Vísir - 25.04.1962, Síða 13

Vísir - 25.04.1962, Síða 13
Miðvikudagur . 25. apríl 1962. VISIR 13 Vauxhall-sýning Fyrir nokkru hafði bíladeild S.Í.S. sýningu á nýjum gerðum af Vauxhallbílum hér í bæ. Eins og kunnugt er hefir S.Í.S. um- boðið fyrir þá bílategund en bíl- arnir eru framleiddir af General Motorfirmanu bandaríska. Mestan áhuga munu íslend- ingar hafa á hinum svonefnda Vauxhall Victor. Er það fimm eða sex manna fjölskyldubíll, fallega gerður með mjög ný- tízkulegu lagi. Hefir bíllinn breytt um útlit frá því í fyrra og gengur mjög í augun. Fá má hgnn með þremur eða fjórum skiptingum og er gírstöngin ým- ist í gólfinu eða á stýrinu. Þá framleiðir Vauxhall einnig aðra gerð, svokallaðan ,,Estate“ bíl, sem er ætlaður fjölskyldum sem þurfa að flytja varning með sér. Victor gerðin er fjögurra sýlindra vél og á bílnum eru fjórar hurðir. Mælaborðið er snoturt og yfirleitt má segja að bíllinn sé allur óvenju vel gerður. Revkingar — Frh. af bls. 9. I Svíþjóð hefur læknarann- sóknarstofnunin framkv. ýtar- legar rannsóknir á sambandinu milli tóbaks og lungnakrabba og hafa miklar skýrslur verið birtar um sannanir fyrir því að sígarettureykingar valda krabba meini. 1 maí 1960 efndi tóbakseinka sala Svíþjóðar í samráði við vísindamenn til alþjóðlegs fund- ar vísindamanna um vandamál- tóbaksreykinga. Síðustu ár hef ur hafizt í Svíþjóð víðtæk Dar- átta gegn reykingum unglinga. Hafa sænskir sparisjóðir, for- eldrafélög og tóbakseinkasalan staðið að baki þespi baráttu. Síðan það varð ljóst að síga- rettur eru krabbameinsvaldur hefur tóbakseinkasalan hætt að Myndsjá — Framh. af 3. 'siðu. Pétur Pálsson Þríhross (i Heims ljósi), lcikinn af Rúrik Haraids- syni, Kaupmaður Gúðmúndsen (Brekkukotsannáll), leikinn af Haraldi Björnssyni, og loks lék Helga Valtýsdóttir Toddu truntu úr Sölku Völku. „Todda vann á daginn : fiskinum og brúkaði ógurlegan kjaft, en breyttist í forkláraðan engil á kvöldin og hélt guðdómlegar ræður. Hún var slíkur mælsku- snillingur að einginn gat hlust- að á hana og látið sér standa á sama.“ Því miður getum vér ekki birt mynd af hcnni í þeim ham, sem Helga lék á sviðinu i fyrradag. En hinir heiðurs- mennirnir sjást hér í mynd- sjánni, ásamt nokkrum atriðum öðrum frá þessari eftirminni- legu leiksýningu. auglýsa sigarettur, en hefur nú þvert á móti farið að auglýsa tilkynningar um skaðsemi þeirra og sérstaklega beitir hún sér fyrir auglýsir.gum, þar sem barizt er gegn sígarettureyk- ingum unglinga. ★ í Bandaríkjunum hefur fjöldi vísindastofnana framkvæmt ýt- arlegar rannsóknir á samhengi sígarettureykinga og lungna- krabba. Ríkisstjórnin hefur enn engar sérstakar ráðstafanir gert í málinu aðrar en þær að heil- brigðismálaráðuneytið hefur séð um það að koma óyggjandi upp- lýsingum um hættuna til dag- blaðanna. Bandaríska krabba- meinsfélagið hefur hinsvegar staðið fyrir víðtækri upplýsinga starfsemi sérstaklega meðal ung linga og stúdenta með bækling- um og kvikmyndum. Vestur-þýzka stjórnin hefur enn ekki gripið til neinna sér- stakra ráðstafna nema að skatt- leggja tóbaksvörur og veita fjár framlög til heilbrigðisstofnana og félaga er berjast gegn tóbaks neyzlu. Þar eru menn þeirrar skoðunar að heppilegra sé að hefja baráttu gegn tóbaksreyk- ingum í skólum en að efna til allsherjarherferðar gegn tóbaks reykingum. Upp á síðkastið eru þessi viðhorf þó nokkuð að breytast og er þess einkum að vænta að eftirliti verði komið á með sígarettauglýsingum. Þannig er upphaf ýmissa að- gerða heilbrigðisyfirvaldanna út um heim. bað er ekki mikið sem enn hefur verið gert, en þess er að vænta að á næstu mánuðum hefjist margfalt víðtækari fram kvæmdir heilbrigðisyfirvalda í flestum löndum til að hamla gegn sígarettureykingum Aðalhndur stórkaupmanna Aðalfundur Félags íslenzkra stórkaupmanna var haldinn laug- ardaginn 14. apríl, í Þjóðleikliús- kjallaranum. Formaður féiagsins, Kristján G. Gíslason, setti fundinn, og minntist 3ja félagsmanna, sem látizt hafa á sl. starfsári, en þeir eru Guðmundur Jóhannesson, Wilhelm Jensen og Andreas J. Bertelsen. Risu fundarmenn úr sæt um til að votta hinum látnu virð- ingu sina. Fundarstjóri var kjör- inn Egill Guttormsson, stórkaup- maður, en fundarritari Jón 5. Hjörleifsson, viðskiptafræðingur. í skýrslu formanns og fram- kvæmdastjóra félagsins, um starf- semi þess á hinu liðna starfsári, var skýrt frá hinum fjölmörgu verkefnum, sem stjórn félagsins og skrifstofa hafa haft með að gera. Var m. a. sagt frá því, sem félagið hefir fengið ágengt í verðlagsmál- um, skatta- og útvarpsmálum, sölu skattsmálum, tollalækkunarmálum og mörgum fleiri málum. Jafn- framt var skýrt frá því, að í ágúst- mánuði sl. hefði félagið flutt að- setur sitt í hið nýkeypta hús fé- lagsins, Tjarnargötu 14, og væri rekstur félagsins í miklum blóma. Kom skýrt fram í skýrslu stjórnar- innar, að nauðsynlegt væri nú þegar að gera raunhæfar aðgerðir í þvf að fella niður allar hömlur í sambandi við verðlag, því að ljóst væri, að framboð og eftirspurn á vörum og þjónustu væri nú þannig háttað, að hag neytenda væri bezt Suga verklegra framkvæmda Verkfræðingafélag íslands gengst fyrir samningu bókar um söéu verklegra framkvæmda á íslandi í hálfa öld og mun hún koma út á þessu ári. Útgáfa bókarinnar er eitt af því, sem félagið gerir til þess að minnast 50 ára afmælis síns, en það var 19. þ. m. Enn fremur gengst það fyrir verkfræðinga- ráðstefnu, svo sem getið var í blaðinu nýlega, en margs annars verður síðar getið. Höfundar bókar þeirrar, sem að ofan getur, og er mikið verk, eru þeir feðgarnir Guðni Jóns- son prófessor og Jón Guðnason magister. Sá kafli bókarinnar er fjallar um sögu Verkfræðingafélags ís- landá, hefur verið gefinn út sér- prentaður fyrir afmælið. Saga verklegra framkvæmda á íslandi í hálfa öld spannar yf- ir mikið framfaratímabil og er merkisrit, sem mikil vinna hef- ur verið lögð í að gera sem bezt úr garði. KipAllTGeR RIKISINS M.s. Herjólfur fer til Vestmannaeyja og Horna- fjarðar á morgun. Vörumóttaka til Hornafjarðar í dag. FÉLAGSLÍF borgið með eðlilegri samkeppni á markaðinum. Slík samkeppni tryggir neytendum bezt kjör. Þá var og skýrt frá því að stjóm fé- lagsins hefði á prjónunum ýmsar hugmyndir og fyrirætlanir í sam- bandi við byggingu skrifstofu- og vörugeymsluhúss fyrir félags- menn, og væri það mál vel á veg komið. Ennfremur var sagt frá mjög góðri samvinnu milli Félags ísl. stórkaupmanna og stórkaup- mannafélaga á hinum Norðurlönd- unum, og væri þessi samvinna si- fellt að aukast. Þá var og fagnað hinum öra og mikla vexti Verziun- arbanka Islands h.f. á sl. ári, og var í því sambandi m. a. gerð á- lyktun, þar sem skorað var á stjórn Seðlabanka íslands og ríkis- stjórnina að veita Verzlunarbankan um nú þegar gjaldeyrisréttindi, svo að Verzlunarbankinn gæti fullnægt öllum bankaviðskiptum verzlunar- stéttarinnar. Á fundinum voru einnig gerðar ályktanir um verð- lagsmál, toilalækkanir og afnám geymslufjár á bönkum. Að lokinni skýrslu formanns og framkvæmdastjóra ias gjaldkeri félagsins, Sveinn Björnsson, stór- ’-aupmaður upp reikninga félagsins og skýrði þá. Kom greiniiega í ljós, að hagur félagsins hefur auk- izt mjög mikið á sl. starfsári, og ber að fagna því. Annar af fulltrúum F.l.S. í stjórn íslenzka vöruskiptafélags- ins s.f., Bergur G. Gíslason, stór- kaupmaður, skýrði frá starfsemi þess félags, svo og reikningum fyrir sl. ár. Guðmundur Árnason, stórkaupmaður, fulltrúi F.Í.S. í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunar- manna skýrði frá störfum sjóösins á sl. ári, svo og skýrði hann reikn- inga sjóðsins. 1 skýrslu-Guðmund- ar kom fram, að vöxtur sjóðsins er orðinn mjög mikill, og hafa mjög margir sjóðsfélagar fengið úr hon- um lán. Innborguð iðgjöld til sjóðs- ins frá stofnun hans nema nú ca. 27 millj. króna, og eru peningar Lifeyrissjóðsins ávaxtaðir í Verzl- unarbanka íslands h.f. að verulegu leyti. Úr stjórn félagsins áttu að ganga stórkaupmennirnir, Kristján G. Gíslason, sem hefur verið formað- ur félagsins undanfarin 3 ár, og var hann endurkjörinn einróma. Aðrir, sem ganga áttu úr stjórn- inni voru stórkaupmennirnir, Vil- hjáimur H. Vilhjálmsson. Sveinn Björnsson, Gunnar Ingimarsson og Jón Hjörleifsson. Sveinn Björnsson baðst eindregið undan endurkjöri, en hinir voru endurkjörnir með samhljóða atkvæðum. Hannes Þor- steinsson var kjörinn í stjórnina til 1 árs. Stjórnina skipa nú eftir- taldir menn: Kristján G. Gíslason, formaður, en meðstjórnendur eru þeir Hilmar Fenger, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Friðrik Sigurbjörns- son, Gunnar Ingimarsson, Jón Hjörleifsson og Hannes Þorsteins- son. Endurskoðendur voru endur- kjörnir samhljóða þeir Ólafur Haukur Ólafsson og Tómas Péturs- son. Vegna þess, að nú stendur yfir endurskoðun á lögum og upp- byggingu Verzlunarráðs íslands var samþykkt á fundinum að fresta kjöri fulltrúa félagsins í stjórn Verzlunarráðs íslands, þar til sið- ar, og fór því kjör þessara fulltrúa ekki fram að þessu sinni. í fundar- lok þakkaði formaður félagsins Sveini Björnssyni samveruna í stjórn félagsins og fyrir góð störf, svo og þakkaði hann fundarmönn- um góða fundarsókn og Agli Gutt- ormssyni góða fundarstjórn. STYRKUR til minningarlunda og skrúðgarða. Samkvæmt 14. gr. LXX. fjárlaga fyrir árið 1962 er ætlaður nokkur styrkur til minningarlunda og skrúð- garða. Stjórnir þeirra lunda og garða, sem óska styrks safn- kvæmt þessu, sendi umsóknir sínar til skrifstofu skóg- ræktarstjóra fyrir lok maímánaðar. Reikningar og skýrsla um störf s. 1. ár skal fylgja umsókninni. Reykjavík, 24. apríl 1962. Hákon Bjamason, skógræktarstjóri. Tilboð óskast í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðarar- porti fimmtudaginn 26. þ. m. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Sölunefnd vanarliðseigna. Útför dóttur okkar og móður minnar ÁSU GUÐMUNDSDÓTTUR ÞRÓTTUR. — Almennur félags- fundur verður haldinn fimmtudag- inn 26. þ.m. kl. 8,30 stundvíslega að Café Höll uppi. Fundarefni: 1. Framtíð félagsins. 2. Knattspyrnu- mál. 3. Handknattleiksmál. Æski- legt að flestir félagsmenn mæti á fundinum — Stjórnin. sem andaðist hinn 19. apríl sl. fer fram frá Foss- vogskirkju föstudaginn 27. apríl n.k. kl. 3 e. h. Kristín Þorvarðardóttir, Guðmundur Pálsson, Álfheiður Ingadóttir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.