Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 16

Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 16
svo að þegar afkastageta tölvukerfis fjórfaldist tvöfaldist kostnaðurinn. Einnig má segja að unnt sé að fá niu sinnum afkastameira kerfi fyrir þrisvar sinnum hærra verð. Svo er að sjá að þetta gamla lögmál um hagkvæmni stærðarinnar gildi ekki lengur. Að minnsta kosti gefur könnunin aðra mynd. Hún gefur þvert á móti til kynna að kostnaður á hvern notanda lækki ekki endilega þó tölvubúnaðurinn verði öflugri. Ef tekið er meðaltal af kostnaðarverði þess búnaðar, sem The Sierra Group kannaði kemur i ljós að kostnaður á hvern notanda er afar svipaður i kerfum fyrir 16 notendur og kerfum fyrir 50 notendur. Kostnaður á hvern notanda i 100 notenda kerfi er til jafnaðar einungis 6,5% lægri en i 16 notenda kerfi. Ef Grosch lögmál væri enn i gildi mundi kostnaður i 100 notenda kerfi vera 60% lægri en i 16 notenda kerfi. Segja má að kostnaði tölvukerfa með allt að 100 notendur megi lýsa þannig að stofnkostnaður nemi 32.000 dollurum og siðan bætist 9.312 dollarar við fyrir hvern notanda, sem tengst getur kerfinu. Ef þessar fjárhæðir eru reiknaðar yfir i islenskar krónur má reikna með því að stofnkostnaður fjölnotendakerfis sé 1.200 þúsund krónur. Til viðbótar þarf siðan að greiða 350 þúsund krónur fyrir hvern notanda. Þetta eru án efa hærri fjárhæðir en margir söluaðila vilja viðurkenna að gildi hér á landi. Kostnaður við tækjakaup er hærri hér á landi en i Bandaríkjunum. Af þeim sökum má þvert á móti vænta þess að kostnaður sé enn hærri hér á landi. Til fróðleiks er hér á eftir birt yfirlit yfir kostnað við nokkur tölvukerfi eins og áætla má hann eftir bandarisku könnuninni. Fiöldi notenda Kostnaður i bús kr. 5 10 25 50 75 100 2.946 4.692 9.930 19.614 27.390 36.121 16

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.