Vísir - 24.10.1961, Page 10

Vísir - 24.10.1961, Page 10
IQ V í S I R Þrdðjudagur 24. október 1961 Strompleikur Rússa Frh. af 9. s. gnægðir matvæla, jafnvel svo að offramleiðsla er á öll- um sviðum og Bandaríkin hafa getað sent feikilegt magn af matvælagjöfum til fátækra þjóða um allan heim. Öld tækni og vísinda. Ég er yfirleitt þeirrar skoð unar, að á þessari öld tækni og vísinda muni félagsstefn- ur farnar að skipta minna máli en áður, því að við aukna framleiðslu ætti að draga úr deilunum um skipt- ingu arðsins, en þó kemst maður ekki hjá að veita því athygli, hve landbúnaðinum vegnar hvarvetna illa við þjóðskipulag sósíalismans. Þetta hefur orðið svo áber- andi t. d. í Austur-Þýzka- landi, Póllandi og Kína, að ekkert hefur orðið jafn mik- ið til þess að veikja trúna á sósíalismann. Annars er fjarri því að menn á Vesturlöndum hlakki yfir óförum kommúnista á þessu sviði. Það hefur orðið til að auka andstæðurnai í heiminum, að vestrænar þjóðir hafa gnægðir matvæla meðan meiri hluti heimsins þar á meðal Sovétþjóðírnar svelta. Það er heldur ekki á- nægjuefni, að sjá Krúsév veifa framan í þjóð sína á- róðursplaggi, sem lítið eða ekkert er að marka. Macmillan forsætisráð- herra Bretlands vék að þessu í ræðu sem hann hélt á flokks þingi íhaldsmanna í Brigh- ton nýlega. Hann sagði m. a.: „Það getur verið að komm I únistaríkin fari bráðum aðj þróast í eðlilegri menningar- ríki og öðlist smámsaman! siðferðislegan grundvöll. Viðj verður að vona að hinar ó- heillavænlegu kenningar | breytist þá og missi jafn-j framt öfgar sínar og styrk- leika.“ Krúsév heitir Sovétþjóðun- um miklum framförum í á- róðursplaggi sínu. Ekki er^ við því að búast að nema lít- ill hluti af þeim loforðum' rætist. Og það sem rætist er| ekkert nema eðlleg tækni-i þróun 20. aldarinnar, hvort sem löndin teljast kommún-| isk eða kapitalisk. Þetta verður m. a. ljóst af^ 'greinarflokki sem pólsk- brezki vísindamaðurinn | Bronowski hefur að undan-i förnu ritað í brezka blaðið Sunday Times. Hann ræðir| þar um, hvernig útlits verðii í veröldinni árið 2000. Fyrir' þann tíma telur Bronowski | að vísindin eigi eftir að ger-, breyta heiminum á öllum sviðum, ekki hvað sízt á því | að margfalda orkufram- leiðsluna. Ef brjáluðum stjómmálamönnum tekst j ekki að gereyða heiminum á , næstu áratugum, tryggi' framþróun vísindanna aðj róttækar breytingar til fram-, fara munu verða á næstu 40' árum. En það er ekki sósíal- isminn eða kapitalisminn sem skiptir máli heldur vís-‘ indin og tæknin. Þorsteinn Thorarensen. Gæöafiskur frá Aberdeen í frystibílum til Parísar. Fiskverkunar- og fisk- sölufyrirtæki í Aberdeen, „Allan and Dey of Rail Road“, áforma að gera tilraun í náinni framtíð til að koma gæðafiski á markað í París. Gert er ráð fyrir, að nota stóra flutningabíla með kæli- vélum til flutninganna. Fyrst verður notaður aðeins einn bíll, sem getur flutt 6V2 lest af fiski. Vegarlengdin er um 1200 km. og gert ráð fyrir að ferðin taki 2V2 sólarhring fram og aftur. 1 bakaleið getur bíllinn flutt franskar afurðir á brezkan markað. Mikill kostur er það, að ekki þarf að hreyfa farminn á leiðinni, og ætti hann því að koma á markað í fyrsta flokks ásigkomulagi. Stjórnandj fyrirtækisins, John Craig, segir það einn Éöf- uðkost þessarar fyrirætlunar og tilraunar, að með þeim fáist skilyrðj til þess að afla góðra viðskiptasambanda — áður en Bretland gerist aðili að Efna- hagsbandalagi Evrópu (sam- markaðnum). Isrddur sig úr leikhúsráði. segir I sumar varð Haraldur Björns son leikari sjötugur. Við þau tímamót lét hann af starfi sem fastur leikari í Þjóðleikhúsinu. En þar við bættist að á fundi sem haldinn var í félagi ís- lenzkra leikara um síðustu helgi lýsti hann því yfir að hann segði sig úr leikhúsráði Þjóð- leikhússins og var Valur Gísla- son kjörinn í hans stað til fjög- urra ára. Fréttamaður Vísis hitti Haraldur nýlega og sagði við hann. Á C-samningi. — Mér er sagt, að þú sért ekki lengur á föstum samning- um hjá Þjóðleikhúsinu. — Nei, ég er kominn yfir aldurstakmarkið og þá verður maður samkvæmt lögum að fara af föstum samningum, sem heita A-samningar og er ég nú á svonefndum C-samningum sem eru aðeins fyrir laust ráðns leikara. — Hvernig kanntu við þig á þeim? —Mjög vel. Að vísu óvissan tekjur, qn maður er ekki eins bundinn eins og á A-samningn- um. Nú get ég leikið hjá hverj- um sem er og annazt leikstjórn án þess að spyrja um leyfi. — Þú hafðir setið lengi í leik- húsráði Þjóðleikhússins? — Já, meira en 10 ár. I Hæpið að menn sitji lengi. — Var nauðsynlegt fyrir þig að fara úr því, þótt þú næðir sjötugsaldri? — Nauðsynlegt var það ekki. Ég hefði getað setið áfram, en mér finnst mjög hæpið, að sömu menn sitji oft lengi í ráðinu, hætt við að það staðni. En ég segi eins og er, að margt í stjórn Þjóðleikhússins hefur farið á annan veg en ég hefði kosið. — Hefurðu ekki séð það fyrr en nú? — Jú frá byrjun, en maður er alltaf að vona að hlutirnir lagist, en eftir síðustu blaða- fréttum frá leikhúsinu er ekki Haraldur Björnsson. útlit fyx'ir að það verði. í raufi’ og veru ætlaði ég að fara úr ráð- inu fyi'ir nokkru, en var aðeins að bíða eftir því að Valur Gísla- son losnaði úr stöðu formanns leikarafélagsins, en hann taldi ég að öllum öðrum leikurum ólöstuðum þann sem ætti að koma í minn stað í ráðinu, því að það ætti ekki að vera sama hver fulltrúi leikara er .í þessu ráði. V — Þú varst mikið heiðraður á sjötugsafmælinu. — Já, margir hafa sýnt mér vináttu og heiður. Nú síðast á sunnudaginn kom stjórn Leik- félagsins á Selfossi til mín. Hélt formaðurinn ræðu og afhenti mér fagran gi'ip úr silfri og fílabeini. — Þú hefur unnið með þeim? — Já, ég hef sett upp með þeim þrjú leikrit, — Koss í kaupbæti, Ærsladrauginn eftir Coward og Galdra-Loft. Lögreglustöðin: Undirbúning- ur hafinn. Undirbúningur að fyrstu framkvæmdum varðandi hina nýju lögreglustöð Reykjavíkur- borgar er þegar hafinn. Unnið er að því þessa dagana að reka niður staura til að girða -lóðina, en síðan verður tek- ið til við að grafa grunninn. 1) Tarzan hreinsaði nú skotsárið vcl og vandlega. 2) Tíminn og umönnun- in græddu sár skepnunnar, //'' éf TIME AN7 CACE HEALEI7 THE SEAST'S HUCT. THEN, ONE 7AY, NUAAA ROSE AN7 STKETCHEP1 TOWEKFUL SINEWS. og einn góðan veðurdag reis Numi upp og þandi sína voldugu vöðva. THE AP’E-WAN TENSELV AWAITEP NUíAA'S KEACTlON. W0UL7 HE SE FKIENR-y— OR W0UL7 HE ATTACK? 3) Apamaðurinn beið í of- veitt eða myndi það ráðast væni eftir viðbrögðum ljóns- á hann. ins. Yrði það honum vin-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.