Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 6
FRÉTTAPISTILL
Hupbúnaðarnámskeið SÍ tókst vel.
Dagana 2. - 6. nóvember s.l. hélt Skýrslutæknifélagið
námskeið i hugbúnaðargerð, sem einkum var ætlað þeim, sem
þurfa að skipuleggja og stjórna stórum hugbúnaðarverkefnum.
Námskeiðið sóttu 23. Þar sem að námskeiðið tókst mjög vel
bendir allt til þess að siðari hluta vetrar verði það
endurtekið, þó liklega með aðeins breyttu fyrirkomulagi.
Kvnningarátak.
Útbreiðslunefnd Skyrslutæknifélagsins kom saman i haust og
undirbjó átak i kynningu á félaginu og söfnun nyrra félaga.
Um 200 fyrirtæki og stofnanir fengu kynningarbréf. Svörun
hefur verið góð og hafa margir látið innrita sig. Eru þeir
boðnir velkomnir i félagið.
Félagsfundur um höfundarétt hugbúnaðar.
Skyrslutæknifélagið heldur félagsfund 10. desember og var
félagsmönnum sent sér fundarboð að þvi tilefni. Efni
fundarins er "Höfundaréttur hugbúnaðar". Skyrslutækni-
félagið leitast við að halda félagsfundi um þau málefni sem
áhugaverðust þykja i tölvu- og upplysingatækni hverju sinni
og svo er um efni þessa fundar. Litið hefur verið gert til
að móta reglur um' höfundarétt hugbúnaðar hér á landi en
löggjöf um hann er i undirbúningi á Norðurlöndum. í næsta
tölublaði TÖLVUMÁLA verður skrifað tun það sem fram kemur á
fundinum.
Minnkar siálfstæð hugsun hiá hönnuðum?
Á ráðstefnu sem Rannsóknaráð rikisins hélt nýlega um
rannsóknir á þágu atvinnuveganna, flutti Rikharður
Kristjánsson, verkfræðingur, erindi i flokknum um mann-
virkjagerð. Þar hélt hann þvi fram að notkun tölva við
hönnun á brúm hefði haft það í för með sér, að fjölbreytni
i hönnun brúa minnkaði stöðugt og þar með mætti halda þvi
fram að tölvunotkun á þessu sviði drægi úr sjálfstæðri
hugsun og notkun imyndunarafIsins hjá hönnuðunum. Þess má
6