Vísir - 25.09.1961, Page 5
Mánudagur 25. september 1961
VÍSIR
5
Rigmor Trengereid.
Ungfrú Noregur -
Framh. af 1. síðu.
— Nei, ég vissi það ekki fyrr
en ég var dregin út úr hópnum
og einhver kallaði, eitthvað,
sem ég skildi að var „kjörin
Ungfrú Norðurlönd“. Ég er far-
in að skilja einföldustu setning-
ar í íslenzku, sagði Rigmor og
hló.
Margir
þjófnaðir.
FYRIR helgina voru kærðir til
rannsóknarlögreglunnar all-
margir innbrotsþjófnaðir Var
einkum stolið sígarettum úr
verzlunum og veitingastöðum,
og farið í peningakassa fyrir-
tækjanna og þeir tæmdir, en í
öllum tilfellum var um að ræða
skiptimynt 50—200 krónur.
Stærstur þjófnaðanna var fram
inn í húsi sem er í smíðum að
Alftamýri 59 en þar var yfir
5000 fetum af mótatimbri stol-
ið.
Við eitt innbrotanna var
þjófurinn staðinn að verki og
handtekinn af leigubílstjóra.
Bað hann farþega er hann var
með að gæta mannsins á með-
an hann gerði lögreglunni að-
vart. Farþegarnir slepptu þjófn
um. Hefur verið unnið í mál-
inu áfram m. a. með aðstoð
leigubílstjórans, og eru miklar
líkur til að tekizt hafi að finna
hver hér hafi verið að verki.
Norrænu fegurðardrottning-
arnar hafa skrifað stjórn Loft-
leiða bréf og beðið um það að
fá sömu áhöfnina og flutti þær
hingað til íslands með Eiríki
rauða. Þær segjast hafa fengið
mjög góða fyrirgreiðslu hjá
Loftleiðum, og þjánustan á ferð
inni hafi verið ákaflega góð.
Þær halda heim til sín á þriðju-
dag.
Mikið brunatjún.
Síðastliðinn laugardag urðu
miklar brunaskemmdir á fisk-
verkunarstöð útgerðarfélagsins
Venus h.f. við Strandgötu í
Hafnarfirði, bæði á húsinu
sjálfu og eins á útgerðarvörum
og fiski sem geymt var í hús-
inu.
Þarna er um húsasamstæðu
að ræða, aðalhúsið er í miðj-
unni, tvílyft með risi, og þar
kom eldurinn upp, en öðru meg-
in við það er fiskþvottahús og
hinum megin geymslur.
Slökkviliðinu í Hafnarfirði
var tilkynnt kl. 15.15 að eldur
væri kviknaður í húsinu og var
hann í rishæðinni. Þar inni var
mikið geymt af ýmiskonar úr-
gerðarvörum, sumum þeirra
tjörubornum og fyrir bragðið
mjög eldfimum.
Aðstaða til slökkvistarfs var
miklum vandkvæðum bundin,
bæði vegna þess að eldurinn
var á efstu hæð og ekki unnt
að komast að honum fyrr en
búið var að rjúfa þakið, og svo
í öðru lagi vegjia þe.;s hve mik-
inn reyk lagði frá eldinum og
hinum tjörubornu veiðarfær-
um. Brann allmikið af rishæð-
inni ásamt allmiklu af þeim
vörum, sem þar voru geymdar,
einkum að austanverðu.
Á miðhæð hússins voru
geymdar útgerðarvörur, en á
neðstu hæðihni var fiskur sem
tilbúinn var til útflutnings. — |
Slökkviliðinu tókst að varna
því að eldur kæmist niður á
neðri hæðirnar og eins í bæði
húsin sín hvoru megin við að-
albygginguna. Hins vegar urðu
meiri eða minni skemmdir af
vatni og reyk á báðum neðri
hæðunum og því um mjög til-
finnanlgt tjón að ræða enda
þótt vörurnar og húsið væri
vátryggt. , _
Gizkað er á að eldurlnn hafi
kviknað út frá olíuofnum, sem
notaðir voru til að hita ris-
hæðina.
Þetta er eini bruninn, sem
nokkuð hefur kveðið að í Hafn-
arfirði um langt skeið, sagði
Sigurður Gíslason, varasl.stj.
Hafnarfjarðar í morgun.
Alyktun um
fiskveiðar.
RANNVEIG Þorsteinsd. hafði
framsögu um fiskveiðar í
Evrópu á fundi ráðgjafaþings
Evrópuráðsins sl. föstudag. Að
umræðunni lokinni var samþ.
ályktunartill., þar sem lögð er
áherzla á nauðsyn aukinna við
skipta með sjávarafurðir og
sérstakl. að aðstöðu íslendinga.
Fyrstu fregnir af
Evrópum.mótinu.
Frá fréttaritara Vísis.
Torquay, mánudag.
í GÆR hófst Evrópumeistara-
mótið í bridge í borginni Torqu
ay í Bretlandi og bárust Vísi
fregnir af fyrstu umferðinni
fyrir hádegi. Er ljóst af þeim,
að íslendingar hafa í þeirri um
ferð staðið sig betur en menn
hér almennt höfðu búizt við.
í opna flokknum fóru leikar
svo að fsland hlaut 4 stig,
Frakkland (olympíumeistarar)
2 stig, og stigin því 77:70 fyr-
ir ísland. í sveit íslands voru:
Stefán Guðjóhnsen, Jóhann
Jónsson, Lárus Karlsson, Guð-
laugur Guðmundsson.
í kvennaflokknum hlaut ís-
land 1 stig, en Bretland 5, stig
in 67:82 í sveit íslands voru:
Laufey Þorgeirsdóttir, Margrét
Jensdóttir, Vigdís Guðjónsd.,
og Hugborg Hjartardóttir.
í opna flokknum í hálfleik 3.
umferðar, er staðan þannig: ís-
land 18 stig, Ítalía 18. Af ís-
lands hálfu spila: Stefán Gitð-
johnsen, Jóhann Jónsson, Egg-
ert Benónýsson, Steinn Ingvars
son. — St.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
BÝÐUR ÓDÝRAN
SUMARAUKA
LENGIÐ SÓLSKINS- skráin gefur til kynna, hversu
DAGANA mikið Þér sparið með bví að
ferðast eftir 1. október.
Fljúgið mót sumri og sól með
Flugfélaginu á nieðan skammdegi
vetrarmánaðanna ræður rikjum
hér heima.
þÉR SPARIÐ PENINGA
Venjulcgc verð Nýtc verð Afsláttur
Rivieraströnd Nizza 11.254 8.440 2.794
Spánn Barcelona 11.8731 8.838 3.035
Palma (Mallorca) 12.339 9.254 3.085
ftalía Róm 12.590 9.441 3.149
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
fargjöldin til muna á
frá 1. október til 31. maí