Vísir - 11.05.1962, Síða 1
52. árg. — Föstudagur 11. maí 1962. — 105. tbl.
Hér sést þegar áhöfnin á Elgo kemur á bát að borðstokknum á Þór. Skipsmenn neituðu
a ðvera lengur um borð í skipinu, þar sem þeir töldu það vera að sökkva.
(Ljósm.: Skúli K. Gíslason.)
Skilrúm brast, óttuðust
væri að sökkva
Árangurs-
laus lest
í gær kafaði froskmaður í
Reykjavíkurhöfn í leit að Einari
Árnasyni skipstjóra á v.b. Gullþór
GK 285, en án árangurs.
Til Einars sást síðast sl. föstu-
dagskvöld niður við höfn. Hann var
þá á gangi við Grandagarð skammt
þaðan sem skip hans lá.
Á miðvikudaginn lýsti lögreglan
eftir Einari, en engar upplýsingar
hafa borizt um hann og þykir lík-
legast að hann hafi dottið í höfn-
ina og drukknað. *
Froskmaður leitaði í gær allt í
kringum bryggjuna þar sem v.b.
Gullþór lá á föstudagskvöldið, en
sú leit bar ekki árangur.
í morgun hafði ekki verið tekin
nein frekari ákvörðun um leit að
Einari, en samt búizt við að eitt-
hvað verði leitað áfram.
3 Jíldin var fremur stygg í nótt
sem leið og erfitt að fást við hana,
og gekk bátunum misjafnlega, en
margir munu hafa fengið dágóðan
afla. Straumar eru miklir. Sfldin
vciðist aðallega undir Jökli.
★
Af Akranesbátum fékk Skírnir
1500, Sigurður AK 900, Höfrungur
830 og Sigurfari 600 tn, en þeir
komu inn í gær, e ekki von á fleir-
um í dag. Nokkrir munu hafa fengið
slatta í nótt. Fjórir bátar frá Akra-
nesi, sem hættir eru við netin, fóru
til síldveiða f gær, og má búast við
'að 11 — 12 bátar af Skaganum verði
brátt á síldveiðum.
Allmargir bátar hafa landað í
Reykjavík og Hafnarfirði.
★
í Reykjavík var verið að Ianda
árdegis um 10.000 tunnum úr
9 skipum, þar með talinn afli
Hallveigar Fróðadóttur, sem
var með 1800 — 2000 tunnur.
að Elgo
Varðskipið Þór kom ki. 7 í
morgun til Vestmannaeyja
með norska síldarflutninga-
skipið Elgo. Dró hann það
alla leið upp að bryggju.
Elgo bað um aðstoð í gær-
dag, þar sem skipsmenn ótt-
uðust að skipið væri að far-
ast. Héldu menn í fyrstu að
leki hefði komið að skipinu
og sjór farið í lestamar og
óttuðust að það væri að
sökkva. En þegar lestar skips
ins vom opnaðar I morgun í
Vestmannaeyjahöfn, kom í
ljós að enginn sjór var í skip-
inu.
Það sem gerzt hafði var
aðeins að skilrúm sem gekk
þvert yfir lestar skipsins
hafði gefið sig og var ger-
ónýtt.
Hér er vafalaust um algera
björgun (total björgun) að
ræða, þar sem öll áhöfn Elgo
fór frá borði og neitaði að
fara aftur um borð í skipið
til að aðstoða dráttinn. Og
voru þá f jórir varðskipsmenn
undir forustu Leós Karlsson-
ar 2. stýrimanns sendir um
borð. Þýðir það að Landhelg-
isgæzlan mun fá greitt frá
tryggingum matsverð skips-
ins.
Ónýt vara
Síldin f skipinu er mjög illa
farin, hefur hún slegizt og velzt
til og er öll í mauki. Vestmanna-
eyingar munu ekki fást til að
kaupa slíka vöru nema fyrir eitt-
hvað lítilræði.
I>að var rétt fyrir hádegi í
gær, sem varðskipið Þór er þá
var statt fyrir suðurströndinni
heyrði neyðarkallið frá hinu
norska skipi. Gaf skipstjórinn á
Elgo upp staðarákvörðunina
63,17 N og 15,30 V, en Þór mið-
aði skipið jafnframt og komst þá
að því að staðarákvörðunin var
ekki rétt, reyndist skeika um 29
mílur.
Hér sést hvar Þor kemur dragandi með síldartokuskipið Elgi inn í hafnarmynni Vestmannaeyja.
um tékknesk vatnshjól
í þremur stórum virkjunum
VÍSIR
Skipt verður um vatns-;
hjól í túrbínum þriggja
virkjana hér á landi í vor,
Grímsár virkjun á Aust-
fjörðum, Mjólkárvirkjun
og Reiðhjallavirkjun á
Vestfjörðum. Vélarnar eru
smíðaðar hjá fyrirtæki í
Tékkóslóvakiu og eru sér-
fræðingar komnir austur
til þess að hafa eftirlit með
uppsetningu vatnshjólsins
í Grímsárvirkjuninni, en
vinna við þetta mun nú
hafin.
Skilaði ekki orkunni
Þegar Grímsárvirkjunin var
tekin í notkun fyrir um 4 árum
kom í ljós, vélarnar skiluðu ekki
því raforkumagni, sem gert var
ráð fyrir, og var það 200 kw,
minna en vera ætti, 2600 kw,
en gert var ráð fyrir, að það
skilaði 2800 kw.
Nú er það jafnan svo, þegar
um slíka samninga er að ræða
sem hér, og gallar koma í ljós,
að viðkomandi fyrirtæki fær
tækifæri til að leiðréttinga eða
Framhald 3 jI.s 5.
Inn á höfnina
Þór kom á staðinn, sem er um
140 mílur SA af Vestmannaeyj-
um, þremur klst. síðar, hafði þeg
ar samband við skipverja á Elgo
og óskuðu þeir eftir að yfirgefa
skipið. Veður var 7 vindstig á
norðaustan og allmikill sjói svo
að gaf yfir skiþið. Var nú skipið
Framh. á 5. síðu.