Tölvumál - 01.12.1988, Page 21

Tölvumál - 01.12.1988, Page 21
sem flokkast undir "önnur menntun" og það er einnig stærsti hópurinn sem sinnir sölustörfum. Heildarfjöldi þeirra sem starfar á íslenska tölvumarkaðnum hefur eins og fyrr segir farið mjög vaxandi síðustu ár með aukinni tölvuvæðingu fyrirtækja. í dag má ætla að 3 - 400 manns starfi innan hugbúnaðarhúsanna, en heildarfjölda á tölvumarkaðnum verður að byggja að nokkru leyti á ágiskunum. í Skýrslutæknifélagi íslands eru hátt í 1000 meðlimir og starfa líklega um 600 þeirra beint á tölvumarkaðnum. Þar að auki má gera ráð fyrir 2 - 400 starfsmönnum sem vinna bæði í tölvudeildum og við sölu á hugbúnaði og vélbúnaði. Gróflega má því reikna með 1200 manns á þessum markaði. Til samanburðar má geta þess, að í lauslegri könnun Félags íslenskra iðnrekenda, sem gerð var fyrir nokkrum árum, um heildarfjölda starfsmanna á íslenska tölvumark- aðnum, voru niðurstöður þær, að árið 1980 taldi þessi markaður rúmlega 400 starfsmenn, en árið 1984 hafði starfsmönnum fjölgað um 100 % eða í rúmlega 800 manns. Að lokum ætla ég að taka sérstaklega fyrir hvernig þróun aðsóknar í tölvunarfræði Háskóla íslands hefur verið og hversu margra tölvu- menntaðra starfsmanna má vænta á markaðinn í náinni framtíð. INNRITUN OG ÚTSKRIFT í TÖLVUNARFRÆÐI HÁSKÓLA ÍSLANDS 1978 - 1988 Frá því kennsla hófst í tölvunarfræði í Háskóla íslands hafa innritast tæplega 750 manns, en um 170 útskrifast. Um fjórðungur þeirra sem hófu nám í tölvunarfræði á þessu tímabili hafa útskrifast. Ákveðnar skýringar geta verið á þessu lága hlutfalli af útskrifuðum nemendum. Þegar tölvuvæðing hófst fyrir alvöru í íslenskum fyrirtækjum var mjög mikil eftirspurn eftir tölvumenntuðu fólki. Það er því mjög líklegt að nemendur hafi hafið störf á vinnumarkaðnum í miðju námi TÖLVUMÁL 21

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.