Vísir - 22.06.1962, Side 3

Vísir - 22.06.1962, Side 3
Föstudagur 22. júní 1962. VISIR Fréttaritari Visis á Siglutirði hefur sent blaðinu^ nokkrar myndir er eiga að sýna þennan höfuðstað sfldveiðanna, er bíð- ur nú tilbúinn og óþreyjufullur eftir þvi að farið verði að moka silfri hafsins á land. Sildarverksmiðjurnar standa tilbúnar, hvenær sem kaliið kem ur og unnið hefur verið að því að lagfæra og bæta söltunar- stöðvarnar, en áætlað er að 22 söltunarstöðvar vérði starfrækt- ar á Siglufirði i sumar. Siglfirðingar bíða þesS óþreyju fyllri en aðrir að síldveiðideilan leysist, vegna þess að það er reynsla undanfarinna ára, að síidin kemur fyrst á Vestursvæð ið en færist sfðan austur með landinu. Því eru fyrstu vikurn- ar, jafnvel fyrstu dagarnir þýð- ingarmestir á Siglufirði. Ljósm. Ólafur Ragnarsson. Löndunarkranar síldarverksmiðjunnar eru tilbúnir að lyfta farmi síldarskipanna upp í færi- böndin, sem flytja bræðslusíldina í geymsluþræmar. Bak við er| hið stolta fjall Hóls- hyman. Mjög mikil vinna fer í það á hverju vori að endurbæta síldarplönin og mála og lagfæra öll áhöld og tæki á söltunarstöðvunum. Er keppzt um að gera þar þrifalegt og snyrtilegt umhorfs. Sést hér þar sem verið er að mála síldarborðin. Úrgangurinn úr síldinni er flutt- ur með færiböndum eða í rennandi vatni £ síldarþræmar. Sést á myndinni, að við hverja skurðarfjöl er gat, þar sem úrgangurinn er látinn niður um og flyzt hann svo burt. Á fyrstu árum síldarsöltunar var úrskurðurinn látinn falla á planið jafnóðum og skorið var og slorið ekki hreinsað upp fyrr en að lokinni söltun. Á söltunarstöðvunum rísa nú óðum háir tunnuhlaðar og sést einn slíkur á myndinni. Framan við hann eru söltunarkass- amir og stólarnir undir síldarbjóðin og skúffur undir salt og krydd.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.