Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 5
starfsaðferðir þeirra hafa vankanta ekki siður en verklag
tæknimannanna.
Hér á landi má fljótlega vænta svipaðrar þróunar varðandi
sjónarmið fólks gagnvart tæknimönnum. Á siðasta áratug
hafa stjórnmálamenn oft varpað ábyrgð af mistökum sinum
yfir á tæknilega ráðgjafa. Margar tæknilegar framkvæmdir
hafa vissulega verið umdeildar. Enginn vafi er á þvi að
neikvæð umræða um verklegar framkvæmdir og fjárfestingar
hefur komið verkfræðingum illa. Til skamms tíma þurftu
hagfræðimenntuðu stéttirnar ekki að liða fyrir umræðu af
þessu tagi. Það hefur breyst hin síðari ár. Hin miklu
gjaldþrotamál og rekstrarerfiðleika undanfarinna ára hafa
flest verið skrifuð á reikning hinna svonefndu "fjármála-
manna".
Einnig má nefna að opinberar hagfræðistofnanir hafa lent í
erfiðleiktun með að sýna fram á ágæti sitt. Umræður hafa
til dæmis orðið um að efnahagsáætlanir séu of ónákvæmar og
hagfræðingunum hafi mistekist að segja fyrir um þróun í
mikilvægum málum. Óhætt er að fullyrða að umræðan i
þjóðfélaginu hafi verið hinum "fjármálamenntuðu" stéttum
óhagstæð undanfarna mánuði.
Margt af þvi fólki, sem sótt hefur i viðskiptanám hefur
verið mjög metnaðarfullt og framagjarnt. Nemendur tækni-
háskólanna hafa þótt heldur rólegri. Nú virðist sem ungt
metnaðarfullt fólk sæki i auknum mæli i tækninám. í verk-
fræðináminu sér það framtiðarmöguleikana. Tiltölulega fáir
eru heillaðir af tækninni, sem slikri. Hún er einungis
tæki. Hinir ungu tæknimenn hafa ekki endilega áhuga á að
finna upp nýja tækni eða leita nýrra leiða. Það eru fyrst
og fremst laun og framavon, sem heilla. Tæknilegur áhugi
er að vaxa i okkar heimshluta. Þrátt fyrir ýmisleg
tæknileg mistök undanfarinna ára er almenningur jákvæðari
en áður gagnvart tækni og tæknimönnum. Eðlileg afleiðing
af þessari þróun er að vegur tæknimenntaðra manna fer
vaxandi.
Stefán Ingólfsson
5