Vísir - 24.10.1961, Side 5
Þriðjudagur 24. október 1961
V í S I R
5
Hvaö segja menn usn
í gær brugðu blaðamenn Vísis
sér út á Laugaveg og niður í
Austurstræti og í heimsóknir til
nokkurra Reykvíkinga og
spurðu þá um álit þcirra á risa-
sprengingu Rússa í gærmorgun.
Sprengingin var efst í huga
þeirra allra og fara hér á eftir
svör þeirra.
Lárus Lýðsson verzlunarstjóri
í Sláturfélagsdeildinni á Skóla
vörðustígnum sagði: Ljótt er
það, þetta er ægilegt og maður
getur engum getum leitt að af-
leiðingum þessa.
Lárus Lýðsson^
N'iður við Landsbankann
hittum við Torfa Ólafsson,
bankafulltrúa. Við gengum
spölkorn saman eftir götunni.
Þá hafa Rússar sprengt stóru
sprengjuna. Ég var búinn að
hugsa um þetta mál áður en
ég las um atburð þennan, sagði
Torfi. Ég hafði ekki trúað því
að ráðamenn Rússlands myndu
hefja svo glæfralegt spil. Þeir
máttu vita að Bandaríkjamenn
an eftir sprenginguna í jörð
og á, í vatni, gróðri og hvar sem
er. Mér lízt ekki á þetta.
★
Anna Pétursdóttir, verzlun-
armær þvoði og fágaði búðar-
gluggana á Tíbrá við Lauga-
veg, þegar okkur bar þar að.
„Nú hefur þessi mikla sprengja
verið sprengd. Hvernig verður
yður við þennan atburð?“
spyrjum við Önnu, og hún svar-
ar: „Þetta er slíkur hryllingur
og viðurstyggð, að ég á bara
ekki orð yfir það. Vægast sagt
Mikilvægi —
Framh.' af 8. síðu.
Lokaniðurstöðurnar af
þessari ráðstefnu ICAO sýna,
sagði flugmálastjóri að lok-
um, að þrátt fyrir þotuöld-
ina hefir mikilvægi íslands
á sviði flugþjónustunnar
ekki minnkað, a, m, k. ekki
enn sem komið er.
feri —
Torfi Ólafsson
Guðbrandur Magnússon.
myndu ekki halda að sér hönd-
um við atomsprengjutilraunir
sínar. Mun nú hafa að þeim
hvarflað, að slá nógu fast í
borðið, ef vera mætti að þeim
með því tækist að skelfa heim-
inn. Eða er það Krúsév sem vill
að hætti Stalins og Hitlers-
Þýzkalands sýna mátt sinn, —
að hann hafi örlög milljónanna
í hendi sér? Stóra sprengjan er
glæpur gagnvart mannkyninu,
ófyrirgefanlegur glæpur! Hún
sýnir okkur hversu geigvæn-
legt það afl er orðið, sem ógnar
tilveru lýðræðisins í heimin-
um.
★
Guðbrandur Magnússon fyrr-
um forstjóri ÁVR. Hann sagði
m. a.: Þetta eru hin ferlegustu
tíðindi. Hvað vitum við menn-
irnir, hvað jarðkúlan þolir, þó
hún hafi þolað þessa raun nú?
Hvað á þetta að þýða? Þetta
er eins og að ríða hesti sem mað
ur ræður ekki við. Ég hef ekki
brotið heilann um hvað vaki
fyrir hinum rússnesku ráðam.
Þetta eru mannalæti til að
sýna að alljr megi sjá hve víga-
legir og um leið ógurlegir
Rússar eru.
★
Sigurjón Fjeldsted, pípulagn-
ingameistari var á leið heim úr
fiskbúðinni með ýsu í soðið,
þegar við hittum hann og spurð
um, hvað honum þætti um
sprengjuna miklu. Hann svar-
a?5i: Ég hef mestu skömm á öll-
um þessum sprengingum. Eg1
held við höfum nóg með eld-
gosin okkar, þó að þau komi
nú sjaldan fyrir, sem betur fer.
Annars í alvöru að tala, þá get-
um við víst alls ekki gert okk-
ur grein fyrir, hvílíkan ófögn-
uð þetta á eftir að leiða yfir
mannfólkið eyðileggingu, sem
liggur í leyni jafnvel árum sam |
Anna Pétursdóttir.
eru þetta raktir glæpamenn,
sem leyfa sér að leika þetta
hvað eftir annað. Hvað, eru þeir
ekki búnir að sprengja sautján
eða átján sinnum. Ha, er þetta
22. sprengjan - á skömmum
tíma? Sko, þetta er ekki hægt.
Að hugsa sér, að slíkir mann-
fjandar skuli ganga lausir.“
★
Sigríður Jónsdóttir, húsfreyja
gekk eftir förnum vegi og var
fús til að láta í ljós skoðun sína,
Sigríður Jónsdóttir.
en henni leizt ekki á það, að
ætti að fara að taka mynd af
henni fyrirvaralaust. „Ég er nú
ekki þannig uppáfærð, eins og
þið hljótið að geta séð.“ „Það
gerir hreint ekki til, og jafnvel
enn betra, að þér skulið ekki
vera sparibúin. Við tölum bara
við fólk í önnum dagsins og án
allar viðhafnar.“ möldum við í
móinn. „Æ, það er svo Sem ekki
hægt að segja mikið. Þetta er
svo skelfílegt, að það hreint er
meira en að mæla. Ég á afar erf-
itt með að gera mér grein fyrir,
hvað vakir fyrir þessum mönn-
um. Þetta er líkast óvitum, því
ég hélt, að þessi hryllingur væri
jafnháskalegur fyrir þá', sem
koma honum af stað og fólk í
öðrum löndum. Því miður er
enginn óhultur. Það er ógnar-
legt, hvernig aumingja menn-
irnir leika sér með voðann."
Sigurjón Fjeldstcd.
Geislamæling -
Framh af 1. síðu.
maður Eðlisfræðistofnunarinn-
ar, að geislamælingar myndu
verða auknar verulega nú
vegna vfetnissprengjunnar.
★
Búast má við að geislun auk-
izt verulega. Mælingarnar hafa
hingað til einkum miðast við
vísindalegar athuganir, en nú
verða mælingarnar gerðar út
frá heilbrigðissjónarmiði. —
Sennilegt er, sagði prófessor
Þorbjörn, að geislunin muni
aukast svo að hún muni verða
meiri en þegar mest mældist
hér á árinu 1958.
Guðmundur Pálmason verk-
fræðingur, sem nú annast jarð-
skjálftamælana vegna fjarveru
Eysteins Tryggvasonar, en
hann er í Uppsölum við vís-
indastörf/athugaði í gær filrnu
hins síritandi jarðskjálftamæl-
is. Mælir þessi sýnir lóðrétta
hreyfingu á jarðskorpunni. —
Glöggt mátti sjá að jarðhrær-
ingar hafa orðið klukkan 7,36
í gærmorgun og bendir fjar-
lægðin til, áð það séu áhrif frá
vetnissprengjunni yfir Novaja
Semlja.
Framh. af bls. 16
framt hafði umráð yfir bílnum
boðið tveim öðrum piltum, 17
og 19 ára, öðrum úr Kópavogi,
hinum úr Reykjavík í dags-
ferð norður í land. Eldri pilt-
urinn hafði ökuréttindi og átti
hann að aka bílnum þar eð eig-
andinn ætlaði sjálfur að
ákemmta sér.
Þegar á Blönduós kom þurfti
bílstjórinn að bregða sér frá til
að' síma, en þegar hann kom út
aftur var bíllinn horfinn. Þá
höfðu félagar hans stungið af,
■ eigandi bílsins sjálfur sezt und-
, ir stýrið þótt drukkinn væri,
en ökuferð hans var stutt, því
bíllinn hafnaði í skurði þegar
komið var nokkuð fram í Langa
dal.
| Þar í Langadalnum gat bil-
eigandinn komizt í síma og beð-
ið kunningja sinn á Sauðár-
króki að senda bíl á móti sér.
: Sjálfur komst hann litlu seinna
í bíl sem var á leiðinni að sunn-
an og ætlaði til Ólafsfjarðar. í
þeim bíl komst hann upp á
Vatnsskarð, en þar mætt hann
kunningja sínum frá Sauðár-
króki og sneri hann þá við með
honum niður í Langadal aftur.
Þar gátu þeir dregið bílinn upp
úr skurðinum, og var hann ekki
verr farinn en það að hann var
ökufær, og héldu þeir síðan með
báða bílana norður til Sauðár-
króks.
Sýsluskrifarinn á Blönduósi
kvaðst hafa beðið sýslumann-
inn á Sauðárkróki að ná í Kópa
vogsmanninn og taka af hon-
um skýrslu. Sjálfur kvaðst hann
hafa yfirheyrt piltinn sem ók
bílnum að sunnan og norður á v
Blönduós. Hann hafi verið ó-
drukkinn með öllu, en ekki
vildi hann játa þær sakir sem
á þá félaga hafa verið bornar í
Borgarfirðinum og á Holta-
vörðuheiðinni. Er beðið eftir að
náist í aðalforsprakka ferðar-
innar og skýrsla tekin af hon-
um, en síðan borin saman við
framburð félaga hans.
Rann á hús.
Um hádegisbilið í dag rann
mannlaus bifreið gegnum
búðarglugga í Verzl. Vouge
á Skólavörðustígnum. Hafði
bílnum verið lagt rétt ofan
•við gluggann sem hann braut
oo- ’ -iii runnið 6—8 metra
é hann fór upp á gang-