Vísir - 26.04.1962, Side 10

Vísir - 26.04.1962, Side 10
7 ’SIR Fimmtudagurinn 26. apríl 1962. w Fiskifræðinfprnir — Frtí. af bls. 9 FISKIFRÆÐINGARNIR HAFA BRUGÐIZT. — Af öllu því sem þú hefur sagt verður það greinilegt, að þú telur að fiskifræðingarnir eigi sök á því hvernig komið er, bæði að rækjan hefur eyðzt og að eyðilegging hefur orðið á uppeldisstöðvum. — Já, ég tel að framkoma þeirra í þessu máli sé mjög al- varleg og skil ekki hverskonar andi ríkir meðal þeirra. Þeir hefðu einmitt eins og Bjarni Sæmundsson átt að hafa for- göngu um friðunaraðgerðir, en ekki að halda verndarhendi yfir rækjuveiðunum jafn skaðsam- legar og þær hafa verið. Þeir hafa heldur ekki hugsað um að koma á staðinn fyrr en í ótíma og kynna sér þetta vandamál frá fyrstu hendi, heldur hafa þeir Iátið við það sitja að rann- saka rækjuna „á skrifstofum“. Þeir eru heldur ekki í sam- bandi við sjálfa fiskimennina til þess að geta notfært sér þá þekkingu sem þeir hafa á þess- um málum eftir langa reynslu. Þetta er allt mjög alvarlegt mál, það er í rauninni sama kyns og það að geta ekki tekið af skarið og friðað þó ekki væri nema um stuttan tfma á ári hverju eitthvað af hinum miklu hrygningarsvæðum fyrir Suður- og Vesturlandi í stað þess að halda þar áfram taum- lausri rányrkju um hrygningar- tímann, sem efalaust á rfkan þátt í hrörnun fiskstofnsins kring um Iandið okkar. ViSskiptavinum vorum í Hafnarfirði viljum vér benda á það, að Sögfræðgssbifsfda Árnq Grétars Finnssonar ,Strandgötu 25, tðafnarfirði, sími 51177, * / hefur nú tekið við umboði fyrir allar deildir félagsins. Væntum vér þess að hinum nýja umboðs- manni verði sýnt sama traust og hinu frá- farandi umboðsmanni hr. V. Long hefur not- ið um árabil. aqlslands? Ingólfstræti 5. Sími 11700. KJORSKRA fyrir Garðahrepp til sveitastjómar- og sýslunefndarkosninga liggur frammi í skrifstofu hreppsins til 22. maí n.k. Kærufrestur er til 2. júní og skulu skriflegar kærur hafa borist skrifstofu hreppsins fyrir þann tfma. Sveitastjórinn í Garðahreppi. OLIVETTI Aðstoðarmaður Óskum að ráða aðstoðarmann, 18 — 20 ára, til starfa við sölu og dreifingu á Olivett-skrifstofuvélum. Um- sækjandi þarf að hafa lokið Verzlunarskólanámi, eða hliðstæð menntun. Áhugi á vélum og kunnátta í ensku og einhverju Norðurlandamáli æskileg. Hér er um framtíðarstarf að ræða, því vélvæðing á skrifstofum er að aukast. Olivetti verksmiðjurnar, stærstu skrif- stofuvélaframleiðendur í Evrópu, koma stöðugt með nýjar gerðir véla á markaðinn, bæði „mekaniskar". og „eletróniskar". Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, óskast sendar til vor fyrir 28. þ. m. Fyrirspurnum ekki svarað i síma. G. Helgason & Melsted hf. Hafnarstræti 19 Rauðarárstíg 1 Aðalfundur Nemendasambands Verzlunarskóla Islands var nýlega haldinn. Fráfarandi formaður Nem- endasambandsins, Sigurbjörn Þor- björnsson, skrifstofustjóri, greindi frá því að stofnað hefði verið fuíl- trúaráð innan sambandsins, sem skipað er einum fulltrúa frá hverj- um árgangi, er brautskráðst hefur frá Verzlunarskóla Islands. Árgang ur sá, er lýkur burtfararprófi frá skólanum í ár, er 55. í röðinni, en fyrsti árgangurinn brautskráðist árið 1907 og voru í honum 10 nem- endur. Þá var og skýrt frá fjár- öflun meðal eldri nemenda til stuðnings byggingasjóði verzlunar- skólans. Hið árlega nemendamót sam- ndsins verður að þessu sinni haldið í Lídó þann 30. apríl og er búizt við fjölmenni, sérstaklega af- mælisárganga. Stjórn Nemendasambands Verzl- unarskóla Islands var öll endur- ' jörin ,en hana skipa Sigurbjörn Þorbjörnsson, formaður, Njáll Sí- monarsón, varaformaður, Ólafur Briem, ritari, Örn Valdimarsson, gjaldkeri og Kristinn Hallsson. WAit FAGNAÐ SIM HETJUM Siglfirzku skíðamennirnir, sem þátt jku í landsmótinij á Akureyri, komu heim á annan páskadag eins og komið hefur fram í fréttum útvarpsins. — Hlutu þeir 14 fyrstu verðlaun af 20 mögulegum. Á bryggjunni var mættur fjöldi fólks til þess að fagna þessum fræknu sigurvegurum. Bæjarstjóri hélt ræðu fyrir minni íþróttamanna og þakkaði þeim framúrskarandi árangur og jafnframt færði hann þeim 10 þús. kr. gjöf frá bæjarstjórn Siglufjarðar. Guðmundur Árna- son þakkaði fyrir hönd Skíða- félagsins. Lúðrasveit Siglufjarðar lék nokkur lög á bryggjunni. Hér á Siglufirði munu 58 af hundraði bæjarbúa hafa gengið Skíða- landsgönguna. ÞRJ Kaldan kokkteil Það verður ekki um Banda- ríkjamenn sagt, að þeir reyni ekki allar leiðir til að koma framleiðslu sinni á framfæri við kaupendur. Nýjasta nýtt þar í landi er að fá Martini-kokkteil frystan. Hann er frystur eins og „íspinni“, og eiga neytendur að sleikja hann eða bryðja molann — eftir því hvað þyrstir þeir eru. /jb róttir - framh. af 2 síðu Þjálfaranámskeið eru nú haldin bæði í Danmörku og Noregi og þangað verða nú sendir 3 menn. Pétur Bjarnason er á förum til Sví- þjóðar á námskeið, sem haldið verð ur 5. til 7.r. aí n.k., en Pétur mun dvelja nokkru ler.gui þar í landi. Pétur hefur unnið geysimikið kennslustarf hjá Víkingi og öðrum fremur átt þátt í að vinna félagið upp , handknatJeiknum. Til Dan- merkur fara á þjálfaranámskeið tveir menn. beir Matthías Asgeirs- 50n, sem ei þjálfari Keflvíkinga, og , Þórarinn Eyþórsson úr Val. Fara t þeir til Vejle, jg sækja námskeið 1 íþróttaskólans þar í ágústmánuði, n.k. „Taugastríð tengdamömmu“ hefir nú verið sýnt átta sinnum í Iðnó við mikinn fögnuð og þykir flestum sprenghlægilegt . ekld síður en sú „Tannhvassa“. Næsta sýning verður í kvöld. > Halldór Pétursson listmálari teiknaði þessa skopmynd úr ') „Taugastríðinu“ og sýnir hún leikarana (frá vinstri): Brynjólf i Jóhannesson, Arndísi Bjömsdóttur og Guðmund Pálsson. Fulbright-styrkir Menntastofnun Bandaríkjanna á íslandi (Fulbright-stofnunin) aug- lýsir eftir umsóknum um ferða- styrki, er hún hyggst veita íslend- ingum til náms við háskóla eða aðrar æðri menntastofnanir í Bandaríþjunur á námsárinu 1962- ’63. Styrkir þessir munu nægja fyrir ferðakostnaði frá Reykjavík til þess bæjar, sem næstur er við- komandi háskóla og heim aftur. Með umsóknum skulu fylgja af- rit af skilríkjum fyrir því, að um- sækjanda hafi verið veitt innganga í háskóla eða aðra æðri mennta- stofnun í Bandaríkjunum. Einnig þarf umsækjandi að geta sýnt, að hann geti staðið straum af kostn- aði við nám sitt og dvöl meðan hann er í Bandaríkjunum. Þá þarf umsækjandi að ganga undir sér- stakt enskupróf á skrifstofu stofn- unarinnar og einnig þarf hann að sýna heilbrigðisvottorð. Umsækj- endur þurfa að vera íslenzkir rikis- borgarar. Umsóknareyðublöð er hægt að fá hjá Menntamálaráðuneytinu, hjá skrifstofu Menntastofnunar Banuaríkjanna, Laugaveg 13, 2. h., og hjá Upplýsingaþjónustu Banda- ríkjanna sama stað á 5. hæð. Um- sóknir skulu sendar í pósthólf nr. 1059, Reykjavík fyrir 18. maí n.k. SAMKEPPNI um skipulag miðbæjar, i Hafnorfirði Ósóttar tillögur og skilatrygging er afhent í Bygg- ingaþjóriustu Arkitektafélags íslands að Laugavegi 18A til laugardagsins 5. maí n. k. 1 Starfsmaður dómnefndar.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.