Vísir - 11.05.1962, Síða 16
VÍSIR
Föstudagur 11. maí 1962.
ierkjasolo fyrir
Ekknasjóð
Hin árlega merkjasala Ekkna-
sjóðs íslands verður n.k. sunnu-
dag.
Merkin verða afhent í Sjálfstæð-
ishúsinu uppi frá kl. 9 árdegis. —
nefndin biður foreldra í Reykjavík
að leyfa börnum sínum að selja
merki fyrir þetta góða málefni.
Undanfarin ár hefur sala þessara
merkja gengið ágætlega vegna
dugnaðar barnanna. Fé því sem inn
kemur ár hvert er jafnan úthlutað
til þeirra ekkna, sem helzt hafa
fjárstyrks þörf, og hafa þessir pen-
ingar oft komið að góðum notum.
En til að þeir komi að gagni sem
nemur þarf fólk líka að bregðast
vel við þegar börnin leita á náðir
þess og kaupa af þeim merki. Hér
er um gott málefni að ræða og
mannúðarstarf, sem almenningur
ætti að leggja lið.
Nýr bótur
í fyrradag kom til Hafnar í
Hornafirði nýr vélbátur, sem smíð
aður hafði verið í Vestmannaeyj-
um.
Bátur þessi, sem heitir Haraldur
og hefir einkennisstafina SF-70, er
36 lestir á stærð, frambyggður.
Hann mun verða látinn stunda tog
veiðar tii að byrja með.
Miklar framkvæmdir standa
nú yfir hjá Vatnsveitu Reykja-
víkur. Er nú verið að vinna að
því að bora fyrir vatni hjá svo-
nefndum Bullaugum rétt fyrir
austan Grafarholt í Mosfeiis-
sveit, undirbúa nýja leiðslu og
gera mjög stóran nýjan vatns-
geymi i Öskjuhlíðinni rétt hjá
gamla Golfskálanum. Nú þegar
hafa tvær holur verið boraðar
hjá Builaugum, sem gefa svo
..H !■«*■ I" MWI
mikið vatn að mikill Iækur renn-
ur frá þeim meðan honum hefur
ekki verið veitt í pípur.
Myndin sem hér fylgir var
tekin í morgun, í Vatnsgeymis-
stæðinu hjá gamla Golfskálan-
um, þar sem unnið hefur verið
að því að sprengja djúp gróp í
kiettana, en geymirinn á að vera
að mikiu Ieyti neðanjarðar.
Þorbjöm efstur
Kvennamorð í Alsír
Dagurinn í gær var einn mesti
blóðsúthellingadagur í hryðjuverka-
j sögu OAS í Alsír. Voru alls 55
drepnir, fiestir skotnir til bana á
J götum úti, og voru þar af 20 konur.
1 Vekur grimmdaræði OAS vaxandi
hrylling, einnig meðal fólks af
Evrópustofni, ekki síst vegna þess,
að æði þeirra bitnar nú jafnt á kon-
um sem körlum, en þær hafa þar til
fyrir nokkrum dögum fengið að
fara óáreittar ferða sinna.
Samtímis og þessi hryðjuverk
voru unnin í gær var hert á ráð-
stöfunum til að stemma stigu við
þeim. í Oran var Erópufólki bann-
að að aka í bifreiðum nálægt hverf
um Múhameðstrúarmanna og þeir
varaðir yið að fara inn í Evrópu-
hverfin. Haldið var áfram húsleit
og handtökum. í einu hverfi voru
allir karlmenn 17 — 75 ára teknir:
til yfirheyrslu. Gert var upptækt
mikið magn af vopnum og skotfær-
um — og frönskum einkennisbún-
ingum, sem OAS-menn höfðu kom-
izt yfir í ránsferðum.
► Otlagar hverfa heim
Fyrstu útlagarnir frá Alsír sem
dvalizt hafa í Marokko komu heim
í gær. Þar munu vera um 40.000
serkneskir útlagar, en í Tunis um
110.000. Starf er hafið til þess að
greiða fyrir heimkomu þessa fólks.
^ Múhammed V á fundi
De Gaulle
Mohammed V konungur í Mar-
okko er í opinberri heimsókn í
Frakklandi og ræddi í gær í 5 klst.
við De Gaulle forseta — um Alsír.
Þeir ræðast við í dag á ný.
Brauzt inn í „vitlaust" hús
Það gerist nú spenn-
andi hver verður afla-
hæsti bátur í Grindavík
og þar með á landinu. í
Stal raforku
Það þykir vafalaust nokkrum tíð-
undum sæta, þegar menn gerast
sekir um að stela rafmagni! En þó
hefur þetta gerzt oftar en einu sinni
og oftar en tvisvar hér í Reykjavik
á tiltölulega skömmum tíma.
í fyrradag var maður nokkur
dæmdur í sakadómi Reykjavlkur
fyrir þessar sakir. Ákærður hafði
tengt rafleiðslu við raflögn í húsi
sínu með þeim hætti að raforku-
eyðslan kom ekki fram á mæli.
Með þessu athæfi sínu taldist á-
kærður hafa gerzt sekur um þjófn-
að. Einnig hafði hann brotið gegn
reglugerð um raforkuvirki, þar sem
hann hafði ekki heimild til að tak-
ast á hendur rafvirkjun.
Ákærði var dæmdur í 3 mánaða
fangelsi skilorðsbundið og til máls-
kostnaðargreiðslu.
gærdag var Áskell hæst
ur með 914 tonn og 480
kíló og Þorbjörn næst-
ur, með 911 tonn og 150
kíló.
í gærkvöld kl. 8 kom
Áskell inn með 2 tonn
og 400 kíló og er nú með
916 tonn og 880 kíló.
Klukkan hálf ellefu í
gær kom svo Þorbjörn
inn og var með 10 tonn
og 600 kíló.
Þorbjörn er því orðinn
4 tonnum og 770 kílóum
hærri, með 921 tonn og
650 kfló. Bátarnir eiga
nú eftir fjórar lagnir, en
þeir hætta veiðum þann
15. maí. Eins og augljóst
er af því hvað munurinn
Þórarinn Ölafsson, skipstjóri
á Þorbirni, er nú kominn tæp-
um 5 tonnum yfir harðasta
keppinaut sinn.
er lítill, er engan veginn
útséð um hvor verður
hærri þegar vertíð lýk-
ur.
Nýlega henti það óhapp einn
ágætan borgara Reykjavíkur að
brjótast inn í vitlaust hús. Ætlaði
inn í sitt eigið hús, en ienti óvart
i öðru.
Til að skýra þetta mál betur
þarf að taka fram, að maður þessi
hafði eignazt sumarbústað í ná-
grenni bæjarins, eða nánar til tekið
í Elliðakotslandi. Og það sem enn
merkilegra var, að hús þetta hafði
hann eignazt án þess að hafa séð
það.
Einn góðan veðurdag á dögunum,
það var skömmu eftir flóðin miklu
þar uppfrá, lagði sumarbústaðareig
andinn af stað til að skoða þessa
nýju eign sína. Og af því að það
er alltaf leiðinlegt að ferðast ein-
samall, tók hann frænku sína með
sér. En líklega hefur verið orðið
skuggsýnt þegar þau voru þarna á
ferð, því áður en varði duttu þau
ofan í forarvilpu, þar sem aur og
eðjan náði þeim í mittisstað. Ekki
varð þetta þeim samt að fjörtjóni,
heldur brutust þau upp úr pyttin-
unij að vísu forug mjög, blaut og
illa til reika, en samt ekki ver
haldin en svo að þau gátu haldið
ferð sinni áfram.
Og skammt undan var líka hinn
langþráði sumarbústaður, svo nú
var um að gera að hraða för sinni
Framhaid á bls. 5.
Frjálslyndir og
kratar unnu á
Úrslit i bæjarstjórnarkosningun-
um í Engiandi og Wales urðu þau,
sem við var búizt, að íhaldsflokk-
urinn glataði fylgi, en Frjálsiyndi
flokkurinn og Verkalýðsflokkurinn
unnu á.
íhaldsflokkurinn tapaði 531 sæti
og meirihlutaaðstöðu í 36 bæjum,
en hinir tveir flokkarnir bættu að-
stöðu sína nokkuð jafnt. Frjáls-
lyndi flokkurinn bætti við sig 339
sætum og Verkalýðsflokkurinn
335.
Sárafátt á kommúnistafundi
„Oft var þörf en nú er nauð-
syn, að vel sé smalað á kjördag-
inn“, var kommúnista nokkrum
að orði, þegar hann gekk út úr
Austurbæjarbíó f gærkvöidi að
loknum almennum kjósenda-
fundi kommúnista.
Ástæðan fyrir því, að maður-
inn gat ekki orða bundizt, var
sú, að fundurinn var dæmalaust
daufur og fundarsókn skammar
lega lítil. Sýndi hún ljóslega, að
almenningur er að átta sig á
hinu glæsiiega og þjóðhættulega
athæfi kommúnista og snýr við
þeim bakinu.
Og í morgun staðfestir Þjóð-
viijinn, hve fundurinn var fá-
sóttur, því að á mynd þeirri,
sem blaðið birtir af honum á
fremstu síðu, blasa við auð sæti
í tugatali. Má nærri geta, að
ljósmyndarinn hefir reynt að
„skreyta“ fundinn eins og hægt
var en meira gat hann ekki en
þarna kemur fram.