Vísir - 25.04.1962, Blaðsíða 5
Miðvikudagurinn 25. aprll 1962.
VISIR
Messa eftir ungt reykvískt
tónskáU fíutt i kvöU
Pólýfónkórinn byrjar aðaltón-
leika sína á árinu í kvöld í
Landakotskirkju og frumflytur þá
fyrsta verk sinnar tegundar eftir
íslenzkt tónskáld, Messu fyrir
blandaðan kór og einsöngvara, eft-
ir Gunnar Reyni Sveinsson, nýtízku
tónlist byggð á fornum texta.
Gunnar Reynir er ungur Reyk-
víkingur (f. 1933), sem útskrifað-
ist frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík s.I. vor, þar sem hann hafði
tónsmíðar fyrir aðalgrein, og var
kennari hans Jón Þórarinsson tón-
skáld. Hann hefir leikið á sláttar-
hljóðfæri í sinfóníuhljósveitinni og
einnig verið víbrafónleikari í ýms-
um danshljómsveitum bæjarins.
Tónleikar Pólýfónkórsins verða í
Lahdakotskirkju fimm næstu
kvöld, þeir fyrstu annað kvöld kl.
21 og verða þar flutt einungis and-
leg tónverk eftir erlend tónskáld,
auk messunnar eftir Gunnar Reyni
Svéinsson.
I gær áttu fréttamenn samtal við
tónskáldið unga, Jón kennara hans
og söngstjóra Pólýfónkórsins, Ing-
ólf Guðbrandsson. Sagði Jón Þór-
rinsson, að á seinni tímum hefði
aðeins einn íslendingur samið sams
konar tónverk á undan Gunnari
Rejni, sem sé Sigurður tónskáld
Þórðarson er samið hafi messu fyr
ir karlakór. Messa Gunnars Reynis
S'ildveiðin
væri hins vegar samin fyrir bland-
aðan kór ,hin fyrsta sinnar tegund-
ar hér á Iandi um margar aldir.
„Ég þori ekki að segja, hvað orðið
hefur til af slíku tagi á dögum Jóns
biskups Ögmundssonar," sagði Jón,
„tel þó víst, að þá hafi gerzt margt
merkilegt í tónskáldskap sem nú er
L'atað. Þeir voru nefnilega virki-
lega með á nótunum í þann tíð hér
á landi, örugglega miklu tónvísari
en 1 seinni tíð.“
Ingólfur Guðbrandsson söngstj.
kvaðst hafa talið þetta svo merka
frumsmíð hins unga tónskálds, að
sjálfsagt hafi verið að freista þess
að Pólýfónkórinn æfði það til flutn
ings og hann hefði fljótt orðið þess
viss, að það sómdi sér vel á efnis-
skrá kórsins. En þ!að væri feikilega
erfitt verk og framandi hérlendu
söngfólki, byggt á nýjum tónasam-
böndum. „En það hefur verið höf-
uðtilgangur kórsins. frá byrjun að
flytja tónverk frá fyrri öldum, 16.
og 17. öld ,og svo aftur nútíma-
verk. Of lítið hefur verið gert af
því hér á landi áður að sýna fram
á, að til hafi verið góð músik fyrir
daga Johanns Sebastians Bach, og
svo á hinn bóginn að kynna andleg
tónverk sprottin upp í nútímanum.
Þetta reynum við að gera jöfnum
höndum."
Gunnar Reynir kvað tvær tón-
smíðar eftir sig hafa verið fluttar
áður, á nemendatónleikum Tón-
listarskólans. En þetta nýja verk
hans, sem var samið í minningu
tveggja systkina hans látinna og
verið hafi prófverkefni í lokapröfi
hans s.l. vor, væri svo vel æft af
Pólýfónkórnum, og í samræmi við
það, sem fyrir sér hafi vakað, og
efaðist hann ekki um, að kórinn
myndi skila þvi vel á tónleikunum.
ELEXSAMBAND
VIÐ ÚTLÖND
Framh. al 1. síðu.
— Síldveiðarnar í vetur
marka þáttaskil, þannig að bú-
ast má við að nokkrir hinna
stærri báta stundi nú síldveiðar
allan veturinn og hverfi frá
netjaveiöum. Hér í Eyjum munu
þetta vera um 15 bátar.
Með nýju tækjunum teljum
við að vetrarsíldveiðarnar séu
orðnar árvissar og þegar nokkr-
ir stærstu bátarnir snúa sér að
þeim getur það þýtt að nokkuð
dragi úr netjaveiðunum. Hafa
margir og talið að netjaveiðin
hafi verið of setin.
í sambandi við þetta gat
Björn þess, að Vestmannaeying-
ar hefðu komið sér up 3500
mála síldarvarksmiðju, með litl-
um stuðningi. Vissu fæstir um
það að síldarverksmiðjan í Eyj-
um væri svo afkastamikil, jafn-
vel afkastameiri en síldarverk-
smiðjurnar á Austfjörðum.
í lok apríl er áfórmað að taka
í notkun svokallað telexsamband
j við útlönd. Þetia samband er
þannig, að fyrirtælci og einstakl-
ingar leigja tæki, sem hefur borð
eins og ritvél. Er hægt að tengja
tækið við tæki notenda erlendis
og kemur þá það sem annar
skrifar, fram á þar til gerðri rit-
I vél hjá hinum.
' Þar sem hraðinn er takmark-
aður, þegar vélrita þarf beint,
er einnig hægt að fá með þessu
aukatæki, til að gera göt á gata-
strimil, sem síðan er rennt í
gegn um sendivél. Gengur send-
ing þannig miklu hraðar en ella.
Tæki þessi eru mikið notuð
erlendis og er þess vænzt að
stærri fyrirtæki hér muni sjá sér
hag í að nota þau. Til dæmis
eru tíu slík tæki þegar í notkun
í Færeyjum.
Tæki þessi geta sparað mikið
fé fyrir þá sem mikil viðskipti
hafa við útlönd. Lágmarksgjald
er tekið fyrir þrjár mínútur og
geta menn síðan haldið áfram
eftir þörfúm, og er þá tekið auka
gjald fyrir hverja mínútu. Kost-
ar um 40 prósent minna að nota
þetta tæki en talsíma. Talsíma-
gjald til Englands kostar nú l62
krónur fyrir þrjár mínútur, en j
93 krónur með telexsambandi. j
Ef reiknað er með að send séu
tvö til þrjú hundruð orð á þrem
mínútum, kostar hvert orð að-,
eins 40 til 60 aura.
Sérstök stöð hefur verið sett
upp til að annast þessa af-
greiðslu og er rúm í henni fyrir
30 tæki. Ellefu tæki hafa þegar
verið pöntuð og er búizt við að
þau verði mun fleiri. Hver not-
andi fær síðan skrá með nöfnum
allrai notenda úti í heimi.
Stofngjald tækis þessa er
10.000 krónur, en árlegt afnota-
gjald verður 16.000 krónur.
Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld. Ljósm. Vísis I. M.
Auknar líkur fyrir
æðstu manna
Framboð Sjálfstæðismanna
Listi Sjálfstæðismanna við hrepps-
nefndarkosningarnar I Seltjarnar-
neshreppi er þannig:
1. Jón Guðmundsson, endurskoð-
andi, Nýjabæ.
2. Karl B. Guðmundsson, banka-
fulltrúi, Vegamótum.
3. Sigurgeir Sigurðsson, sölumað-
ur, Skólabraut 41.
4. Snæbjörn Ásgeirsson, skrifstofu
maður, Nýlendu.
5. Kristinn P. Michaelson, iðnað-
armaður Unnarbraut 3C.
6. Ingibjörg Stéphensen, húsfrú,
Breiðabliki.
7. Vilhjálihur H. Vilhjálmsson,
kaupmaður, Skólabraut 17.
8. Ásgeir M. Ásgeirsson, kaupmað-
ur, ’ögmbrekku.
J. fryggvi junnaieinsson, bifreið-
arstjóri, Tryggvastöðum.
10. Friðrik Dungal, kaupmaður.
Til sýslunefndar
Jón Guðmundsson endurskoð-
andi. Til vara Karl B. Guðmunds-
son, bankafulltrúi.
Framboðslisti Sjálfstæðismanna í
Miðneshreppi við sveitastjórnar-
kosningarnar 27\. maí n.k.:
1. Jón Júlíusson, Tjarnargötu 10,
2. Páll Ó. Pálsson, Lágafelli,
3. Sigurður Ólason, Skólastr. 1,
4. Jón Axelsson, Brekkustíg 1,
5. Óskar Guðjónsson, Nprðurg.,
6. Guðmundur Þorkelsson, Birkihl.
7. Aðalsteinn Gíslason, Tjarnar-
götu 11.
8. Níels Björgvinss., Brekkust. 14
9 Húnbogi Þorleifsson, Uppsala-
vegi 5,
10. Guðmundur Guðmundsson, Bala
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks
ins til sýslunefndar:
Guðmundur Þorkelsson, Birkihlíð
Níels Björgvinsson, Brekkust. 11.
I .
Listi Sjálfstæðismanna á Seyðis-
firði hefur verið ákveðinn. Efstu
níu sætin eru þannig skipuð:
1. Pétur Blöndal iðnrekandi.
2. Sveinn Guðmundsson framkvstj.
3. Stefán Jóhannsson vélfr.
4. Hörður Jónsson verkamaður.
5. Guðmundur Gíslason bankaritari
Þorbjörn Arnoddsson bifr.stj.
7. Mikael Jónsson verkamaður.
8. Theodór Blöndal bankastjóri.
9. Svavar Karlsson varðstjóri.
Síðasta kjörtímabil sátu þrír
Sjálfstæðismenn f bæjarstjórn. Nú
koma fram fimm listar á Seyðis-
firði ,sá fimmti borinn fram af
vinsfcrimönnum.
Harold Macmillan forsætisráð- ]
herra Bretlands fer vestur yfir haf
í dag og ræðir við Kennedy for-
seta á laugardag — m.a. hið nýja
viðhorf, sem til sögunnar kemur
við að Bandaríkin byrja að
sprengja á ný. Hann mun beita
mjög áhrifum sínum til að vinna
að því, að haldinn verði fundur
æðstu rnanna, og líkur meiri en áð-
ur fyrir, að samkomulag um slíkan
fund náist.
Á Bretlandi heyrðust margar
raddir um það fyrir og um pásk-
ana, að Macmillan ætti að reyna
að fá Kennedy til að hætta við að
spréngja meðan Genfarráðstefnan
um afvopnun stæði, og Nehru for-
sætisráðherra Indlands hvatti til
hins sama, en Andrei Gromyko ut
anríkisráðherra Sovétríkjanna end-
urtók, að ef Kennedy heimilaði að
hefja kjarnorkusprengingar í lofti,
myndu Sovétríkin einnig hefjast
handa um að reyna nú sovézk
kjarnorkuvopn. Annars er það al-
kunn staðreynd, að það er vegna
hinna mörgu kjarnorkusprenginga
Rússa s.l. haust, sem Bandaríkin
telja sig knúin til þess að hefja
þessar tilraunir nú, en jafnframt
hefur Kennedy margsinnis lýst yf-
!r, að Bandaríkin séu fús til þess
að hætta við þessi áform svo framt
að Sovétríkin fallist á bánn við
framleiðslu og notkun kjarnorku-
vopna og alþjóðlegt eftirlit með að
slíkt bann verði haldið, en þessu
hafa Rússar þverneitað, á þeim
ý.-undvelli að þr* jafngilti njósn-
um. Hlutlausu þjóðixnar hafa því
reynt að miðla málum og lagt til,
..5 eftirlitið verði f höndum hlut-
lausra þjóða.
Sarht er vonað —
Þott mörgum þyki dökk blika
hafa færzt á loft við að kjárnorku-
sprengingar hefjast á ný, ríkir
nokkur bjartsýni um framtíðina.
Horfur eru taldara öllu vænlegri
um samkomulag um Berlín og jafn
vel Krúsév látið f það skína.
Það er mikið áhugamál Macmill-
ans að koma á fundi æðstu manna
og mun hann ræða það við Kenne-
dy, sem er np sagður ekki frá-
hverfur hugmyndinni, en eftir Krú-
sév er nú haft, að hann sé nú sam-
mála Kennedy um, að slíkan fund
beri að undirbúa sem vandlegast.
Jöfn skifti
Þegar framboðslisti Þjóð-
varnar var kominn fram, en
framboðslisti kommúnista í
burðarliðnum, hittust tveir
menn, Frjálsþýðingur og kommi
á götu. Frjálsþýðingurinn var
montinn yfir þvf, að á frarn-
boðslista hans væru átta fyrr-
verandi kommúnistar. Komm-
inn var hinn æfasti og sagði, að
það væru tómir aular. Hefði
Þjóðvörn líklega ekki þurft að
sækja slíka menn til komma,
þar sem hún ætti nóg af slíku
sjálf. Til dæmis ættu Þjóðvam
armenn tvo menn sem hann
taldi lítilfjörlega á pósthúsinu,
þá Leif Haraldsson og Ásgeir
Höskuldsson, og hefði líklega
ejns getað haft þá á listanum
Frjálsþýðingurinn varð mjög
undirfurðulegur á svipinn, þeg-
ar hann hélt því frarn, að Leif-
ur væri hinn mætasti maður, en
með Ásgeir væri svo komið, að
hann væri víst í fimmta sæti
hjá kommum.
„Því trNúi ég aldrei“, æpti
kominn og þaut i burtu!