Vísir


Vísir - 18.06.1962, Qupperneq 9

Vísir - 18.06.1962, Qupperneq 9
Mánudagur* 18. júní 1962. VISIR 55 Þagnið, dægurþras og rígur u Ræða forsætisráðherra Ólafs Thors af svölum Alhingishússins í gær TV"OKKRUM sinnum hefir sá ' heiður fallið mér í skaut að ávarpa þjóðina héðan af svölum Alþingishússins á lýðveldisdegin- um. Ég hefi þá ævinlega talið mér skylt og verið það ljúft að minn- ast mannsins, sem svo háan sess skipar í hugum íslendinga, að þeg ar lýðveldið var endurreist, var þessi sjálfri sér sundurþykka þjóð öll á einu máli um það að velja til þess hátíðlega og helga atburð ar fæðingardag hans. Án efa hefir það hent mig eins og marga aðra á slíkri hátíðarstundu, þegar gleði og fögnuður og þakklæti ríkir í sérhverju íslenzku hjarta yfir end- urheimt sjálfstæðis og fulls frels- is, að taka djúpt í árinni og spara Jóni Sigurðssyni ekki lofið. Mönn- um er þá eðlilega minnisstæðara, að foringinn var mikill maður en hitt, að hann var mennskur mað- ur. En auðvitað vita þó allir, sem kynnt hafa sér sögu hans, t.d. les- ið ævisögu hans eftir dr. Pál Egg- ert Ólason, að hann var ekki goð- um borinn ,ekki algóður og alvit- ur, heldur góður og vitur. 1 þess- um efnum breytir það engu, þótt lögð hafði verið rækt við að draga fremur en dr. Páll Eggert Ólason gerði fram í dagsljósið eitthvað, er talið kann að verða Jóni Sig- urðssyni til hnjóðs. Það breytir engu, sem máli skiptir þeirri mynd Jóns Sigurðssonar, sem geymd er og geymast mun í hugum allra ís- Iendinga, er þekkja ævistarf hans. Hans verður ævinlega minnst með þakklæti og virðingu. © gf einhver spyrði mig, hvað mér fyndist mestu varða í íslenzku þjóðlífi í dag, myndi mér nokkur vandi á höndum, en þó svara með því að taka mér í munn orð eins hins mikilhæfasta höfðingja, er þetta land hefir byggt. Ég vildi ávarpa þjóðina, en ekki sízt þá, sem lengi árs sitja innan veggja Alþingishússins, með þessum orð- um: „Þagnið, dægurþras og rígur“, — en þau eru, svo sem margir vita, upphaf hins stórbrotna og kröftuga og fagra kvæðis Hannes- ar Hafstein á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Hannes Hafstein vissi mæta vel, að „dægurþras og rígur“ var og hafði lengst af verið mikill böl- valdur í þjóðlífi íslendinga, og þá ekki sízt á sviði stjórnmálanna. Hann á þó að sjálfsögðu ekki við það, að menn hætti að skýra mál- geti allir verið sammála, ekki við j það, að menn hætti að skýra mál- 1 stað sinn, rökræða ,sækja og verja ; vígin, deila, jafnvel deila á. Þetta i er fylgifiskur, höfuðeinkenni lýð- ræðisins. Það, sem Hannes Hafstein á við, er, að málefnin gleymist ekki fyr- ir ádeilunum ,að menn hætti að láta tilganginn helga meðalið, að menn séu vandir að málflutningi sínum, temji sér að hafa það, sem sannara reynist, láti aldrei góð mál gjalda málflytjanda, heldur fagni því að mega ljá góðu máli lið, hvort heldur er að samherji eða andstæðingur er flytjandi þess. En þagni dægurþras og rígur verður margur vandinn okkar Is- lendinga auðleystari, þvi má treysta. Hitt er jafnvíst, að sá vandi að þagga niður í dægurþrasi og rfg er ekki auðleystur. Ég veit, að á íslandi tekst aldrei að senda sundurlyndisfjandann út á sextugt djúp, aldrei að kefla þras og ríg meðan íslendingar byggja þetta land. En ég veit líka, að hægt er að lækka rödd sundurlyndis. Æskileg ast væri, að leiðtogar þjóðarinnar stýrðu förinni, en öruggast og end- ingarbezt er, ef almenningur gerir það, en það sem á veltur er, að annar hvor aðilinn hefjist handa. Það nægir. • Camfara því sem íslendingar ^ þurfa að læra að umgangast hver annan með siðsemi og góð- vild, er þeim rík nauðsyn að temja sér rétta háttu í samskiptum við aðrar þjóðir, en enn skortir mik- ið á að vel sé í þeim efnum. Nefni ég þar til sem dæmi landhelgina og handritin. í landhelgismálinu vörðum við og sóttum rétt mál. Réttur okkar var að minni hyggju lagalegur, en einkum þó siðferðislegur, þ.e.a.s. réttur lítillar inenningarþjóðar til að lifa frjáls og öðrum óháð i landi sínu. Sérhver Islendingur hlaut þvf að berjast fyrir sigrinum til þraut- ar. En samt sem áður má með sanni segja, að við gerðum okkur of lítið far um að skilja þá erfið- leika, sem gagnaðilar áttu við að etja og þá staðreynd, að þeir urðu að sýna mikinn þroska og réttlætis kennd til þess að uppfylla óskir okkar og þarfir. Okkur til málsbóta er, að flestir Islendingar munu nú í hjarta sínu viðurkenna, að aðrir, og þá ekki sízt höfuðandstæðingurinn í þess- ari hagsmunadeilu, Bretar, sýndu okkur að lokum fulla sanngirni og uxu sjálfir af málinu. • 'C’kki skorti heldur kröfuhörku okkar og einhliða sjónarmið í handritadeilunni við Dani fremur en ella. Skal ég ekki rekja þá sögu, enda flestum kunn. En ekki get ég stillt mig um að segja hér smásögu. I febrúarmánuði 1960 var ég stadd- ur í skrifstofu Kampmanns for- sætisráðherra í Kaupmannahöfn á- samt Guðmundi I. Guðmundssyni, utanríkisráðherra, og nokkrum dönskum ráðherrum. Ég sagði þá í spaugi við Kampmann, forsætis- ráðherra, að skrifstofa hans væri stærri og betri en mín. Bezt væri að við skiptum á skrifstofum og störfum. „Því ekki það“, sagði forsætisráðherrann. Rétt á eftir bætti hann við: „Nei, það tjáir ekki, því að þá fá Islendingar eng- in handrit". Nú er Kampmann fyndinn mað-. ur og skemmtilegur og ef til vill lá engin dýpri merking að baki þessara orða. En þau hafa þó oft vakið hjá mér þessa spurningu: Myndu íslenzk stjórnarvöld, hver sem þau væru, hafa haft það rétta hugarfar, drengskap og manndóm, til þess að taka á sig stórkostleg óþægindi baráttu og andúð margra mætra manna, til þess að geta skilað Dönum dýrgripum, sem við teldum lögmæta eign Islendinga, eingöngu vegna þess að Danir ættu siðferðiskröfur til þeirra? Það er þetta ,sem flestir helztu forystumenn Dana hafa gert til að þóknast okkur. Þetta er mönnum hollt að hug- leiða. Þeim skilst þá betur, að við er- um svo einsýnir ,að voði gæti af stalað værum við eitt af mestu herveldum heimsins, en ekki smá- þjóð á hjara veraldar. • sjálfsögðu er okkur mikil nauðsyn að alda fast á málum okkar og forðast talhlýðni og und- irgefni ekki síður en stífni og hroka. En þó er hóf bezt í þessum efnum sem öðrum og -ekki höld- , um við til langframa vinsældum og virðingu annarra þjóða, ef við heimtum allt af þeim, en látum þær jafnan ganga bónleiðar til búðar á okkar fund. Ber okkur að skilja, að ósk okkar og krafa á að vera sú að fá að lifa þrátt fyrir smæðina, en ekki af smæðinni, og að allar vonir mannkynsins um að forðast tortýmingu gereyðingar- styrjaldar byggjast einmitt á því, að þjóðernishrokinn verði lægður og að sérhver þjóð leitist við að mega vænta, að þáttaskil séu haf- in í kjarabaráttunni á Islandi, stefnt sé burt frá fyrri ára yfir- skynssigrum yfir í jafnar, tryggar og raunhæfar kjarabætur. Mætti það þá vera mikið gleðiefni öllum þeim ,sem að þessari stefnu hafa Ólafur Thors forsætisráðherra skilja óskir og þarfir annarra þjóða og vilji uppfylla þær eftir getu. @ Tjegar ég ávarpaði þjóðina á lýð- " veldisdeginum f fyrra, gat ég þess, að nú hefðu „þeir atburðir gerzt í þjóðlífi okkar, sem mikill vandi er að ráða fram úr“. Leyndi ég því ekki, að ég hefði af þeim áhyggjur þungar. Átti ég að sjálf sögðú við kaupdeilurnar og verk- föllin og þóttist sjá fyrir, hvað af myndi hljótast. 'Éeyndin varð því miður sú, að ég hafði verið alltof sannspár. Er sú saga væntanlega engum úr minni liðin, óhugnanleg eins og hún var, og þá ekki sízt lokaþátturinn, gengisfallið, sem þó úr þvi sem komið var, var að mínu viti eina úrræðið og því haldbetra sem fyrr var til þess gripið. • Unn hafa gerzt á þessu sviði miklir og merkir viðburðir. Á ég þar við kauphækkanirnar, sem urðu á Akureyri f vor samtímis þvi sem Dagsbrún og atvinnurek- endur i Reykjavík hófu samnings umleitanir. Skal ég ekki neita þvi, að teija verður nokkra óvissu á, hvort efnahagskerfiö stenzt áorðn ar kauphækkanir, án þess að grípa þurfi til vaxtahækkana, lánsfjár- skerðinga eða annarra svipaðra ráðstafana til varnar gegn verð- bólgu. Vona ég þó í lengstu lög, að svo reynijt. Að þessu sinni er vikið af glæfrabraut undanfarinna ára og kröfugerðin nú, miðuð við það, sem a.m.k. nokkrar vonir standa til að leiði til raunhæfra kjara- bóta Eiga nú allir mikið í húfi um, að sú verði reyndin og ættu þá að unnið og hana markað og raunar þjóðinni allri. Nú nýverið hafa að sönnu þeir, sem meira béra úr býtum krafizt og fengið meiri kauphækkanir en þeir lægst launuðu og verður að játa, að það varpar skugga á þess ar vonir. Er þó að sjá hvað setur, vona hið bezta, þar til hið verra reynist, en taka síðan réttilega því, sem að höndum ber. Á ég enga ósk heitari í þessum efnum en að vel rætist úr, en vara þó við of mikilli bjartsýni, því hér eru að verki dögmál, sem ekki verða umflúin, þótt samhugur og góðvilji ráði alltaf miklu. En hvað sem öðru líður bendir nú margt til þess, að reynslan hafi nú sann- fært menn um, að i kjarabarátt- unni er sígandi lukka bezt, og að það er ekki krónutala, heldur kaup máttur tímakaupsins sem gildir. Er þá skammt í fullan skilning á því, að kauphækkanir umfram gjaldþol framleiðslunnar eru böl en ekki bót. Eftir það miðast bar- áttan við það eitt ,að hlutur laun bega verði sem mestur innan þess, sem auðið er að gjalda. og mun þá hefjast nýtt og merkt tímabil í efnahagssögu íslendinga. Ber nú aílri bióðinni, að samein- ast i að stuðla að bvi, að þær von ir sem við þessa nýju stefnu eru tengdar, megi rætast, öllum til heilla og farsældar. Of mikil bjartsýni væri að ætla, að þessi nýja stefna hljóti alira fylgi. Þeir verða gegn henni, sem setja annarleg sjónarmið ofar kjara bótum, og einnig ýmsir fleiri, sem ekki hafa brotið málið til mergj- ar. Hér kemur þá til sögu góðvild manna, sem telja, að náunginn hafi of lítið að bíta og brenna og óska því kauphækkana öllum til handa, en átta sig ekki á þeirri staðreynd, að þar er til ills unnið nema að framleiðslan geti staðið undir hækkuninni, og kenna svo harðýðgi eða skilningsleysi stjórn arvaldanna um. Þessar raddir þagna aldrei og eiga heldur aldrei að þagna. Svelt ur sitjandi kráka. Sá, sem ekki ber sig eftir björginni, þarf varla að búast við að verða mataður. Hitt er svo jafn nauðsynlegt, að ekki sé orðið við kröfum umfram getuna, því það leiðir til ófarnað- ar eins. • TTm það má svo að sjálfsögðu ' alltaf deila, hvort menn beri nóg úr býtum. Það fer eftir því við hvað er miðað. Sé miðað við feð- ur og mæður, lifum við kóngalífi, en ef miðað er við syni og dætur vonumst við öll eftir betri kjör- um þeim til handa. En ekki verð- um við hungurmorða meðan við höfum efni á að kaupa vínföng og kræsingar á knæpum Reykjavíkur fyrir 2 milljónir í hver vikulok, eða feiðast til útlanda í erindisleysu í tugþúsundatali árlega, svo eitt- hvað sé nefnt. • N* með þakklæti ber að játa, að 1 hér er almenn velmegun, svo al menn að leitun mun að slíku með- al annarra þjóða. Samt sem áður er ekki búið að útrýma allri fá- tækt, en fyrr má ekki linna sókn- inni. Auk þess sem vinnudagur margra er alltof langur, húsakost- ur lélegur o.s.frv. Fyrir þvi ber að halda áfram á braut velmegunar og bættra lífskjara með öllum þeim hraða, sem aðstæður leyfa og hafa menn nú uppi miklar fyr- irætlanir um að hagnýta f því skyni orkuna í elfum landsins og iðrum jarðar. Er þess að vænta, að um það verði gott samstarf manna og flokka. Takist þetta og takist að efla samhug og einingu, blasir björt framtíð við íslenzku þjóðinni. Látum okkur minnast ættjarðar- innar og biðja henni og bornum hennar blessunar. Heill forsetanum og fósturjörð- inni. ísland lifi. Luku prófi Framh. af 7. síðu. B.A.-próf: Ásdís Kristjánsdóttir Ásgrímur Pálsson Auður Gestsdóttir Gunnar Ásgeirsson Bergljót Gyða Helgadóttir Guttormur Sigurbjarnarson Kristin Ólafsdóttir Kaaber Sigríður Sveinsdóttir Skúli Jón Sigurðsson Þórarinn Andresson Þórarinn Guðmundsson Fyrri hluta próf í verkfræði: Birgir Ágústsson Benedikt E. Guðmundsson Sigurður Þórðarson Þorbergur Þorbergsson Þráinn Karlsson Einn kandídatanna, Páll G. Ás- mundsson cand. med., hlaut ágætis einkunn, 14,51. /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.