Vísir - 28.05.1962, Page 1

Vísir - 28.05.1962, Page 1
VISIR Úrslitin úti á landi * 16. s. Vakað á kosninganótt | 7. síða Stórsigur Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík Bætti nær 3.000 atkvæðum við sig. Kommúnistar tapa Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn sigur í borgarstjórnarkosningunum hér í Reykjavík. Fékk flokkurinn hreinan meirihluta í borgarstjórn og einum fulltrúa betur. Bætti hann við sig 2.746 atkvæðum frá síðustu kosningum, alþingiskosn- ingunum 1959. Sitja nú níu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjóm en alls eiga þar 15 fulltrúar sæti. Hefir Sjálfstæðisflokkurinn haldið hinu óvenju mikla fylgi sínu frá bæjarstjórnarkosning- unum 1958 nær því óskertu, þótt hann eigi nú einum manni færra f borgarstjóminni. Alþýðuflokkurinn og Framsóknarmenn bættu við sig atkvæðum ef borið er saman við bæjar- stjómarkosningarnar 1958. Fengu Framsóknarmenn nú 2 bæjarfulltrúa . Kommúnistar töpuðu atkvæðum en héldu þó þremur borgarfulltrúum. Hvorki Þjóðvarnarflokkurinn né bindindismenn komu manni að. Geir Hallgrímsson. Auður Auðuns. Nú Bæjarstj. 1958 Alþingi 1959 Alþýðufl. 3961 atkv. (1) 2860 (1) 5946 atkv. Framsókn 4709 - (2) 3227 (1) 4100 — Sjálfstæðisfl. 19220 - O) 20027 (10) 16474 — Kommúnistar 6114 - (3) 6698 (3) 6543 — Þjóðvöm 1471 1831 2247 Bindindismenn 893 — 36897 greiddu atkvæði af 41780 á kjörskrá eða 88,3%. Gísli Halldórsson Gróa Pétursdóttir. Stjómarstefnunni vottaB traust í morgun snéri Visir sér til forsætisráðherra Ólafs Thors, Bjarna Benediktssonar for- manns Sjálfstæðisflokksins og Geirs Hallgrímssonar borgar- stjóra og bað þá að segja áiit sitt á úrslitum bæjar- og sveit- Úlfar Þórðarson. Guðjón Sigurðsson. ‘Meirihluti borgarstjómar. stjórnarkjörsins, sem fram fór í gær. Fara ummæli þeirra hér á eftir. „Kosningaúrslitin eru mér mik- ið gleðiefni. Víðast hvar hefir Sjáifstæðisflokkurinn ýmist haldið velli eða bætt miklu við sig. Reykjavík er stórsigur. Úrslitin eru sigur þeirra, sem í kjöri voru, en jafnframt sigur stjórnarstefnunnar. Bezt sést þetta á samanburði úrslitanna 1958 og nú. Þá höfðum við óvin sælustu stjórn, sem setið hefir, að bandamanni, því auðvitað urðu óvinsældir hennar okkur til framdráttar. Nú hafa Sjálfstæðismenn bíir ið ábyrgð á ríkisstjóminni í nær 3 ár. Úrslitin eru þessvegna líka traustyfirlýsing til ríkis- stjómarinnar, sem mér er ljúft og skylt að þakka“. Ólafur Thors. „Ég er mjög ánægður með úr- slitin í Reykjavik og sama má segja um úrslitln í heild, þótt misjafnlega hafi gengið á ein- stöku stöðum. Þegar meta skal stjórnmálaþýðingu kosninganna verður að minnast þess, sem Sjálfstæðismenn margoft tóku fram fyrir þessar kosningar í bæjarstjórnarkosningum 1958 var kosið undir allt öðrum skil- yrðum en nú. Þá var vinstri stjómin í öilu sínu veldi og hvarvetna um land vildu menn nota tækifærið til þess að lýsa vantrausti á hana. Þess vegna urðu þær kosningar Sjálfstæð- ismönnum óvenju hagstæðar. Eftir fall vinstri stjórnarinnar gerbreyttust viðhorfin. Að svo miklu leyti sem nú er kosið um sveitarstjórnarmál á hverjum stað er kosið um núverandi stjórnarstefnu. Mega Sjálfstæð- ismenn vel una vlð þann dóm, Framh. á 5. síðu. Þór Sandholt. Birgir ísl. Gunnarsson. Þórir Kr. Þórðarson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.