Vísir - 28.05.1962, Síða 7

Vísir - 28.05.1962, Síða 7
Mánudagur 28. maí 1962. VISIR Vakað yfír tölum Hreinasti barnaleikur UM EITT leitið í nótt hittum við frú Sigþrúði Pálsdóttur, þar sem hún sat og hlustaði á kosn ingaúrslit. Hún er vestan af ísafirði ,en hefur búið í Reykja vík að undanförnu og unnið á skrifstofu hjá Kron, sl. 16 ár. — Hafið þér mikinn áhuga fyrir stjórnmálum? — Ég hef mjög gaman af þeim. Ég hef raunar aldrei ver ið flokksbundin, en fylgt Sjálf- stæðisflokknum. Ekki sam- þykki ég allt sem hann gerir, en mér virðist hann alltaf hafa meiri málsbætur en aðrir, þeg- ar eitthvað ber út af. — Hafið þér hlustað oft áð- ur á talningu? — Ég hlusta alltaf á taln- ingu. Þegar hún stendur fram á dag, hef ég með mér útvarp í vinnuna. Samstarfsfólki mínu líkar það mjög vel, því að þá er alltaf hægt að fylgjast með kosningunum inni hjá mér. — Þeir eru væntanlega margir ósammála yður hjá Kron? — Það veldur mér ekki minnstu óþægindum að vinna hjá kommúnistafyrirtæki. Ég fæst ekki við hluti sem koma stjórnmálum við. — Hvernig er útlitið? — Útlitið er gott núna. jMér leizt þó ekkert á blikuna i dag, þegar ég hitti Úlfar Þórðarson augnlækni. Hann sagði mér að kjörsókn væri ennþá mjög lítil og myndi skaða Sjálfstæðis- flokkinn ef svo héldi áfram. Það virðist þó hafa rætzt úr þessu og nú er ekki annað að gera en að bíða og vona að hamingjan verði okkur hlið- holl. — Hvað er athyglisverðast við þær tölur sem komnar eru? — Mér þykir það afleitt að kommúnistar virðast ekki ætla að tapa neinu að ráði. Það er þó ekki gott að segja hvernig þetta fer enn. — Hvað er athyglisverðast við kosningaundirbúninginn? — Þetta er hreinasti barna- leikur miðað við kosningar á ísafirði í gamla daga. Hitinn var óskaplegur þar. Frú Sigþrúður við útvarpið. Ekki annað en bíða rólegur í Eskihlíð 22 A heimsóttum við Einar G. Sveinbjörnsson, fiðluleikara. Við komum þar klukkan langt gcngin eitt og hittum hann og konu hans, Hjördísi Viihjálmsdóttur, þar sem þau sátu og hiustuðu á kosningaúrslit í útvarpinu. —. Er þetta mjög spennandi? — Ég hef engar áhyggjur af þessu lengur. Það er ekkert annað að gera en bíða rólegur. Ég er viss um að þetta gengur allt vel. Einar er með í höndunum stóra leirkrús og við spyrjum hann hvað hann geri við hana. — Ég drekk kaffi úr henni. Þegar maður drekkur kaffi all- an daginn, er ómögulegt að vera með venjulega litla bolla. — Hefur þú mikið starfað fyrir þessar kosningar? — Það er nú líklega. Ég sá mér ekki annað fært en að spila á kosningafundinum í Háskóla- bíóinu á föstudaginn, til að tryggja alveg að Sjálfstæðis- flokkurinn héldi meirihlutanum í borgarstjórn. Ég efast ekkert um að það hafi haft tilætluð á- hrif. — Hefur þú oft hlustað á talnin0u áður? — Ég hef alltaf haft gaman af slíku og því gert það oft. Ekki hef ég þó gert það alltaf. — Hvað finnst þér merkileg- ast við þessar kosningar? — Ég vorkenni þessu fólki, sem er að henda atkvæðinu sínu á lista fanatiskra bindind- ismanna, eða eitthvað þaðan af verra. Það ætti að virðast aug- ljóst að það er varla von á nokkurri stjórn af viti frá þess- um litlu flokksbrotum, sem hér ei'u í minnihluta. Framtíðarstarf Ungur, reglusamur maður getur fengið fram- tíðarstarf. — Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á töku ljósmynda. Tilboð sendist Vísi strax merkt „Starf 166“. Iðnrekendur FÉLAG ÍSLENZKRA IÐNREKENDA heldur almennan félagsfund í dag, mánudaginn 28. maí. Fundarefni: Tillögur um breytingar á kjarasamningum við Iðju. — Fundurinn verður haldinn í Leikhúskjall- aranum og hefst kl. 16.30. Félagsstjórnin. Sjómannadagsráð efnir til hófs í Lídó sunnudaginn 3. júní n.k. kl. 19 í tilefni af 25. sjómannadeginum. Nánari upplýsingar og miðapantanir í aðalumboði Happdrættis DAS, Vesturveri, sími 17757. Dökk föt. STJÓRNIN. Áskriftarsími Vísis er 1 16 60 Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík gengst fyrir samkomu í kirkjunni í kvöld klukkan 8.30. 1. Orgelssóló: Sigurður ísólfsson kirkjuorganisti. 2. Ávarp: séra Þorsteinn Björnsson. 3. Einsöngur: Björn Þorgeirsson. 4. Erindi: Páll V. G. Kolka læknir. 5. Orgelsóló: Sigurður Isólfsson kirkjuorganisti. 6. Blandaður kór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Sigurðar ísólfssonar. Lokaorð flytur formaður safnaðarins Kristján Siggeirsson kaup- maður. ALLIR VELKOMNIR. Systir mín og frænka okkar ÁSTA MAGNÚSDÓTTIR fyrrverandi rikisféhirðir andaðist í sjúkrahúsi 26. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mið- vikudaginn 30. þ. m. kl. 10.30 f. h. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Pétur J. Hoffmann Magnússon, Guðrún Tryggvadóttir, Sigrún Tryggvadóttir. nsssm Einar og Hjördís. Krúsin stendur á stólnum. Jarðarför mannsins míns ÞÓRÐAR EINARSSONAR bókhaldara, Kambsvegi 36, fer fram frá Fríkirkjunni miðvikudaginn 30. þ. m. kl. 1.30 e. h. Blóm vinsamlegast afbeðin. — Fyrir mína hönd og barna hans Margrét Þorsteinsdóttir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.