Vísir - 24.10.1961, Side 16

Vísir - 24.10.1961, Side 16
I VISIR Þriðjudagur 24. októbcr' 1961 Bandaríska tilraunaflugvél- in X-15 náði 6200 km. Iiraða nú í vikunni. Söguleg Nýr skrifstofu- stjóri. FYBIR skömmu var ráð- inn nýr skrifstofustjóri við sakadóm Reykjavíkur, en þar var áður skrifstofustjóri Baldur Steingrímsson er tók við skrifstofustjóraembætt- inu er saksóknari ríkisins opnaði skrifstofu. Hinn nýi skrifstofustjóri er Aðal- steinn Guðlaugsson, en hann var nú síðast innheimtu- stjóri við embættið. Hann byrjaði sem bókari vjð embættið 1948.- Hinn nýi skrifstofustjóri ér aðeins 35 ára að aldri, sonur Guðlaugs Jónssonar lögregluþjóns. Tilkynmingin uwn helsprengjjunu. Frá flpkksþingi kommúnista í Moskvu. Þessi mynd var tekin undir ræðu Krúsévs þar sem hann boðaði að risasprengja yrði sprengd fyrir þessi mánaðamót. Allur þingheimur fagnar Krúsév með lófatald og einræðisherrann klappar sjálfur með. Tveir piltar úr Kópavogi og sá þriðji úr Reykjavík lentu í sögulegri ferð norður í land sl. laugardag unz þeir höfnuðu í skurði norður í Langadal. Fréttaritari Vísis í Borgar- nesi símaði um ferð þessara pilta um Borgarfjörð á laugar- daginn. Höfðu þeir brotið upp benzínsöluskúr við Hvítárvalla skála og stolið úr skúrnum bæði sælgæti og vindlingum. Þá lék og grunur á að þeir hafi lagt lykkju á leið sína niður í Borg- arnes og stolið benzíni af tveim bifreiðum, sem Magnús Jónas- son bifreiðarstjóri á. Að því loknu héldu þeir Rykið yfir U.S.S.R. i Þegar Rússar sprengdu risasprengjuna í gærmorgun var vestlæg átt, á sprengju- staðnum. Nú hefir áttin i hinsvegar breytzt, segja |; veðurfræðingar í morgun, | svo að hið geislavirka ryk i' berst í suðurátt eða yfir Sovétríkin sjálf! 1..................... Hvað segja Reykvíkhtgar iin risa- sprengjuna? Sjá bls. 5. norður yfir Holtavörðuheiði. En þar uppi á heiðinni höfðu rjúpnaskyttur skilið eftir þrjá bíla. Tveir bílanna voru ólæst- ir en sá þriðji læstur. Fóru pilt- arnir í alla bílana, brutu þann upp sem læstur var, og néyttu góðgerða úr öllum bílunum, en höfðu á brott með sér flösku af áfengi, sem þeir fundu í einum þeirra. Þegar þeir komu norður á Blönduós þurfti sá - pilturinn, sem ók bílnum, að fara inn í símstöð til að síma, en á meðan hann var að því stungu hipir tveir af og héldu ferðinni á- fram unz þeir höfnuðu í skurði skammt fyrir framan Fremsta- gil í Langadal. Vísir átti í morgun tal við sýsluritarann á Blönduósi, Guð- brand ísberg fyrrv. sýslumann. Hann sagði að eftir því sem hann hafi komizt næst hafi að- alforsprakkinn, sem talinn er eiga heima í Kópavogi, og jafn- Framh. á bls. 5. Tillaga Norðurlanda orðin of sein — Fundi stjórnmálanefndar S.Þ. var frestað í gærkvöldi án þess að nokkur ákvörðun eða at- ltvæðagreiðsla hefði verið gcrð varðandi tillögu Norðurlanda um að skora á Rússa að hætta við að sprengja 50 mcgatonna sprengju. Er nú alls óvíst hvort tillög- unni verður haldið áfram eða hún dregin til baka, með tillti til þess að Rússar eru nú búnir að sprengja stórsprengju sína. Seint í gærkvöldi áður en fundi nefndarinnar lauk flutti fulltrúi Norðmanna ávarp, þar sem hann bað nefndina eindreg- ið um ð hraða störfum. En því svöruðu fulltrúar kommúnista með því að bera fram tillögu um rökstudda dagskrá og var þá vonlaust að tillagan fengist afgreidd. \ Fulltrúi íslands hjá SÞ. Thor Thors sendiherra flutti ræðu í stjórnmálanefndinni í gær. HaÁn benti (á það, að 50 mega- tonna sprengja sú sem Rússar hefðu hótað að sprengja væri 2500 sinnum kraftameiri en sprengjan, sem varpað hefði ver ið á Hiroshima á sínum tíma. Ennfremur skýrði hann frá því að mælingar á íslandi sýndu að g.eislavirkni þar hefði 200 faldazt síðan í september. Hann sagði að nauðsynlegt væri að af- ----------------------> Greiii fjár- málaráðherra Gunnar Thoroddsen ritar grein í blaðið á morgun er nefnist: ,,AS loknum Landsfundi.“ Funduriim um stöðvarhúslð á Hlemmtorgi á morgun. FYRIR nokkrum vikum var skýrt frá því í blöðunum, að upp væri komin deila milli stjórnar Bifreiðastöðvarinnar Hreyfill, og meirihluta félags- manna út af því að stjórnin lokaði stöðvarhúsinu á Hlemm- torgi. Var lögbann lagt við breytingum á húsnæðinu fyrir skrifstofuhald, og jafnframt ákveðið að það bann skyldi vera í gildi unz almennur félags- fundur bifreiðastjóra hefði fjall- að um málið. Þessi almenni fundur verður á.morgun klukkan 1.30 í Kópa- vogsbíói. Það fer eftir úrslitum greiða tillögur Norðurlandanna strax. Við skulum tala áður en sprengjan talar, sagði Thor Thors, — en síðar kom í ljós, að Rússar höfðu þegar látið sprengjuna tala. hanfe hvort Hlemmtorgsstöðin verður áfram bækistöð með biðstofu fyrir bílstjórana, eða að húsinu verður breytt í skrif- stofuhús fyrir stjórn stöðvar- innar. ------r-------------- Kynningin vel sótt. Kynningin sem fram fór á sunnudaginn í Há- skólanum, á verkum Kristmans GuSmunds- sonar, var mjög vel sótt, og þótti takast vel. Þetta var fyrsta bókmennta- kynning Almenna Bóka- félagsins á vetrinum. HArPDRÆTTI Sjálfstæöisflokksins býður yður upp á 2 glæsilega fólksbíla. Miðar eru seldir úr bílnum viS utvegsbankann. DregiS 15. nóvember.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.