Tölvumál - 01.10.1978, Qupperneq 1
c
Útgefandi: Skýrslutæknifélag íslands, Reykjavík
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm. 6.tbl. 3.árg. október 1978
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson Öll réttindi áskilin
FÉLAGSFUNDUR
Skýrslutæknifélagið efnir til félagsfundar í Norræna
Húsinu fimmtudaginn 26. oktéber 1978, kl. 14,30.
Efni fundarins verður:
Tölvunotkun við stjórn fyrirtækja.
Framsaga á fundinum verður í umsjón Páls Jenssonar, for-
stöðumanns, og Halldórs Friðgeirssonar, verkfræðings.
Að venju mun félagið bjóða fundargestum til kaffidrykkju
í veitingastofu Norræna Hussins, í lok fundarins.
Stj órnin
AÆTLUN UM FÉLAGSSTÖRF
Gerð héfur verið áætlun um félagsstörf Skýrslutæknifélags-
ins næsta vetur, sem hér segir:
Október 1978
Nóvember 1978
Janúar 1979
Febrúar 1979
Mars 1979
Kynning á tölvunotkun við stjórn fyrir-
tækja, sbr. fundarboðið hér í blaðinu.
Félagsfundur um "Frumvarp til laga um
kerfisbundna skráningu á upplýsingum,
er varða einkamálefni".
Smátölvusýningin. Félagsmönnum verður
boðið að verða við opnun sýningarinnar.
Sjá auglýsingu um sýninguna á bls. 5.
Félagsfundur. Álit nefndar á vegun Skýrslu-
tæknifélagsins um staðlað samningsuppkast
við kaup og leigu á tölvubúnaði.
I. Aðalfundur. II. Erindi og umræður um
nýjan bókhaldslykil fyrir sveitarfélög.