Tölvumál - 01.12.1988, Page 14
einmennlngstölvnr. Einnig munu
koma fram betri og fullkomnari
hjálpartól til forritagerðar bæði fyrir
leika og lærða.
Loks er að nefna að árið 1989
verðu ár SQL á einmenningstölvur.
Bæði á netum og í einkatölvum.
Eftir 10 ár - Snotra!
Þróun núverandi
einmenningstölva hefur öll beinst að
því að þjóna þörfum skrifstofunnar
og þjónustugreinanna. Með
dagbókum, póstkerfum,
einkagagnagrunnum og aðgangi að
upplýsingum verða notendur háðarl
skrifborðsstólnum sínum og
tölvunni.
Þetta er þróun sem í raun er
andstæð hugtakinu
einmenningstölva. Þær eru að
breytast í skrifstofutölvur!
Hér á eftir verður til gamans
varpað fram hugmynd að
einmenningstölvu sem er sönn
einmenningstölva og þjónn
notandans. Af ýmsum ástæðum
hefur henni verið valið vinnuheitið
Snotra! Hvort slíkur gripur verður
nokkum tíma framleiddur skal ósagt
látið - en er nokkuð ósanngjamt að
setja sér árið 1998 sem mark?
Tölvan verður á stærð við
sígarettupakka og við munum tala
við hana um skynj ara ábarkakýlinu.
Hún talar við okkur um vaka sem
staðsettur er í eyra okkar. Tölvan
mun hafa álíka reikniafl og stærstu
tölvur í dag og vera tengd símakerfi
og gagnabönkum um gerfihnetti.
Minni verður a.m.k. gígabæti og lítill
geisladiskur geymir allt sem þarf.
Með sérstakri vörpunartækni
mun hún geta varpað myndum á
gleraugu okkar s.s. landa- og
bæj arkortum og öðmm myndrænum
upplýsingum sem ekki er hægt að
koma til skila á mæltu máli. Með
samskiptum við gerfihnött getum við
séð staðsetningu okkar og fengið
leiðbeiningar frá tölvunni um þá leið
sem við emm að fara, bæði á
myndrænan og mæltan hátt.
Með samskiptum um gerfihnött
við símakerfi mun hún einnig gagnast
okkur sem símatæki, og hafa aðgang
að einka- og almennum
gagnabönkum.
Hún mun ekki þurfa nákvæmra
skipana við vegna þróunar í neural-
nettækni og gerfigreind, heldur geta
ráðið í það sem vlð segjum.
Lokaorð
Ágætu lesendur. Hér hefur verið
stiklað á stómm og reynt að spá í
spilin um þá þróun sem verða kann
á næstu ámm. Reynslan hefur þó
kennt okkur að varlega skyldi fara í
spádóma um þróuntölvutækninnar.
A faster computer means
that the waiting will be
faster
More memory means
larger programs which in
turn means longer
processing times which
again leads to the need
for faster computers
14 TÖLVUMÁL