Tölvumál - 01.12.1987, Síða 8
1988 NORRÆNT TÆKNIÁR
Ráðherranefnd Norðurlandaráðs (iðnaðarráðherrar) ákvað á
fundi 17. október 1986, að árið 1988 skyldi vera norrænt
tækniár. Samnorrænni undirbúningsnefnd var komið á
laggirnar um áramótin 1986/87 og hefur síðan verið unnið að
samhæfingu og undirbúningi.
Markmið norræns tækniárs hafa verið skilgreind á eftir-
farandi hátt:
Að auka þekkingu á tækni og skilning á mikilvægi tækni
og tækniþróunar fyrir samfélagið og einstaklinga i
öllum þjóðfélagshópum á Norðurlöndum.
Að hvetja til og hlúa að tæknisamvinnu milli fyrir-
tækja, rannsóknarstofnana, menntastofnana og opinberra
aðila i ljósi þess að auðlindir og þekking nytist
betur með virkri samvinnu á öllum sviðum.
Á íslandi hafa Félag isl. iðnrekenda, Háskóli íslands,
Iðntæknistofnun íslands og Verkfræðingafélag íslands, að
beiðni Iðnaðarráðuneytisins, hafist handa um skipulagningu
og framkvæmd tækniárs á íslandi.
í heild byggir skipulagið á íslandi á eftirfarandi fjórum
einingum:
Fulltrúum íslands í norrænni samstarfsnefnd.
Framkvæmdanefnd á íslandi (verkefnastjórn).
Framkvæmdastjóra tækniárs.
Fulltrúum þátttökuaðila i verkefnum.
Hér á landi hafa fimm höfuðverkefnasvið verið valin:
1. Tækni og atvinnulíf.
2. Tækni, rannsóknir og þekkingaröflun.
3. Tækni og unga fólkið.
4. Upplysingatæknin og samfélagið.
5. Tækni og daglegt lif.
Ákveðið hefur verið að Skyrslutæknifélag íslands taki þátt
i verkefnasviði 4; upplysingatæknin og samfélagið, ásamt
fleiri aðilum, sem láta sig málið varða. Fulltrúi SÍ
verður Hjörtur Hjartar, rekstrarhagfræðingur hjá Eimskip
hf.
Tækniárið hefst opinberlega mánudaginn 11. janúar 1988.-kþ.
8