Tölvumál - 01.12.1988, Blaðsíða 24

Tölvumál - 01.12.1988, Blaðsíða 24
hægt er að hafa raunverulegt gagn af honum. Þetta á að vísu við um allan tölvubúnað til hvers konar nota, en verður áþreifanlegra þegar komið er að viðskiptagagnaskiptum. Helst þarf að huga að eftirfarandi: hagkvæmni, mótaðilum, öryggis- málum, lögfræðilegri hlið málsins, breyttu verklagi (rutiner), hvað á að senda, gagnaflutningsaðferðum og samræmingu gagnastaka/kóða. Hverju þessara atriða verða nú gerð viss skil, en það kemur berlega í ljós að verulegur árangur næst eingöngu með samvinnu á breiðum grundvelli. Hagkvæmni Reynslan hefur sýnt, að eitt af skilyrðum þess að viðskiptagagnaskipti milli tölva séu hagkvæm, er að allir geri hlutina nokkurn veginn eins, noti sömu staðlana við samskiptin. En í hverju er þá þessi hagkvæmni fólgin? Búast má við sparnaði í eagnaskráningu. pappír oe pappírsmeðhöndlun. í Bandaríkjunum er reiknað með 50-95% minnkun skráningarkostnaðar í sambandi við pantanir og reikninga. Svíar reikna með að skrifstofu- kostnaður við hvers kyns sendingar minnki um 20%. Við innflutning sparast þannig 540 SEK á sendingu. innanlands 10 SEK á sendingu. Hér er reiknað með að nær allir aðilar að sendingunni noti VIT, þ.e.a.s. kaupandi, seljandi, flytjandi, tollur o.fl., og sparnaður allra lagður saman. Mörg fyrirtæki gera þó ráð fyrir meiri hagnaði af bættri áætlanagerð, enda auðvelda VIT framkvæmd aðferðarinnar "á réttum tíma" (ÁRT) eða "just-in-time" (JIT). VIT auðveldar ÁRT, og þar með fást betri áætlanir, minni lagerkostnaður. stvttri afgreiðslutími o.fl. Að sjálfsögðu dugar VIT hér ekki ein sér, sem einangrað fyrirbæri, heldur verða allir þættir ÁRT-aðferðarinnar að vera í lagi. Hérlendis eru aðstæður að nokkru leyti aðrar, og er það eitt af verk- efnum nýstofnaðs vinnuhóps um viðskiptagagnaskipti, að finna hagkvæm- ustu notkunarsvið þessarar tækni á íslandi. Leiða má getum að því að tæknin nýtist helst í verslun (bæði smásölu og heildsölu), stærstu fyrirtækjunum, bönkum, flutningsaðilum og tollstjórum. Halda mætti þessum hagkvæmnishugleiðingum lengi áfram, en ég læt lesendum það eftir í bili. 24 TÖLVUMÁL

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.