Tölvumál - 01.12.1988, Síða 19

Tölvumál - 01.12.1988, Síða 19
Lína Guðlaug Atladóttir: MENNTUN STARFSMANNA í HUGBÚNAÐARIÐNAÐI Lína Guölaug Atladóttir er viðskipta- frœöingur og starfar sem markaösráö- gjafi hjá Félagi íslenskra iðnrekenda. Eftirfarandi grein er byggö á erindi höfundar, sem flutt var á ráöstefnu Skýrslutœknifélags íslands 26. október s.l. þar sem fjallaö var um hugbúnaö- ariönaö á íslandi, stööu hans og horfur. Hugbúnaðariðnaður á íslandi hefur verið vaxandi iðngrein á tímum upplýsingatækni og hugbúnaðarhúsum fjölgað jafnt og þétt. í dag eru um 20 fyrirtæki innan Félags íslenskra iðnrekenda og hátt í 40 fyrirtæki til viðbótar starfa í þessari iðngrein. Þar að auki starfa margir starfsmenn innan tölvudeilda fyrirtækja við hugbúnaðargerð og viðhald. Helsta auðlind hugbúnaðarfyrirtækja er að sjálfsögðu sá mannskapur sem þau hafa yfir að ráða og skiptir því mjög miklu máli að starfs- mennirnir séu bæði færir og vel menntaðir. Afkastageta hugbúnaðar- fyrirtækja fer að mestu leyti eftir þekkingu og færni vinnuaflsins og í könnun sem Félag íslenskra iðnrekenda gerði árið 1987 kom í ljós að 60 - 70 % rekstrargjalda innan hugbúnaðarhúsanna var launakostn- aður starfsmanna. Fjárfesting í starfsmönnum er því mikil og arðsemi þeirrar fjárfestingar mjög mikilvæg fyrir fyrirtækin. íslenskir for- ritarar hafa hingað til verið taldir vel samkeppnisfærir við erlenda keppinauta, en það má heldur ekki gleyma því að þegar framleiðslan er fullbúin er leiðin aðeins hálfnuð, eftir er að koma vörunni á markað og selja hana. Markaðsþekking er því í raun ekki síður mikilvæg innan hugbúnaðarhúsa. Þátttaka notandans í kerfisgreiningunni skiptir einnig miklu máli og þarfir neytandans eiga að sitja í fyrirrúmi við hugbúnaðrgerð. íslensk hugbúnaðarhús þurfa því að búa yfir fjölbreyttri þekkingu. Á mynd 1 er yfirlit yfir menntun starfsmanna innan hug- búnaðarhúsa á íslandi. (Heimild: Könnun Félags íslenskra iönrekenda áriö 1987.) TÖLVUMÁL 19

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.