Vísir - 26.04.1962, Page 7

Vísir - 26.04.1962, Page 7
Fimmtudagurinn 26. apríl 1962. VISIR 7 MINNING Magnús Kjaran stórkaupmaður Útför Magnúsar Kjaran stór- kaupmanns er gerð í dag, en hann andaðist skyndilega að heimili sínu hér í bæ þriðjudaginn 17. þ. m. tæpra 72 ára að aldri. Magnús var fæddur 19. príl 1890 í Vælugerði í Flóa. Foreldrar hans voru Tómas Eyvindsson í Dúðu, Jónssonar í Sauðtúni í Fljótshlíð Eyvindssonar og kona hans Sigríður Pálsdóttir, hreppstjóra á Selalæk, Guðmunds- sonar. Magnús ólst upp í foreldrahúsum hér 1 Reykjavík, ásamt stórum systkinahóp og var snemma settur til starfa. Hann lauk fjögra ára praktísku verzlunarnámi eins og þá tíðkaðist, og sat einnig í Verzl- unarskóla Islands fyrsta starfsár skólans. Kom síðar í Ijós, að þessi námsundirbúnhigur reyndist hinn traustasti grundvöllur, er fang- brögðum var beitt við stærri og meiri verkefni síðar á lífsleiðinni. Hér er þó sá undirbúningsskóli 2nn ótalinn, sem mótaði Magnús neira en flest annað í æsku, að íans eigin sögn. Hann gekk ungur ingmennafélagshreyfingunni á lönd. Innan vébanda hennar hasl- iði hann sér völl, svo sem títt var im marga vaska drengi í byrjun aldarinnar. Áhugamálin og verk- efnin voru mörg og háleit. ís-1 lenzka þjóðin skyldi rétta sig úr kútnum. Ný tækni tekin í þjónustu atvinnuveganna og landið ræktað. Þó var sú hervæðing hugans, sem þessi sveit ungmennafélaga ástund- aði, ef til vill enn þýðingarmeiri. Drengskapur var dyggð og ætt- jarðarástin var glædd. „Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið, boðorðið.........það er að elska, byggja og treysta á landið", var boðskapur, sem þessir ungu menn vildu flytja. Einkunnarorð ung- mennafélaganna var heldur engin tæpitunga eða hálfkveðin vísa, heldur skilorðslaus tjáning og skuldbinding: Islandi allt. Það fer ekki á milli mála, að þeir sem kynntust Magnúsi, veittu því athygli, að hann bjó alla ævi að þessum hugsjónum, sem hann tileinkaði sér ungur og voru hon- um síðar leiðarljós á lífsleiðinni. II. Þegar Magnús Kjaran lézt var hann löngu orðinn þjóðkunnur maður og bar margt til: Andlegt og líkamlegt atgervi, mikil og rík félagshygga og frábærir skipulags- hæfileikar. Allir þessir eiginleikar eiga sinn þátt í, að eftir honum var tekið og verksvið hans várð óvenju vítt og margþætt, þegar litið er um farinn veg. Magnús var verzlunar- og kaup- sýslumaður af lífi og sál. I þessu efni var hann þó í senn bæði af gamla og nýja skólanum. Staðgóða vöruþekkingu og verkkunnáttu hafði hann í veganesti frá lær- lingsárunum, en hin sívökula við- leitni hans að vinna að bættum verzlunarháttum og reyna nýjar og hagkvæmar leiðir í viðskiptum, virtist honum beinlínis í blóð bor- in. Af fyrirtækjum þeim, er Magn- ús veitti forstöðu um skemmri eða lengri tíma, skulu aðeins fá nefnd. Hann gerðist meðeigandi í Verzl. Liverpool 1918 og rak hana sem einkaeigandi frá 1925—30. Er það mál manna, sem til þekktu, að á þessum árum hafi Magnús bein- Iínis gerzt brautryðjandi um bætta vörudreifingu og snyrtimennsku f allri afgreiðslu. Árið 1930 stofnaði Magnús sína eigin heildverzlun, sém jafnan síðan hefir verið kennd við nafn hans. En erfiðir tímar fóru í hönd. Heimskreppan mikla reið yfir og í kjölfar hennar, hér á íslandi, sigldu gjaldeyrishöft og einkasölur. Þetta voru erfiðir tímar fyrir unga og lítt gróna verzlun, enda reyndist svo, að ýmsar þær vörur, er Magnús hugðist verzla með, urðu háðar hinum ströngustu inn- flutningshöftum, eða innflutningur skipti við Svíþjóð. Magnús Kjaran kom þar nokkuð við sögu sem stjórnarforipaður Sænsk-ísl. verzl- unarfélagsins.h.f., en það fyrirtæki hafði allmikil viðskipti við sænsk firmu. Magnús var um langt ára- bil sænskur konsúll hér á landi. Að lokum nefni ég hér fyrir- tæki, er Magnús hafði einnig af- skipti af sem stjórnarformaður um margra ára skeið, en það er Bók- fellsútgáfan h.f. Að sjálfsögðu hafa viðskiptasjónarmið ráðið tals- Magnús Kjaran. þeirra var falinn ríkiseinkasölum. En Magnús hélt velli og fyrirtæki hans varð brátt velmetið, enda komu þá í góðar þarfir bjartsýni hans og hugkvæmni. Um þetta leyti tók Magnús einnig að sér framkvæmdastjórn Sambands bak- arameistara og leysti það starf af hendi með mikilli prýði, svo sem vænta mátti. Áratugurinn eftir 1930 var allri verzlun hér næsta andstæður, en 1939 dró svarta bliku á loft. Síð- ari heimsstyrjöldin brauzt út og miklir erfiðleikar voru fyrirsjáan- legir á sviði utanríkisverzlunarinn- ar og voru margir uggandi um sinn hag, enda sumum starfsemi Landsverzlunarinnar frá fyrra striði enn í fersku minni. Þá gerð- ist það, fyrir forgöngu Verzlunar- ráðsins, að menn hófust handa um r “ fljóta ekki sofandi að feigðarósi. Ástæðulaust væri að bíða eftir því, að hið opinbera þyrfti að leysa vandann með stofnun nýrrar landsverzlunar. Afleiðing þessara ráðagerða varð stofnun Innflytj- endasambandsins, sem á ófr-iðar- árunum annaðist megnið af mat- vöruinnflutningi til landsins. A- samt ýmsum öðrum kaupsýslu- mönnum átti Magnús góðan þátt í að koma þessum samtökum á fót og var hann valinn fyrsti fram- kvæmdastjóri og gegndi því starfi um margra ára skeið. Ég hygg, að stofnun Innflytjendasambandsins verði jafnan talin merkur atburð- ur, þegar allar aðstæður eru hafð- ar I huga, og að menn þeir, er þar voru að verki, verði taldir hafa unnið gott og þarft verk. I lok sið- ustu styrjaldar hófust mikil við- verðu um stofnun þessa fyrirtæk- is. Mér er þó nær að halda, að af öðrum þræði hafi hér verið um hugðarefni Magnúsar að ræða, sem jaðraði við að geta talizt tóm- stundaiðja hans eða „hobby“, því Magnús var mikill þókamaður, sem ekki aðeins átti margar og dýrar bækur, heldur las þær líka og naut þeirra. III. Er ég kom heim frá námi, réðst ég til Verzlunarráðs Islands og kynntist ég þá fyrst Magnúsi Kjar- an persónulega sem einum af for- ystumönnum verzlunarstéttarinn- ar. Vissulega voru menn þeir, er ég þar starfaði með, flestir miklir einstaklingshyggjumenn og var Magnús þar enginn undantekning. Hitt varð mér einnig fljótt ljóst, að hann hafði jafnframt til að bera mikla og ríka félagshyggju. Hann skildi vel nauðsyn þess, að hags- munahópar treystu samtök sín og ynnu saman þar sem það átti við. j Munu þetta að nokkru áhrif frá j starfi innan ungmennafélaganna. Ýmis trúnaðarstörf voru Magn- úsi falin fyrir stétt sína. Þannig1 átti hann lengi sæti í stjórn Verzl- j unarráðs íslands og Félags Isl. stór \ kaupmanna, var virkur og atkvæða ; mikill þátttakandi í svokölluðum verzlunarþingum, sem Verzlunar- j ráðið gekkst fyrir um nokkurt. skeið. Eru mér og mörgum öðrum i enn í minni hvatningarræður þær, er Magnús flutti stétt sinni á þess- um samkomum, enda var hann bæði málsnjall og kjarnyrtur. Magnús lét skólamál verzlunar- fólks mikið til sín taka. Honum | var vel ljóst, að mennt er máttur og að vel menntuð og víðsýn verzl unarstétt er þjóðinni lífsnauðsyn. Hann var um skeið formaður skólanefndar Verzlunarskóla ís- lands, og hygg ég, að í hinu nýja skólahúsi, sem nú er risið af grunni, megi sjá nokkurn árangur af starfi hans á þeim vettvangi. -— Félagshyggja Magnúsar kom fram á fleiri sviðum en beinlínis innan vébanda verzlunarstéttarinn- ar, þótt það verði ekki rakið hér. Þó skal þess getið, að íþrótta- hreyfingin átti hauk í horni, þar sem hann var, enda góður íþrótta- maður á yngri áruni og iðkaði raunar ,,golf“ til hins síðasta. Um skeið átti Magnús sæti í stjórn Rauða Kross íslands og bæjarfull- trúi var hann eitt kjörtímabil hér í Reykjavík. IV. Ég gat þess hér að framan, að Magnús Kjaran hefði verið búinn frábærum skipulagshæfileikum. Hygg ég, að í sambandi við þá eig- inleika verði hans lengst minnzt. Hann var, svo sem alkunnugt er, framkvæmdastjóri Alþingishátíðar- innar 1930. Er það mál manna, að j honum hafi farið það starfúrhendi með ágætum. Vert er þó að hafa í huga, að þótt ekki séu liðnir marg- ir áratugir frá þeim mikla atburði, var hér margt með meiri frum- býlingshætti en nú er. Gerði það að sjálfsögðu verkefni Magnúsar og samstarfsmanna hans erfiðara, en því meira ber að meta og þakka það starf, er Ieiddi til þess, að há- tíðin varð Iandi og þjóð til sóma. Að verðleikum varð Magnús margvíslegs heiðurs aðnjótandi fyrir þessi störf sín. V. Árið 1915 kvæntist Magnús Kjaran heitmey sinni, Soffíu. Er hún dóttir Franz sýslumanns Siemsen. Varð þeim fjögurra barna auðið: Birgir, alþingismaður, kvrmtur Sveinbjörgu Blöndal frá Siglufirði, Þórunn, gift Pétri Ólafs- syni, forstjóra og bókaútgefanda, ! Sigríður, gift Sigurjóni Sigurðs- j syni, lögreglustjóra í Reykjavík, og Eyþór, verzlunarmaður. Ég vil ljúka þessum kveðjuorð- um mínum með því að votta frú Soffíu og fjölskyldu hennar samúð mína. Minningin um góðan dreng iifir. Oddur Guðjónsson. Aðalfundur Sjálfstæðis- manna í Árnessýslu Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins ,,Óðins“ Selfossi var haldinn 14. þ.m. Þorsteinn Sigurðsson, formað ur flutti skýrslu fráfarandi stjórn- ar. Axel Jónsson, fulltrúi fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins flutti erindi um skipulagsmál Sjálf stæðisflokksins. Þá voru samþ. lagabreytingar samkvæmt breytt- um skipulagsreglum flokksins. Fé- lagssvæði Sjálfstæðisfélagsins „Óð ins“ var ákveðið Gaulverjabæjar- hreppur, Sandvíkurhreppur, Hraun gerðishreppur, ViIIingaholtshrepp- ur og Selfoss. í stjórn voru kosnir: Þorsteinn Sigurðsson, Selfossi, form. Vigfús Einarsson, Seljatungu, Einar Sig- urjónsson, Selfossi, Bjarni Ólafs- son, Króki og Runólfur Guðmunds son, Ölversholti. Varastjórnarmenn: Skúli B. Á- gústsson, Selfossi, Sigurður Guð- i mundsson, Selfossi, Einar Eiríks- sori, Miklaholtshelli, Páll Jónsson, Selfossi og Gunnar Sigurðsson, Seljatungu. Endurskoðendur: Einar Pálsson, Selfossi og Sigurður Ásbjörnsson, Selfossi Þá fór fram kosning fulltrúa í fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Árnessýslu og kjördæmisráð Sjálf- stæðisflokksins í Suðurlandskjör- dæmi. Að loknum aðalfundarstörfum flutti Sigurður Óli Ólafsson, alþing ismaður yfirlit yfir gang helztu þingmála, voru síðan almennar um ræður og tóku margir til máls. Kom í ljós hjá ræðumönnum mikill áhugi fyrir Stofnlánadeild landbún- aðarins og var landbúnaðarráð- herra sérstaklega þökkuð forusta hans í því mikla hagsmunamáli bændastéttarinnar. Dekkmenn bundnir Enskur skipavörukaupmað- ur hefir látið gera öryggisút- búnað, sem á að geta hindr- að, að fiskimenn taki út, þeg- ar þeir eru að starfa á þilfari í sjógangi og illviðri. Maður þessi er búsettur i útgerðarbænum Peterhead, og hann fór að hugsa um ör- yggi sjómanna þar, þegar þrjá unga menn tók fyrir borð við mjög svipuð skilyrði á síð- asta vetri. Lét hann þá útbúa ólar, sem spenna skal um brjóstkassa manna, en síðan er nælonlína notuð til að Krækja annars vegar í þessa „spennitreyju“ og hinsvegar i stjómpall skipsins, stýríshús eða annað á skipinu, sem hentugt er til þessa. Maður sá, sem hér um ræð- ir, Robert Buchan að nafni, er hluthafi í nokkrum fiskiskip- um í Peterhead, og var hann svo sannfærðui uin, að hug- mynd sín væri rétt og mundi bera góðan árangur, að hann lét útbúa „treyjur" þessar handa mönnum á ofangreind- um skipum. Reynsla er ekki fengin á út búnaði þessum, er hann hefir vakið mikla athygli viða á fiskibæjum Bretlands, eink- um þar sem hin minni skip eru gerð út og hættumar em því meiri fyrir menn, sem á þiljum vinna í misjöfnu veðrí. Útbúnaðurinn vegu> aðeins um 4 pund fyrir hvem mann, og mun ekki vera til trafala við vinnu. i n í i,i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.