dansleikurinn byrjaði að þú hefðir sigrað? Framh. á 5- síðu. Hin nýkjörna fegurðardrottning Norðurlanda, Rigmor Trengereid. Hún var kjörin ungfrú Noregur 1961, er tuttugu ára gömul og á heimi í Bergen. (Ljósm. Vísis I.M.)

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.