Vísir - 13.06.1962, Side 3
Miðvikudagur 13. júní 1962.
VbSIR
:
ls V s V...............................
i '
«■<
<•■•.•:. v« • y ;
. !...........................................................................................................................
->^Pv ^2
p»
Á öðrum degi hvítasunnu
efndi Hestamannafélagið Fákur
til kappreiða að venju. Kappreið
ar þessar voru þær 40., sem fé-
lagið efndi til. Þær fyrstu fóru
fram sunnudaginn 9. júlí, en þá
hafði félagið nýlega fengið
fengið skeiðvöll sinn við Eiliða
ár fyrir 150 kr. leigu á ári.
Aldrei fyrr hafði sézt annað
eins fólksstreymi á vegum
þeim, er inn úr bænum liggja,
enda veður mjög gott og áhorf-
endur voru hátt á þriðja þús-
und.
Fyrstu kappreiðar sumarsins
1923 voru haldnar annan dag
hvítasunnu, og sfðan hefur
hann orðið fastur dagur, þó
nokkrum sinnum hafi út af
brugðið. Kappreiðarnar hafa
oftast verið mjög vel sóttar,
enda lengi vel fyrsta útiskemmt
un Reykvíkinga.
Fjöldi manns lagði leið sina
inn á skeiðvöli s.l. mánudag til
að fyigjast með kappreiðunum,
enda virðist hestamennskan
eiga vaxandi fylgi að fagna hér
f höfuðstaðnum.
Hvarvetna mátti sjá fólk
streyma að, margir höfðu tekið
fram gömlu reiðbuxurnar og
sportblússuna, einnig höfðu
margir meðferðis vasapela, sem
að állti margra er ómissandi
hlutur á kappreiðar og má þvi
búast við því, að sumir hafi
komið glaðir og reifir heim.
Klukkan rúmlega tvö til-
kynnti þulurinn að kappreiðarn-
ar færu að hefjast og fyrst yrði
keppt f skeiði. Bað hann menn
að veðja VEL og MIKIÐ.
Einna mestur virtist spenn-
ingurinn vera f 350 m. stökki.
Strax og veðbankinn ieyfði að
veðja á hlaupin dreif að fjöldi
fólks og þulurinn kallaði f magn
arann að nú væri mikili mögu-
Ieiki á því að geta orðið stór-
ríkur og máli sínu til sönnunar
sagði hann, að f folahlaupinu
hefðu þeir, sem veðjað hefðu
25 kr. á Faxa fengið til baka
250 kr.
Eins og fyrr er getið veðjuðu
mjög margir, því auðvitað vildu
sem fæstir missa af því að geta
orðið stór-iríkir. Þegar hlaupinu
lauk svo var tilkynnt, að þeir
sem veðjuðu á réttan hest hefðu
auðgazt um heilar TlU krónur.
Á þessum kappreiðum var
margt nýstárlegt m. a. var sýnt
hindrunarhiaup og naglaboð-
reið.
í hindrunarhlaupinu áttu hest
arnir að stökkva yfir fjórar
hindranir, og var ekki iaust við
að sumum gengi hálfskrykkjótt,
einna mesta athygli vakti Hvell-
ur, knapi Kristján Ágústsson.
í naglaboðhlaupi háðu þrjár
sveitir með sér harða og tví-
sýna keppni, er lauk með sigri
Vesturbæinga. Var ekki laust
við að mönnum gengi hálf illa
að hitta nagiana, annars var
keppnin eins og fyrr segir mjög
tvísýn og lögðu menn sig alla
fram m. a. datt einn af baki i
miðjum hita leiksins.
Mikla athygli vakti sýning
fjögurra barna undir stjóm
Rosemarie Þorleifsdóttur. Börn-
in framkvæmdu alls kyns æfing
ar á hlaupandi hesti og hlutu
að lokum mikið lof áhorfenda.
Þulurinn átti mjög erilsaman
dag, þurfti auk kynninga á
kappreiðunum að auglýsa mik-
ið böm i vanskilum, en mikla
kátínu vakti það, þegar þulur-
inn skipaði lögreglunni að
skjóta hundgrcy, er var á
hlaupabrautinni.
Kappreiðarnar stóðu á sjöttu
klukkustund og má því búast
við að margir hafi snúið heim
með góða matarlyst eftir
skemmtiiegar kappreiðar.
Sprett úr
spori