Tölvumál - 01.01.1979, Side 11

Tölvumál - 01.01.1979, Side 11
tölvumAl 11 UPPLÝSINGAR UM TÖLVUSTOFNANIR Skýrslutæknifélagið áformar að birta í Tölvumálum upp- lýsingar um íslenskar tölvustofnanir. Hér á eftir fer stutt kynning á Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkur- borgar í.samantekt Bjarna P. Jónassonar. Ætlunin er, aö síðar birtist sambærilegar upplýsingar um aðrar hér- lendar tölvustofnanir eða deildir. Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar (SKÝRR) Stofnunin var sett á fót með félagssamningi ríkisstjórn- arinnar og borgarstjórnar Reykjavíkur dags. 28. ágúst 1952 og hóf starfsemi sína 1. september sama ár. Hinn 13. apríl 1962 gerðu fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og borgarstjórinn í Reykjavík fyrir hönd Reykjavíkurborgar með sér nýjan sameignarsamning. Samkvæmt honum er stjórn fyrirtækisins x höndum fjögurra manna, og skipar ríkis- stjórnin tvo og borgarráð tvo. SKÝRR er rekið sem þjónustufyrirtæki fyrir eignaraðilana, ríkið, Reykjavíkurborg og stofnanir þeirra og annast gagna- vinnslu fyrir þessa aðila og hefur nú til afnota tvær tölvur. Starfslið fyrirtækisins er 78 manns (september 1978). SKÝRR er rekið sem sjálfstæð stofnun með sjálfstæðan fjár- hag og starfar í eigin húsnæði að Háaleitisbraut 9, Reykja- vík. Gjaldskrá er sett af stjórn stofnunarinnar. Helstu verkefni sem unnin eru hjá SKÝRR: Launa- og bókhaldsvinnsla fyrir ríkið og Reykjavxkurborg. Fyrir Póst og síma er unnin umfangsmikil vinnsla, m.a. reikningaskrift og orlcfsvinnsla. Af öðrum verkefnum má nefna þjóðskrá, rafmagnsreikninga og margskonar vinnslur fyrir skattayfirvöld. Sívinnslu/fjarvinnslutenging er við Borgarspítalann, Háskóla Islands, Bifreiðaeftirlit ríkisins, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og .Veðurstofu íslands. Tölvubúnaðurinn sem SKÝRR hefur til umráða er á leigu frá IBM og er önnur tölvan af gerðinni 370/138, 512k og hin af gerðinni 370/145, 768k. Þessar tölvur eru tengdar saman með sérstökum búnaði þannig að ef önnur bilar, þá getur hin tekið við vinnslunni. Við þessar tölvur eru tengd ýmiskonar jaðartæki. Þessi jaðar- tæki eru: 2 stk. prentarar, sem hvor getur prentað hámark 1100 línur á mínútu, tæki til að lesa og skrifa á disklinga, 5 stk. segulbandastöðvar og 11 stk. seguldiskastöðvar, en diskurinn á hverri stöð rúma 100 milljón tákn. Fjarvinnslutenging er við 5 aðila með fjartengingarbúnaði (3704 communications Controller). Við tvo þessara aðila

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.