Vísir - 25.09.1961, Side 2
Mánudagur 25. september 1961
2
VÍSIR
Skytterí á Akureyrargötum.
Skaut á „blóð og eld“, á hjól-
harða og inn í eldhús.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
AKUREYRARLÖGREGLAN
handtók s.I. föstudag mann,
sem reyndi skotfimi sína ó göt-
um Akureyrar um miðjan dag,
og má heita tilviljun ein að ekki
hlauzt slys af.
Skothríðin hófst í Strandgöt
unni, en þar hefur Hjálpræð-
isherinn bækistöð sína og fyrir
utan húsið hangir hringlaga
skífa með einkennum Hjálpræð-
ishersins og þar sem á er letrað
„Blóð og eldur“. Svo virðist sem
blóðið og eldurinn hafi farið í
hinar viðkvæmu taugar skytt-
unnar því hún réðst með mik-
illi heipt á skífuna og skaut á
hana samtals sjö skotum úr
riffli sínum.
Að loknu þessu afreki lagði
skyttan suður í bæ, sá fugla
fljúga í áttina til sjávar og
ætlaði sér að hremma einhvern
þeirra. En skotið geigaði og í
stað þess að hæfa fugla him-
insins lenti það í hjólbarða
undir bíl með þeim afleiðingum
að hjólbarðinn sprakk.
Þá var þriðja atrennan gerð
'á eldhús í einu húsi bæjarins.
Þar fór skotið í gegnum rúðuna
og munaði víst ekki miklu að
það lenti í konu, sem í húsinu
var. Sem betur fór slapp hún.
Þegar hér var komið sögu
kom lögreglan á vettvang og
hirti manninn og vopnið. Það
sem lögreglunni þótti merkileg
ast var það að maðurinn var
allsgáður, en hann kvaðst vera
að þessu af gamni sínu. Byssu-
leyfi hafði hann ekki, en auk
þess er stranglega bannað að
skjóta innan marka kaupstað-
arins.
Fallast Bandaríkin á
eftirlit A.-Þjóiverja?
Kennedy Bandaríkjaforseti
flytur ræðu í dag ó Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna.
Kom hann til New York í gær
fró heimili sínu í Hyannisport,
Massachusetts, og ræddi við
helztu ráðunauta sína, m. a.
Dean Rusk, um meginatriði
ræðunnar. Hundruð einkennis-
klæddra og óeinkennisklæddra
lögreglumanna gæta forsetans
meðan hann dvelst í New York,
en hann fer þaðan í fyrramálið
til Washington.
Tillögur Kennedys.
Boðað hefur verið, að Kenne-
dy muni leggja fram ákveðnar
tillögur í afvopnunarmálum,
og verði þar miðað við að hún
fari fram í áföngum. Hann mun
leggja sig allan fram, að sagt
er, til þess að stuðla að því að
friðurinn verði tryggður.
Hann mun víkja sérstak-
lega að kjarnorkuvopnunum
og Berlínarmólinu og öðrum
vandamálum. í Berlínarmál-
inu, herma lausafregnir að
hann muni leitast við að
greiða fyrir samkomulagi
með því að fallast ó, að Aust-
ur-Þjóðverjar fái að hafa eft-
irlit með flutningum til Vest
ur-Berlínar og frá. Forsetinn
mun einnig víkja að þeim
Decca-kerfi —
Framh. at 1. síðu
skuli vera sakborningi í vil.
Decca radiomiðunarkerfið er
nú mjög mikið notað í sigling-
um við meginland Evrópu, m.
a. á Norðursjó og á Eystrasalti.
Þar er um að ræða sjálfvirka
aðferð til staðsetningar, sem
byggist á því að eitt miðunar
tæki miðar samtímis þrjá radío
geisla. Er kerfi þetta talið
veita mjög mikið öryggi í sigl-
ingum.
vanda, sem Sameinuðu þjóð-
unum er á höndum vegna
fráfalls Dag Hammarskjölds.
Mikla athygli vekur, að sam-
tímis því, sem Kennedy mun
koma til möts við sovétstjórn-
ina um lausn Berlínardeilunn-
ar, er hún vöruð við að mis-
skilja þetta, því að bæði Ro-
bert Kennedy dómsmálaráðh.
og MacNamara hermálaráðh.
hafa birt yfirlýsingar í því efni.
Róbert Kennedy sagði í sjón-
varpsræðu, að Bandaríkin
myndu grípa til kjarnorku-
vopna, ef þörf krefði, til varn-
ar frelsi Berlínar.
MacNamara hermálaráðherra
Aðeins
50 tonn.
TOGARINN Narfi kom í morg
un vestan af Nýfundnalands-
miðum, en þangað fór hann til
veiða og jafnframt til að leita
að karfa. Leiðangurinn bar
ekki árangur, og Narfi var með
um 50 tonn af fiski.
Myndlistarmenn -
Frh. af 16. s.
að þar gæti alltof einhliða sjón
armiða og þröngsýni.
Stjórn hins nýja listamanna
félags sem stofnað var í síð-
ustu viku hefir verið falið af
félagsmönnum að bera fram
mótmæli við menntamálaráð-
herra vcgnn þeirra íslenzku
myndlistarmanha sem ekki
hafa feneíð kosningarétt við
kjör i safnróð Listasafns ís-
lands í*ær kosn’nvar standa nú
fyrir dyrum. Kosningarétt
hafa hinsvegar beir listamenn
einir sem eru félagsbundnir í
myndlistarfélögum, en eltki
þeir sem utan við félögin
standa.
sagði einnig, að beitt yrði kjarn-
orkuvopnum til varnar, ef Rúss
ar byrjuðu árásarstyrjöld.
í Vestur-Berlín hvatti Liibke
forseti borgarbúa til þess að
treysta Vesturveldunum, — þau
myndu ekki bregðast þeim.
Það er sagt að ráði Juans
Clay sem Kennedy býður upp á
nokkra tilslökun.
2:1 í sögu-
legum Eeik.
í GÆR fór fram leikur milli
úrvals úr Reykjavík og úrvals
af Suðurnesjum. Fóru ledkar
svo að Reykjavík sigraði 2:1.
Hér varð um allsögulegan
leik að ræða, því að honum
lauk með snöggum hætti er 7
mín. voru til leiksloka. Albert
Guðmundsson var með liði Suð
urnesja, og var fyrirliði. Er
tæpar 10 mín. voru eftir til
leikslolca, dró til tíðinda, og
lauk því svo, að dómarinn gaf
Albert 1 mín. frest til að yfir-
gefa völlinn. Albert hvikaði
! hvergi, og flautaði dómari þá
Mæ&veiki —
Framh. af 16. síðu.
ur farið heim á bæi seinni hluta
vetrar, eins og gert hefir verið
undanfarin ár, og féð skoðað.
Guðmundur ’mknir sagði, að
leitin sem nú 'æri gerð að
meiðiveiku fé, væri ekki vegna
smitunar frá Skarðafénu, því
hún kemur ekki í Ijós fyrr en
í fyrsta lagi 1964, jafnvel þótt
smitun hafi átt sér stað í fyrra.
Sú leit sem nú er framkvæmd,
er vegna hugsanlegrar smitun-
ar frá árunum 1956—58, en þá
varð mæðiveiki einnig vart í
þessu hólfi.
Mynd þessa tók IM, ljósmyndari Vísis af Ásgeiri Sigurðs-
syni skipstjóra í brúnni á Heklu, er hann var að leggja af
stað í síðustu ferðina.
Ásgeir Sigurðssoit
tskipistjóri latinn.
ÁSGEIR Sigurðsson skipstjóri
á Heklu andaðist snögglega að-
faranótt laugardagsins. Var
Hekla þá stödd í Stafangri í
Noregi með Ingólfsfarana.
Um kvöldið var Ásgeir skip-
stjóri á samkomu í íslenzk-
norska félaginu, sem haldið
var í samkomusal Atlantic-
hótelsins í Stafangri. Ásgeir
hafði verið einn helzti hvata-
maður að stofnun þessa félags
og var því þá lýst yfir af hálfu
stjórnar félagsins, að hann
hefði verið kjörinn heiðursfél-
agi þess. ,
af, er 7 mín. voru eftir af leikn
um, og var honum þar með lok
ið.
Siglfirðingar sigra.
ÚRSLITALEIKUR Knatt-
spyrnumóts Norðurlands fór
fram á Siglufirði í gær. Sigr-
uðu Siglfirðingar Þór með 4:2.
Þar með urðu KS-ingar
Norðurlandsmeistarar í knatt-
spyrnu 1961 en KA bar þann
titil 1960. Úrslitin urðu þessi:
KS 12 stig, 30 mörk gegn 11.
Þór 10 stig, 26:14. KA 8 stig,
26:15, HSÞ 2 stig, 11:18, UMSS
2 stig, 7:15, UMSE 2 st. 4:31.
Kvaddi Ásgeir Sigurðsson
sér hljóðs og þakkaði þann
heiður sem honum hafði verið
auðsýndur. Hafði hann nýlokið
máli sínu, er hann veiktist
skyndilega og lézt hann
skömmu síðar af hjartaslagi.
Andlát þessa vinsæla skíp-
stjóra varpaði,nokkrum skugga
á Ingólfsförina. Klukkan 2,30
um nóttina var lík skipstjórans
flutt um borð í Heklu að við-
stöddu fjölmenni og var sú at-
höfn virðuleg.
Ásgeir Sigurðsson skipstjóri,
var þjóðkunnur maður. Hann
var 67 ára að aldri, sonur Sig-
urðar frá Flóagafli í Flóa, bróð
ir þeirra sr. Árna heitins fri-
kirkjuprests og Þorkels vél-
stjóra. Hann varð fyrst skip-
stjóri á Esju 1929 og æ síðan
á skipum Skipaútgerðarinnar.
Hann hafði sagt, að Ingólfsferð
in nú yrði síðasta skipstjórnar
ferð hans,
Hann var vel virtur maður,
í forustu í stétt skipstjóra,
mörgum sinnum á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík og sat á Alþingi
sem varamaður 1958. Kona
hans, Ása Ásgrímsdóttir, var
með í Ingólfsferðinni og einn-
ig Ásgeir sonur hans, sem
vinnur á Heklu.
Auglýsing um sveinspróf
Sveinspróf í þeim iðngreinum sem löggiltar
eru, fara fram í október/nóvember 1961.
Meisturum og íðnfyrirtækjum ber að senda
formanni viðkomandi prófnefndar umsóknir
um próftöku nemenda sinna, fyrir 5. október
n.k.
Umsóknum skulu fylgja venjuleg gögn og
prófgjald.
Skrifstofa iðnfræðsluráðs veitir upplýsingar
um formenn prófnefnda.
Reykjavík, 21. september 1961.
Iðnfræðsluráð.