Tölvumál - 01.12.1988, Blaðsíða 6
tækni. Nú eru félagar skráðir sem fulltrúar fyrirtækis eða stofnunar.
Aðildargjöld miðast við að fyrirtækið greiði þau og eru af þeim sökum
of há fyrir einstaklinga. Stjórnir SÍ hafa ítrekað reynt að fjölga
félögum með því að hvetja fleiri fyrirtæki til að gerast félagar og
þau sem þegar eru aðilar að skrá fleiri starfsmenn í félagið. Árangur
af þessu útbreiðslustarfi hefur varla verið merkjanlegur. Félagar eru
um 800. Það er einungis brot af öllum þeim sem nota nútíma upplýs-
ingatækni í sínu starfi. Sennilega innan við 5%. Til dæmis um hversu
illa félaginu gengur að ná til fólks má nefna að ráðgjafar og kerfis-
hönnuðir eru að mati fróðra manna 50% fleiri en allir félagar í SÍ. Þá
eru ekki taldir stjórnendur, kennarar, tæknimenn og allir þeir
fjölmörgu aðrir sem hafa áhuga á tölvum og upplýsingatækni.
Skipulagi félagsins á að breyta. Allir sem þess óska eiga að gerast
félagar sem einstaklingar fyrir lítið gjald. Fyrir gjaldið eiga þeir að
fá aðildarblaðið Tölvumál tvisvar í mánuði. Þeir eiga auk þess að njóta
betri kjara á ráðstefnum, námskeiðum og annarri þjónustu félagsins.
Fyrirtæki eiga að vera aðilar sem slík fyrir hærra gjald en einstakl-
ingar. Tekjur félagsins eiga ekki að vera næstum eingöngu af félags-
gjöldum eins og nú er. Ráðstefnur gefa mörgum félögum góðar tekjur.
Með því að koma upp einni stórri ráðstefnu á ári og tölvusýningu má
vafalaust hafa góðar tekjur. Þá á Skýrslutæknifélagið að láta meira að
sér kveða en nú er. Einu sinni voru uppi hugmyndir um að stofna
fagráð í upplýsingatækni innan vébanda SÍ, eins konar "akademíu".
Úr því hefur þó ekki orðið en hugmyndin er enn í fullu gildi. Ekki
væri heldur vanþörf á að stofna gerðardóm á vegum félagsins. Til
hans mætti senda ágreiningsmál til úrskurðar. Verkfræðingafélagið
hefur slíkan gerðardóm og er hann talinn hin mikilvægasta stofnun
sem meðhöndlar nokkur ágreiningsmál sem rísa við verklegar fram-
kvæmdir á hverju ári. Þegar deilur rísa um verksamninga, kaup
hugbúnaðar og rekstur upplýsingakerfa er engan slíkan aðila að finna
sem gæti fellt úrskurð.
Það sem undirrituðum hefur þó verið mestur þyrnir í augum er hversu
takmörkuð útbreiðsla Tölvumála er. Blaðið kemur út í 1000 eintökum.
Áskrifendum hefur lítið fjölgað á síðustu fjórum árum. Blaðið fer að
sjálfsögðu til félaga SÍ og síðan er það sent til aðila sem talið er að
eigi að láta sig varða nýjustu tækni. Áhrif blaðsins eru nokkru meiri
en upplag og stærð gefa til kynna. Ástæðan er markviss dreifing og
að það fjallar um málefni sem mikill áhugi er á. Ritnefnd vill hins
vegar ná til fleiri lesenda. Miðað við hversu almenn tölvunotkun er
orðin ætti lágmarksupplag að vera um 3 þúsund blöð. Til þess að ná
þeirri útbreiðslu verður félagið sjálft að brjóta af sér þá hlekki sem
6 TÖLVUMÁL