Tölvumál - 01.12.1987, Side 12
Nýyrðaönnusta -
DRÖG AÐ MANSÖNG AÐ ALGRÍMS RÍMU
KÍSILDÆLAKAPPA
Öðru nafni formáli að Kennslubók i málinu Turbo D fyrir
byrjendur. Kveðið i fögnuði, er tölvuorðasafnið nýja kom
út. Þar er að finna skýringar á myrkum stöðum i kveð-
skapnum.
Ljóða dis, þótt dofni öld,
dafna visuefnin ný,
Algrim prisa kvæði i kvöld
og dala Kisils kappafjöld.
Herm mér, fljóð, hvar skáldið skal
skara i glóð, svo eflist af
kvæðagróður, kveða skal,
kyrj a 1j óð um kappaval.
í bók er orðamergðin merk,
malar á borði Makkinn nýr,
með þeim forða fljótt úr kverk
fljóta skorðuð Óðins verk.
Algrims list ég efli hér,
er i gisti leppur nýr
sem á vistföng visar mér,
vigrar stystu leiðir ber.
Algrim ber á Frosta far,
forðast sker og duldar lýs,
flaumræn veröld fyrrum var,
virðast mér það blekkingar.
Stafræn aldan strýkur fley,
stagagaldurs mun hér þörf,
stinningskaldi styrkir ei
né steyting aldið sálargrey.
Lifs mins gerðist torvelt tag,
tvirýnt er það, fylki búlskt,
marga ber það bót og stag,
best er að herða stefjalag.
Smali neitar, sér sem er,
að sérkvæmd breytu er ótagskipt,
og að leita leiðist mér
lúsa, er steyting hamla fer,