Vísir - 18.06.1962, Blaðsíða 11
Mánudagur 18. júní 1962.
11
VISIR
mmmm
iUMSJD
179. dagur ársins.
Næturlæluiir er i slysavarðstot-
unni. Sími 15030
Neyðarvakt Læknafélags Reykja-
vikur og SjUkrasamlags Reykjavík-
ur er kl. 13-17 alla daga frá mánu-
degi til föstudags. Simi 11510.
Næturvörður vikuna 2 —9. júni
er í Vesturbæjarapóteki
Kópavogsapótek ei opið alla
virka daga daga kl 9,15 — 8, laugar
daga frá kl. 9,15 — 4, helgid. frá
1-4 e.h. Sími 23100.
Útvarpeð
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 18.30 Lög Ur kvikmyndum.
20.00 Karl og kona: Dagskrá Kven-
réttindafélags íslands. Um hana
sjá Anna Sigurðardóttir og Sigur-
björg Lárusdóttir. Auk þeirra
Ieggja til efnið Ármann Snævarr
háskólarektor, Gísli Kristjánsson
ritstjóri, Guðmundur Thoroddsen
prófessor og Matthías Jónasson
prófessor. 21.00 Einsöngur Anna
Þórhallsdóttir syngur. Dr. Páll ís-
ólfsson leikur undir á orgel.-, 21.20
Otvarp frá íþróttaleikvangirium í
Laugardal: Sigurður Sigurðsson
lýsir síðari hálfleik í knattspyrnu-
keppni tékknesks unglingaliðs og
úrvalsliðs af Suðvesturlandi.
22.25 Búnaðarþáttur: Þórarinn
Helgason bóndi i Þykkvabæ talar
um rekstrarmennsku og smala-
mennsku. 22.40 Kammertónleikar:
Tuttugu og f jórar prelúdíur op. 11
eftir Skrjabin (Gina Bachauser
leikur á pianó). 23.10 Dagskrárlok.
Söfnin
Þjóðminjasatnið si opið sunnu
dag, þríðjud., fimmtud og laug
ardag ki 1.30 -4 e h
Listasafn Einars Jónssonai er
opið daglega kl 13.30—15.30
Ameríska bókasafnið Laugaveg 13
er opið 9 — 12 og 13— 18 aila virka
daga nema laugardaga
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunr.udaga, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 13.30 til 16.00.
Micjasafn Reykjavíkurbæjar,
ákúlatúni 2. opið daglega frá kl
l til 4 e. h nema mánudaga
Tæknibókasafn INSÍ Iðnskólan-
um: Opið alla virka daga .frá kl.
13-19 nema laugardaga.
Bókasafn Kópavogs: - Otlán
þriðjudaga og fimmtudaga i báðum
skólunum
— ljónið réðist á mig með hræði-
legu öskri, — en skot úr byssu
minni rak það á flótta, svo það
hvarf 1 frumskóginn.
Ýmislegt
Mynd þessi er af nýju skipi,
sem Stefán Pétursson, skipstj.
og útgerðarmaður á Húsavík,
hefur l'est kaup á. Nefnist það
Náttfari. Hann lagði af stað til
Húsavíkur frá Noregi 12. júní
s.l. Náttfari er smíðaður í Molde
i Noregi. Hann er 168 lestir að
stærð með 660 ha. Lister-vél.
Ganghraði var 11.6 sjómílur i
reynsluferð. Náttfari er búinn
öllum nýtízku tækjum, svo sem
Kelvin Hudge sjálfleitandi as-
dic og radar, sjálfvirkii miðun-
Afmælis - bókaflokkur
Bókmenntafélagið Mál og menn-
ing er 25 ára um þessar mundir,
en það var- stofnað árið 1937. í
tilefni þessa afmælis ætlar félagið
að stofna til afmælisútgáfu og gefa
út í viðhafnarbúning flokk tólf
bóka eftir íslenzka höfunda. Bæk-
ur þessar verða aðeins gefnar út
í 500 eintökum, en þar af verða
hundrað eintök í sérstaklega vönd-
uðum búningi, tölusett og árituð
af höfundunum.
Ritin í bókaflokknum eru þessi:
Minningar úr Unuhúsi, sem Þór-
bergur Þórðarson skrásetti eftir
Stefáni frá Hvítadal.
Tuttugu erlend kvæði, þýdd og
eftir Jón Helgason prófessor.
Prjönastofan Sólin, hið nýja
leikrit Halldórs Kiljan Laxness.
Skriftamá! uppgjafaprests sem
err elztu fyrirlestrar og ritgerðir
Gunnars Benediktssonar.
Ný Ijóðabók eftir Jóhannes úr
Kötlum.
Blakkar rústir, smásögur eftir
Halldór Stefánsson.
Vegurinn að brúnni, skáldsaga
eftir Stefán Jónsson.
Vort Iand er í dögun, útdrættir
úr ritgerðum Einars Olgeirssonar.
Björn Þorsteinsson annast útgáf-
una en inngang skrifar Sverrir
Kristjánsson.
Ræður og riss eftir Sverri Krist-
jánsson.
arstöð, sjálfstýringu o.fl. Kæl-
íng er í lestum.
Allur frágangur ér sérlega
vandaður og hinn nýtízkuleg-
asti í allan máta.
Andlit Asíu, ferðaþættir eftir
Rannveigu Tómasdóttur.
Elztu hetjukvæði Eddu, með
inngángi og skýringum eftir Jón
Helgason prófessor.
Um síðastliðin mánaðamót hélt
svo Stjórnunarfélag íslands þriggja
daga námsmót í Borgarnesi, er
fjallaði um arðsemi og fjármuna-
myndunarmál og fleiri atriði varð-
andi fjármálastjórn fyrirtækja. Áð-
ur hafði umræðuhópur þátttakenda
rætt þessi mál á fundum sfnum.
Leiðbeinendur á námsmótinu
voru dr. ing. K. H. Fraenkel og
hr. Klaas ter Vehn. Dr. Fraenkel
er forstjóri hagræðingardeildar
sænsku ríkisrafveitnanna og hefur
auk þess starfað viða sem ráðu-
nautur í stjórnunarmálum og hald-
ið námskeið á vegum Sameinuðu
þjóðanna um stjórnunarmál fyrir-
tækja. Klaas ter Vehn er sérfræð-
ingur í rekstrarhagfræði.
Þátttakendur voru 28 að tölu,
flestir á vegum stórra fyrirtækja
og opinberra stofnana ogjsamtala
atvinnurekenda.
Tók nokkur eftir því í nýafstað-
inni kosningahríð að hvergi og
aldrei var minnzt á Strætisvagna
Reykjavíkur.
Strætisvagnarnir, reksturinn,
leiðirnar og þjónustan hefur um
árabil verið einn vinsælasti skot-
spónn andstæðinga bæjarstjórn-
arinnar, og hvergi spöruð hin stóru
orð.
atfiéSUk S •: -iii:-.íEíCiaa6^ZrSS
1) Skotin frá Rip falla í jarð- framan hann.
vegshrúguna, sem hleðst upp fyrir 2) Varaðu þig, Rip.
3) Ég skal loka þau inni í næstu þúsund árin.
P I B 8o» 6 Copcnhoqen
Því verður heldur ekki neitað, að
lengi má setja út á, ég tala nú
ekki um, þegar um umfangsmikil
fyrirtæki er að ræða. Erfitt er að
gera svo öllum líki og enginn er
svo fullkominn að ráða fram úr
hverjum vanda og spursmáli á
þann veg sem bezt er hverju sinni.
Strætisvagnar eru farartæki sem
eru í almennri þjónustu, sífellt í
notkun, nauðsynlegur þáttur í dag-
legu lífi borgaranna. Þvl er ofur
eðlilegt að fólk sé fljótt að finna,
þegar eitthvað út af bregður, fljótt
að finna gallana.
Þeir eru slfellt undir smásjánni
og þvl er forstjórum og fyrirsvars-
mönnum Strætisvagnanna mikill
vandi á höndum.
Þegar á allt þetta er litið, eiga
þessir sömu menn mikið hrós skil-
ið fyrir reksturinn. Og það að ekki
skuli hafa verið minnzt á Strætis-
vagna Reykjavíkur i kosningahrlð-
inni er einstakt. Það eru beztu
þakkirnar, mesta hrósið sem hugs-
azt getur.
Þess skal líka geta sem vel er
gert.
Þjónusta og framkoma strætis-
vagnabílstjóra fer batnandi með
hverjum deginum, enda er þeim nú
farið að skiljast að strætisvagn-
arnir eru til þess að greiða fyrir
borgurunum, en ekki til þess að
þeir (bílstjórarnir) komi mínútunni
fyrr á áfangastað. Að stöðva fyrir
farþegum sem aðeins eru of seinir
er auðvitað sjálfsögð skylda e.n
ekki greiðasemi. — Ferðirnar og
skipulagning leiðanna er og til fyr-
irmyndar og mæta nýjum kröfum
á skjótan hátt.
Allt stuðlar að því sem áður er
sagt: Fyrirsvarsmenn strætisvagn-
anna eiga hrós skilið, og það hrús
mætti kc'ina batur fmta.
I