Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 14
350 ÞÚSUND KRÓNUR Á NOTANDA
Á undanförnum árum hefur mikið verið fjallað um verðfall á
einmenningstölvum. Söluverð þeirra reiknað i bandaríkja-
dölum hefur lækkað \om 30% á ári til jafnaðar undanfarin ár.
Þessari þróun hefur stundum verið likt við byltingu. Minna
hefur verið fjallað um að söluverð á meðalstórum tölvum sem
hefur einnig lækkað mikið undanfarna mánuði. Lækkunin er
ekki eins mikil og þegar einmenningstölvur eiga í hlut.
Talið er að söluverð þessara tölva lækki um 20% árlega
reiknað i dollurum. Verðlækkunina má aðallega rekja til
harðnandi samkeppni. Mest ber þar á stórfyrirtækjunum IBM
og DEC.
Einn af lesendum TÖLVUMÁIA sendi okkur nylega grein, sem
fjallaði um þessa þróun. í henni var fjallað um niður-
stöður úr könnun, sem bandariska fyrirtækið The Sierra
Group í Arizona gerði á raunkostnaði nokkurra tölvugerða.
Greinin birtist i nóvemberblaði "Computer Economics".
Athugun The Sierra Group var að því leyti athyglisverð að
hún tók til heildarkostnaðar við tölvukaup á 5 ára tíma-
bili. Reiknað var með tölvukaupum, hugbúnaði og viðhaldi
fullkomins kerfis fyrir skrifstofusjálfvirkni. Rannsökuð
voru tæki frá 4 framleiðendum. Umfang kerfanna var
breytilegt. Reiknað var með kerfum fyrir 4 notendur og
allt upp i kerfi fyrir 100 notendur.
Lækkandi kostnaður.
Könnunin leiddi i ljós að kostnaður hefur farið lækkandi
siðasta ár. Helstu ástæður þess eru að fjöldi hagkvæmra
tölva af millistærð hefur verið settur á markaðinn á
síðustu mánuðum. Viðskiptamenn njóta þar einkum harðnandi
samkeppni IBM og DEC. Einnig hefur fyrirtækið Data General
sett ný afkastamikil tæki á markaðinn undanfarin ár. Aðrir
framleiðendur koma einnig við sögu.
Lækkun á söluverði tækja hefur þó ekki skilað sér að fullu
i lækkuðu verði á tölvukerfum. Hugbúnaður hefur hækkað á
móti og dregið úr áhrifum tækniþróunarinnar.
14