Vísir - 25.04.1962, Page 16

Vísir - 25.04.1962, Page 16
^AAAA/WWWWVWVWNA VISIR Miðvikudagur 25. apríl 1962. IÞessi faliega mynd er tekin vi8 fermingu í Neskirkju einn sunnudaginn fyrir skömmu. — Prestur er séra Jón Thoraren- sen. (Ljósm. Vísis I.M.) AAAAAA/WWWVSAAAAAA. Hollenzkur sjó- maður slasast Holienzkur sjómaður slasaðist alvarlega á páskadag á ísafirði og lcomu upp sögur um það, að hann myndi hafa orðið fyrir árás. Sló óhug á menn á ísafirði út af þessu, en við lögreglurannsókn hefur það nú komið i ljós, að hér var um slys að ræða, maðurinn hafði fall- ið og höfuð hans lent á steini í fallinu. Hollenzkt skip. Þetta gerðist á páskadagskvöld- ið. Var þá haldinn dansleikur í skíðaskála ísfirðinga á Seljalands- dal. í höfninni var þá statt lítið hollenzkt flutningaskip, Lints frá Amsterdam, sem hafði verið að lesta fiskimjöl til útflutnings. Þetta er sama skipið og fyrir nokkrum dögum varð til að tefja fisklandan- ir í Ólafsvík, er skipstjóri þess reitaði að fara frá bryggju. Gengu í hæinn. Skipsmenn á hollenzka skipinu fóru á dansleikinn í skálanum. Var þar allmikil ölvun. Dansleiknum lauk rétt fyrir miðnætti og héldu mer-i til ísafjarðar. Ekki gátu allir fengið bíla og lögðu margir af stað gangandi. Meðal þeirra var einn Hollendinganna, matsveinninn á skipinu, 25 ára gamall að nafni Ritepe. Það var hann sem fannst meðvitundarlaus fyrir neðan veg- inn og var hann fluttur með sjúkra bíl á sjúkrahúsið á ísafirði. Kom í ljós að hann hafði höfuðkúpu- brotnað. Sjónarvottar hafa nú sagt lögreglunni, að maðurinn hafi sjálf- ur fallið út af vegarkantinum og komið iila niður. Matsveinninn er nú kominn til meðvitundar, en man ekkert hvern- ig atburð þennan bar að höndum. Framboð Sjálfstæðis- manna í Kópavogi Fundur um skattamálin j Gunnar Thoroddsen í kvöld heldur Sjálfstæðis- kvennafélagið Hvöt fund í Sjálf- stæðishúsinu, kl. 8,30. Mun fjár- málaráðherra Gunnar Thorodd- sen flytja þar ræðu um skatta- málin og ræða um breytingar þær sem gerðar hafa verið á skattalögunum. Þá verða frjálsar umræður, kvikmynd sýnd og kaffidrykkja. Sjálfstæðiskonur eru hvattar til þess að fjölmenna og mæta u-imdvtslega. Framboðslisti Sjálfstæðisfiokks- ins í Kópavogi við' bæjarstjórnar- kosningamar 27. maí næstkom- andi: 1. Þór Axel Jónsson, fulltrúi Álfhólsvegi 33. 2. Kristinn G. Wiuni, framkvstj., Melgerði 2. 3. Sigurður Helgason, lögfr., Hlíðarvegi 36. 4. Bjami Bragi Jónsson, hag- fræðingur, Lindarhvammi 9. 5. Högni Torfason, fréttamaður, Víðihvammi 16. 6. Aðalheiður Óskarsdóttir, skrifstofust., Þinghólsbraut 24. 7. Eggert Steinsen, verkfweðing- ur, Nýbýlavegi 29. 8. Helgi Tryggvason, kennari, Kársnesbraut 17. 9. Herbert Guðmundsson, skrif- stofustj., Víðihvammi 32. 10. Sigurður Þorkelsson, pípu- lagningameistari, Fifuhvammi 23. 11. Birgir Ás Guðmundsson, kennari, Hlíðarvegi 13. 12. Guðmundur Þorsteinsson, fasteignasali, Hávegi 15. 13. Bjami Jónsson, verkstjóri, Hlíðarvegi 30. 14. Einar Vídalín, stöðvarstj., Nýbýlavegi 205. 15. Jón Sumarliðason, bifreiða- eftirlitsmaður, Digranesvegi 12. ' 16 Amdís Bjömsdóttir, frú, Ný- býlavegi 4 A. 17. Jósafat J. Líndal, skrifstofu- stjóri, Kópavogsbraut 30. 18. Sveinn S. Einarsson, verk- fræðingur, Víðihvammi 12. Eigendaskifti a Sogu Njáll Símonarson, sem verið hef- ur fulltrúi hjá Flugfélagi íslands og séð um auglýsingar og út- breiðslustarfsemi, er nú að hætta störfum þar, til að taka að sér starf framkvæmdastjóra við ferða- skrifstofuna Sögu. Eigendaskipti hafa átt sér stað á ferðaskrifstofunni og er Ólafur Finsen, forstjóri Vátryggingarfé- lagsins, formaður hinnar nýju stjórnar hlutafélo^sins. Ferðaskrifstofan Saga hefur ver- ið rekin í þrjú ár og voru aðaleig- endur hennar Martin Petersen, Finnbjörn Þorvaldsson og Hilmar Bendtsen. Ætlunin er að reka skrifstofuna framvegis í sama húsnæði í Ing- ólfsstræti og hún hefur verið í. Ekki er fyllilega vitað enn hvenær hinir nýju eigendur taka við. Bv. Haukur varð afíahæstur togaranua síðasta ár Sá togari, sem flutti mestan afla að landi á síðasta ári, var bv. Haukur, eign fiskimjölsverk- smiðjunnar á Kletti, en afli hans varð 3240,7 lestir. í síðasta tölublaði Ægis, tíma- rits Fiskifélags Islands, er yfirlits- grein um rekstur togaranna á síð- asta ári, eftir Guttorm Árnason. Togarar landsmanna eru nú alls 47 að tölu, en sex þeirra fóru aldrei á veiðar á árinu sem leið, og einn var ekki nema 13 daga úti og ann- ar 52 daga, allir aðrir voru a.m.k. 114 daga úti. Flesta daga úti var bv. Narfi, 355 daga (þar af 218 daga á miðum), en næstur var Marz, sem var 354 daga úti (248 á miðum). Þriðji var Hafnarfjarðar- togarinn Maí, sem var 344 daga úti. Eins og fyrr segir varð Haukur . aflahæstur, því að heildarafli hans 1 j varð 3240,7 lestir á 304 úthalds- ! i dögum. Næstur kom svo Narfi, sem ; veiddi 3101 lest á 355 daga út- ; haldi og í þriðja sæti varð Ingólf- j ur Árnarson ,sem fékk 2997,6 lestir ; á 334 daga úthaldi. Fjórði í röð- 1 inni varð Harðbakur, sem fékk I 2943,1 lest á 324 daga úthaldi og í fimmta sæti varð Víkingur frá Akranesi, sem aflaði 2893,2 lestir á 312 dögum. I sjötta sæti er svo Marz ,sem fékk 2853 lestir á 354 dögum, en það skip var 1 fyrsta sæti í fyrra og hitteðfyrra. Nýtt útflutningsíyrirtæki í undirbúningi er nú stofnun nýrrar útflutningsstofnunar í Hol- landi. Standa að henni þeir Rolf Johansen heildsali og Ámi Ólafs- son, sem áður var sölustjóri Sölu- miðstöðvar Hraðfrystihúsanna í; Bandaríkjunum og sagt var upp' fyrir nokkru, ásamt öðrum sölu- stjóra sama fyrirtækis. Er hugmyndin að skrifstofa þessi i fáist við útflutning á hverju því; sem seljanlegt er 1 Evrópu. Meðal annars mun ætlunin að fást við \ fiskútflutning. Einnig er ætlunin að skrifstofa I þessi sjái um. innkaup í Evrópu fyrir íslenzkan markað. Skemmdarfýsn virðist hafa vakn- að hjá æskulýðnum fremur venju um páskana og hafa spellvirkjar víða látið til sín taka á meðan allur þorri fólks naut hvíldar og rósemi páskahelgarinnar. Méðal annars réðust þvílíkir fá- ráðlingar á nokkur hús í Hafnar- firði og brutu í þeim rúður án nokkurs tilefnis eða tilgangs. Verst léku þessir pörupiltar Vélsmiðju Hafnarfjarðar, þar sem þeir réðust bakmegin að húsinu og brutu yfir 20 rúður ásamt gluggapóstunum og álíka margar rúður í Alþýðu- brauðgerðinni. Á síðarnefnda staðn um létu þeir grjótkastið dynja á húsinu neðan úr fjöru. Áður hefur verið skýrt frá spell- virkjum unnum hér í Reykjavík, j m.a. á sumarbústöðum í Seláslandi, i svo og rúðubrotum í Gagnfræða-1 skóla Austurbæjar. Eru það undarlegar hvatir sem liggja að baki slíkum verknaði og í rauninni óskiljanlegar öllu venju- legu fólki. Nýtt blað í undirbúningi er útgáfa nýs blaðs á Selfossi, sem framsókn- armenn standa að. Er ætlunin að blaðið komi út hálfsmánaðarlega og mun það nefnast Þjóðólfur. Aðalhvatamaður að útgáfu þessari er Matthías Ingibergsson apotekari og er talið líklegt að hann taki að sér ritstjórn, þó að ekki sé það endanlega ákveðið. Auglýsingastjóri verður Óskar Jónsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.