Tölvumál - 01.10.1978, Side 7
tölvumAl
7
Því má ef til vill bæta viö tillögu Björns, að þörf er á
fleiri nýyrðum á sviði míkróf ilmutækni (örf ilmutækni? ) ; ■
en hann nefnir. Míkrofilmur eru gerðar með ýmsum hætti;
£ rúllum, spjöldum (fiche) og a.m.k. tveimur gerðum spjalda
eða umbúða sem heita á ensku microjackets og aperture cards.
Þessi tvö síðastnefndu orð eða hugtök og e.t.v. fleiri,
þarf að tengja við það sem þegár er til umræðu, þ.e. orðið
örskyggna fyrir microfiche og e.t.v. örfilma fyrir orðið
microfilm.
Fyrst á a'nnað borð er farið að ræða um nýyrðasmíð, er
freistandi að skjóta einu sviði til viðbótar inn í þær
umræður:
Til skamms tíma var gagnaskráning svo til eingöngu fólgin
í götun.; Upplýsingar, sem teknar voru til meðferðar í
gagnavinnsluvélum, voru gataðar, settar á gataspjöld.
Nú er þetta að verða liðin saga; gataspjöldin eru á hröðu
undanhaldi sem upplýsingamiðill, og okkur dagar uppi með
ýmis orð sem hafa "götun" eða "spjald" að forlið. Það
var kannske óheppni á sínum tíma, að við skyldum ekki
lenda á hlutlausara orði en "götun" sem þýðingu á enska
hugtakinu "key entry" sem leysti af hólmi orðin "punch"
og "key punch". Nú eru því orð eins og götunarstúlka
(sem raunar er af öðrum ástæðum orðið hálfgert bannorð
eða feimnismál), spjaldritari, götunargögn, götunarstofa,
götunardeild o.fl. orðin hálfgerð vandræðabörn £ máli
gagnavinnslumanna, sem eru vanafastir eins og fleiri, og
halda áfram að "gata", þótt um sé að ræða skráningu sem
byggist á allt annarri tækni.
Ýmis orð munu vera komin á flot, sem tilraun til að leysa
þennan vanda. Meðal þeirra eru orð eins og "tölvuskráning"
og "tölvuritari" og e.t.v. fleiri, en óv£st er um út-
breiðslu þeirra og merkingarsvið.
Hér þarf, eins^og v£ðar, að gera gangskör að þv£ að finna
heppileg orð, £ takt við nýja tækni, og koma þeim á
framfæri. - ók
AÐSENT EFNI
Skýrslutæknifélaginu hefur borist nokkuð af gögnum á sumrinu
og verða þau látin liggja frammi á félagsfundinum 26.10. n.k.
Meðal þess sem komið hefur nýlega er:
IFIP NEWS No 2 - August 1978. Efni: IFIP and Education.
Euro-IFIP79. Recent IFIP Publications. Forthcoming Events.
DATA^MARKNADEN 1978. Útgefandi Svenska Dataföreningen.
Upplysingar um sænska skyrslutæknifélagið, stjórn þess, lög
og reglur. Félagatal 1.2.1978. Skrár um frámleiðendur og
vörutegundir á sviði tölva og gagnavinnslu. Auglýsingar.
Bókin er 212 bls. £ A5 broti.