Tölvumál - 01.09.1989, Side 15
Vélbúnaður:
Vegna sameiningar Sjóvár og
Almennra fyrr á árinu eru til tvær
tölvur: IBM S/38 og IBM S/36 og
eru þær samtengdar með X.25
sambandi. Þannig geta allir
skjáimir unnið á hvorri vélinni sem
er og notendur geta prentað á þann
prentara sem næstur er hverju sinni.
Diskarými er samtals 3,8 GB, stærð
tölva 16MB og2MB. Tengdir
skjáir og prentarar losa 200 stk., þar
af eru ca. 50 í fjarvinnslu. Ein
Macintosh og 2 PC-vélar eru í
notkun hjá félaginu.
Kerfishugbúnaður:
Control Program Facility (CPF) á
S/38 er fjölnotendakerfi með
innbyggðum gagnagrunni,
fyrirspumaforriti (QUERY),
hönnunarkerfi fyrir skjámyndir
(SDA) o.fl.
Forritunarmálið er RPG-III og
Control Language (CL).
ROBOT/38 eróþreytandi ólaunaður
tölvari sem sér um gangsetningu
reglulegra vinnslna hvenær sem er
sólarhringsins alla daga ársins.
RPG-V er aðkeyptur ritþór fyrir
RPG-III sem leyfir frjálsan innslátt
á RPG-III skipunum.
Helsti
notendahugbúnaður:
Fyrir ca. 4 árum hófst endurskrift
vátryggingakerfisins og var fyrsti
hluti þess tekinn í notkun fyrir 3
árum. Því verki er nú að mestu
lokið. Auk þess eru í notkun
hefðbundin bókhaldskerfi,
verðbréfakerfi og fleira.
Tölvumál september 1989
Hugbúnaðurísmíðum:
Auk nýja vátryggingakerfisins er
nýtt tjónakerfi í smíðum sem verður
tilbúið í haust og fer í fulla notkun
1. janúar 1990.
Allur nýr hugbúnaður sem snýr að
þjónustu við viðskiptavini er í raun
eitt samhæft kerfi sem getur: gefið
út vátryggingarskírteini, afgreitt
tjón, tekið við og látið af hendi
peninga og gefið út: víxla, ávísanir,
krítarkortasamninga og skuldabréf.
Þróunarhugbúnaður:
Sá þróunarhugbúnaður sem fylgir
S/38 hefur reynst vel og ekki talin
ástæða til að svo komnu máli að
auka við hann.
Framtíðarhugmyndir/
stefnaítölvumálum:
Unnið er að því að koma
sívinnslukerfunum yfir í eitt alhliða
vátrygginga-, tjóna og fjármálakerfi
og er megintilgangur þess að öll
þjónusta við viðskiptavini gangi
hraðar og öruggar fyrir sig og
upplýsingaflæði félagsins verði
heilsteyptara.
Vonast er til að innan tveggja ára
verði kominn búnaður við tölvu
félagsins sem geti geymt afrit af
myndum og skjölum þannig að
uppfletting á þeim geti farið fram í
sama kerfi og önnur gagnavinnsla.
Þegar þetta er orðinn veruleiki er
pappírslaust umhverfi á góðri leið.
Annaðathyglisvert:
Félagið byrjaði fyrst
vátryggingarfélaga að tengjast
viðskiptavinum sínum með
tölvusambandi og gera þeim þannig
kleift sjálfum að skrá viðskipti sín.
Fyrirhugað er að auka
tölvutengingar við hina ýmsu
viðskiptavini og samstarfsaðila í
framtíðinni.
Kynningátölvumálum
fyrirtækja:
SJÓVÁ -
ALMENNAR
tryggingar hf.
Staðsetning:
Aðalskrifstofan er á tveim stöðum
þ.e. á Suðurlandsbraut 4 og
Síðumúla 39 í Reykjavík en flyst á
einn stað, Kringluna 5 núna í haust.
Starfsmenn sem vinna við
tölvumál:
Deildarstjóri: SturlaÞengilsson.
Rekstur: 1 tölvari og einn við
kennslu og þjónustu við notendur og
tölvudeild. Hugbúnaður: 7
kerfisfræðingar, þar af einn sem
leysir tölvara af. Alls eru þetta 10
starfsmenn í tölvudeild.
Stýrikerfið er að mestu leyti í
umsjón deildarstjóra en í viðhald
þess fer samtals ca. 20% af fullu
starfi.
15