Tölvumál - 01.05.1989, Síða 4
Tölvumál maí 1989
Frá
formanni
Halldór Kristjánsson,
formaður SÍ
Sú hugmynd hefur komið
fram að SÍ setji á fót
tœkninefndir sem fjalli um
t.d. löggjöfum tölvumál,
höfundarrétt, samrœmingu
á þýðingum forrita,
tölvusamskiptamál, netmál,
EDI ogEFTPOS.
Beðist afsökunar!
í síðasta pistli frá formanni var þess
getið að ráðstefna um hagnýt tölvu-
samskipti yrði haldin 25. apríl og
félagsmenn og lesendur beðnir að
taka frá tíma.
Af ófyrirsjáanlegum ástæðum var
ekki hægt að halda ráðstefnuna á
þessum tíma. Vegna þess aðdrag-
anda sem er að útgáfu Tölvumála
var þó ekki hægt að breyta þessu og
því fór sem fór. Ekki er við neinn að
sakast nema mig og bið ég félags-
menn velvirðingar á þessu.
Ráðstefna um hagnýt
töivusamskipti ákveðin!
Nú er það frágengið að þessi
áhugaverða ráðstefna verður haldin
miðvikudaginn 17. maí að Hótel
Sögu. Hún hefstklukkan 13.15 eins
og fram kemur í auglýsingu í þessu
blaði. Er það von mín að sem flestir
láti sjá sig. Rétt er að benda þeim,
sem ætla að sækja ráðstefnuna, á að
bóka þátttöku hjá framkvæmdastjór-
anum okkar, Helgu Erlingsdóttur, í
tæka tíð.
Hópferð Skýrslutækni-
félagsins á NordDATA
ráðstefnuna
Eins og áður hefur verið getið um
verður farin hópferð á vegum
Skýrslutæknifélagsins á NordDATA
ráðstefnuna, sem að þessu sinni
verður haldin í Kaupmannahöfn.
Brottför er að morgni 17. júní og
heimkoma föstudaginn 23. júní.
Ráðstefnan sjálf hefst með sam-
komu að kvöldi 18. júní. Ráðstefn-
unni lýkur upp úr miðjum degi,
miðvikudaginn 21.júní. Það gefast
því tveir heilir dagar í Kaupmanna-
höfn til að njóta lífsins og skoða
borgina. Á þessum tíma skartar
borgin sínu fegursta og búast má við
veðurblíðu allan tímann. Það er því
tilvalið að hafa makann (og bömin!)
með í ferðina og draga sig um stund
út úr amstri dagsins og njóta fræðslu
og hvfldar í Kaupmannahöfn.
Á ráðstefnunni verða haldin erindi
um fjölmörg mjög áhugaverð efni
og verða Þorgeir Pálsson og Haukur
Oddsson með erindi af okkar hálfu.
Það hlýtur að vera memaður okkar
að styðja við þá félaga með fjöl-
mennri þátttöku af hálfu íslendinga.
Verðinu á ferðinni er stillt í hóf, en
það er um 40.000 krónur fyrir ein-
stakling í tveggja manna herbergi.
Ferðaskrifstofan Úrval sér um
bókanir en allar frekari upplýsingar
og aðstoð við skráningu á ráðstefn-
una veitir Helga Erlingsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SÍ. Mikilvægt er að
skrá sig til þátttöku fyrir 12. maí, til
að njóta afsláttar af þátttökugjaldi.
Tækninefndir hjá SÍ?
Á vegum IHP (Alþjóðasamtaka um
upplýsingatækni) starfa tækni-
nefndir sem fjalla hver um sig um
afmarkað svið tölvu- og upplýsinga-
tækni. Er á þeirra vegum öflugt starf
sem ekki takmarkast eingöngu við
fundarsetur heldur er einnig unnið
mikið á milli funda.
Sú hugmynd hefúr komið fram að
setja á fót tækninefndir innan
Skýrslutæknifélagsins sem fjalla um
ákveðin afmörkuð efni á sviði upp-
lýsingatækni. Nefndimar munu
hittast reglulega en vinna þess á
milli að upplýsingaöflun. Þær gætu
síðan staðið að ályktunum og
tillögugerð til opinberra aðila og
þeirra sem málefnin varða hverju
sinni auk greinaskrifa í Tölvumál og
fjölmiðla.
Starfssvið nefndanna gætu verið
margvísleg og má nefna sem dæmi
löggjöf um tölvumál, höfundarrétt,
samræmingu á þýðingum forrita,
tölvusamskiptamál, netmál, EDI,
EFTPOS og svo mætti lengi telja.
Stjóm SÍ hefur þessi mál til umfjöll-