Vísir - 22.06.1962, Qupperneq 6
6
Fiat ’60
Volkswagen ’60
Volkswagen ’55, '56, ’57
Rænus fólksbíll sport-bifreið
Opel Record '58 til sölu eða i
skiptum fyrir eldri Station.
Opel Record '55 og ’56
Opel Caravan ’55 og ’56
Taunus Station '59 17 m
Skoda 1200 '55. '56, 57 og ’58
fólks og Station bílar
Skoda 440 '56 og '58
Benz 180 '58
Ford '56 4ra dyra 8 cyl.
Ford ’55, '56, '57, '58 fólks og
Station bílar
Ford Mer^ury '56 2ja dyra 8 cyl.
Chevrolet '51 fæst útborgunar-
laust.
Chevrolet '47 2ja dyra
Jeppar Ford og Willys jeppar
’42 - '55
Rússa-jeppar '56 — '59
Vörubflar:
Benz ’60 í skiptum fyrir eldri.
Höfum mikið úrval af flestum
tegundumbifreiða. Oft mjög
góð kjör og engar útborganir.
Multipla ’60
Volkswagen ’61 með stöðvar-
plássi.
Skoda 1200, mjög góður bíll,
haglcvæmt verð.
Skoda Station 1201 ’58.
Fiat Station ’57.
Fiat 1400 ’57, selst fyrir gott,
vel tryggt fasteignabréf,
kr. 70 þús.
Morris ’50, góður bíll,
kr. 38 þús.
Chevrolet ’54 selst gegn góðu
fasteignabréfi, 4—5 ára.
Buick ’52, kr. 40 þús., útborg-
un 10 þús. Samkomulag um
eftirstöðvar.
Humber ’50, selst með 1 þús.
kr. mánaðargreiðslum.
Fiat 1800 ’60, kr. 125 þús. út-
borgaðar. Fallegur bíll.
Garmandia ’57. Verð samkomu-
lag.
Opel Record ’61 og ’62. — Vel
tryggt fasteignabréf.
Ford Taunus ’61, samkomulag.
Ford Taunus ’62, 160 þúsund
útborguð.
Höfum kaunpendur að Volks-
wagen bllum, árg. ’60—’62.
Gjörið svo vel að skoða bílana.
Þeir eru á staðnum.
BIFREIÐASALAN
Borgartúni 1, slmi 18085, 19615
Heimasfmi 20048.
/
-- VIS IR ------------ Föstudagur 22. júní 1962.
Ferðir um Suðurlönd og
á heimssýningunu
Ford Zephyr '60, lítið ekinn.
Opel Capitan ’60 ’59 ’58 ’57
’56 '55.
Opel Rekord '60 ’58 ’5b '55 ’54.
Opel Caravan ’57 56 55.
Chevrolet ’59. góður blll, gott
verð.
Volkswagen ’62 61 60 58 56
55 54.
Moskwitsh '60 59 58 57 55.
Mercedes Benz ’52 53 54 55 57.
Chevrolet ’55, tækifærisverð.
Chevrolet ’53 og 54, góðir bíl-
ar.
Fiat ’59, mjög glæsilegur.
Ford '58 i 1. fl. standi
Taunus Station ’61, mjög litið
ekinn.
Höfum úrval af öllum teg. og
árg. 6 manna bifreiða.
ÚRVAL af jeppum.
ÚRVAL aí vörubifreiðum.
ÚRVAL af sendibifreiðum.
ÚRVAL af 4-5 manna bifreið-
um.
Bifreiðar tii sýnis á staðnum
Laugavegi 146,
á horni Mjölnisholts.
Gírkossar
fyrirliggjandi í:
Ford Taunus 12 m.
Skoda, Opel Record og
Caravan frá ’55—58
Opel Capitan ’55 — 57
Mercedes Benz 180
Mercedes Benz 170
Fiat 11, Fiat 1400
Renau Duffin
Chevrolet
Buick sjálfskiptan.
Willys Jeep.
RÚÐUR,
fram- og afturrúður í:
Opel Record og Caravan '55-58
Fiat 1100 og 1400 og
Opel Capitan ’55-’57.
Sætaáklæði í flestar tegundir
bifreiða, og mottur.
Króm og Stál
Simi 11381.
Sumarbiístaður
með bátaskýli við veiðivatn til
sölu. Bátur getur fylgt. Uppl.
í síma 36763.
Verzlunarpláss
50 fermetra verzlunarpláss til
eigu við fjölfarna götu. Uppl.
síma 16528.
Eiubýlishús
eða 5—6 herbergja hæð sem
mest sér, óskast til kaups. Til
greina kemur óstandsett að
einhverju leyti. Uppl. í síma
35872 eftir kl. 5
Stúlka
óskast til framreiðslustarfa á
sumarhóetli. Kunnátta í ensku
æskileg. Uppl. í síma 12423
eftir kl. 6 í kvöld.
Ferðaskrifstofan SUNNA býður
upp á hópferðir með fslenzkum
fararstjórum til flestra Evrópu-
landa í sumar. Eru sumar þessara
ferða nú þegar nrerri fullskipaðar.
Um páskana efndi Sunna til fyrstu
stóru utanlandsferðar ársins til
Kanarieyjar með 80 þátttakendum
og komust færri með en vildu.
Ferðaskrifstofan SUNNA hefur
frá upphafi haft nokkuð annan
hátt á skipulagi hópferðanna en
aðrar skrifstofur. Flogið er lengstu
leiðirnar og gefst fólki þá lengri
tími til dvalar um kyrrt á eftir-
sóttustu stöðunum. Vegna þess að
skrifstofan- er viðurkennd af Al-
þjóðasambandi flugfélaga - IATA -
nýtur hún þeirra hlunninda að fá
flugfargjöld á eins konar „heild-
söluverði” í sambandi við skipu-
lagðar ferðir. Getur skrifstofan því
gefið almenningi kos't á hópferðum
með betra fyrirkomulagi og full-
kominni tilhögun með frjálsu sniði,
þar sem frelsi farþeganna er í
engu skert. Aðbúnaður og þjón-
usta er eins og bezt verður á kosið
á góðum hótrelum.
Hefur þessi viðleitni borið þann
árangur, að fólk sem vant er ferð-
um með erlendum skrifstofum vel-
ur gjarna ferð með SUNNU að vel
athuguðu máli. — Auk þess sem
ferðaskrifstofan SUNNA, sem er
alþjóðleg ferðaskrifstofa og með-
limur í Alþjóðasambandi ferða-
skrifstofa FIAV, skipuleggur hóp-
ferðir með íslenzkum fararstjór-
um, skipuleggur hún á svipaðan
hátt ferðir fyrir einstaklinga á
hópferðakjörum, auk venjulegrar
ferðaþjónustu, svo sem farmiða-
sölu, með flugvélum, skipum, járn-
brautum og bílum, hótelpantanir
o.s.frv. Fer það mjög í vöxt að
fólk notfærir sér þau þægindi og
öryggi, sem slíkri þjónustu er sam-
fara, og kostar ferðalanginn ekkert
aukalega.
Hér fer á eftir stutt yfirlit yfir
hópferðir SUNNU í sumar með
íslenzkum fararstjórum.
Norðurlandaferð
með viðkomu í heimabyggðum
islenzkra landnámsmanna.
Þriggja vikna sumarleyfisferð,
sem hefst 22. júlí. Flogið til
Bergen og farið þaðan um hinar
fögru fjarðarbyggðir, meðal ann-
ars til heimkynna hinna fyrstu ís- ,
lenzku landnámsmanna, þar með
til Dalsfjarðar, þar sem íslending-
ar hafa nú reist mynd Ingólfs Arn-
arsonar í heimabyggð hans.
Frá hinum fögru fjarðarbyggð-
um Noregs verður flogið til Oslo
og dvalizt fáeina daga i höfuð-
borginni og ferðazt um nágrennið.
Síðan flogið til Stokkhólms, sem
er ein fegursta borgin í Evrópu
og stundum kölluð „Feneyjar Norð
urlanda”. Þaðan er farið í skoð-
unarferðir til Sigtúna og Uppsala
og siglt um skerjagarðinn. Frá
Stokkhólmi er flogið með SAS-
þotu'til Kaupmannahafnar og dval
ið í hinni lífsglöðu borg við sundið
síðustu viku ferðarinnar. Kvöld-
verður er þá til skiptis á ýmsum
skemmtistöðum borgarinnar og er
það innifalið í verði ferðarinnar,
þar á meðal kvöld i Tivoli.
Ferð til sex landa
með skemmtiferðaskipi.
Sextán daga ferð til Englands
og sex annarra landa hefst 25.
júlí. Flogið verður til London og
dvalið þar á Regent Palava hóteli
i tvo daga við Piccadiliy Circus,
en síðan tekinn þáttur i ferð með
skemmtiferðaskipinu Arkardia,
sem er glæsilegt hafskip yfir 20
þús. smál. að stærð, búið öllum
þeim luxus og þægidnum, sem
bezt er völ á í skemmtiferðahaf-
skipum. Þar á meðal stórum sund-
laugum, glæsilegum samkvæmis-
sölum, verzlunum og sólbaðsþil-
förum. Skipaferðin tekur 12 daga
og kemur skipið til Hollands,
Þýzkalands, Póllands, Helsingfors,
Stokkhólms og Kaupmannahafnar.
Að þessari ferð lokinni er enn dval-
ið tvo daga I London, en fólk get-
ur síðan að vild framlengt dvölina
á eigin vegum, því að farseðill
gildir heim með öllum flugferðum
í 30 daga.
París - Sviss - Rínarlönd.
Þessi vinsæla þriggja vikna
sumarleyfisferð, sem farin hefur
verið á vegum SUNNU óbreytt
ár eftir ár hefst að þessu sinni
17. ágúst. Flogið er til Parísar,
þar dvalið i heila viku í borg lífs-
gleðinnar. Þaðan farið í skoðunar-
ferðir til Versala og um borgina.
Frá París er flogið með Caravella-
þotu frá Air France til Ziirich í
Sviss og ekið þaðan til hinna und-
urfögru vatnahéraða Alpafjalla-
landsins og dvalið í borginni Luz-
ern, þar sem náttúrufegurð er
mjög rómuð og ágæt aðstaða til
vatn- og sólbaða. Þessi héruð eru
oft kölluð „Hjarta Svisslands”. —
Vikuna ,sem dvalið er á þessum
slóðum geta þeir sem vilja skropp-
ið í tveggja daga ferð til Ítalíu
ásamt fararstjóranum. Frá Sviss
er síðan farið til hinna sögufrægu
og rómuðu Rínarlanda og dvalið
þar á sjálfri uppskeruhátíðinni,
þegar mest er um dýrðir og „Vín-
ardrottningin” valin og krýnd. Þar
er siglt á Rín og ferðazt um fagr-
ar byggðir. Á heimleiðinni getur
fólk orðið eftir á eigin vegum í
London eða Kaupmannahöfn.
Vikuferð á Edinborgarhátiðina
24. ágúst.
Þetta er þriðja árið í röð, sem
SUNNA skipuleggur sams konar
ferð. Flogið er til Glasgow og far-
ið þaðan með bíl til Edinborgar,
þar sem dvalizt verður eina há-
tíðavikuna. Er mjög til hátíðarinn-
ar vandað að venju og margir af
fremstu listamönnum, leikurum,
söngvurum og hljómsveitum heims
koma þar fram. Meðan dvalizt er
í Skotlandi verður farið í skemmti-
ferð um vatnahéruðin sögufrægu,
sem líka eruð rómuð fyrir fegurð.
Meðal annars komið til Loch Lom-
ond. Einnig verður iarin verzlunar-..
ferð til Skotlands. Flugfarseðillinn
heim gildir í 30 daga, enda þótt
ferðin með fararstjóra standi ekki
nema viku.
Skotland - írland og England.
Tólf daga ferð, sem hefst 7.
september. Komið er til Edinborg-
ar í lok Edinborgarhátíðarinnar, en
þá er þar mikið um dýrðir. Ferðazt
um skozku vatnahéruðin og síðan
flogið frá Glasgow til Dublin, höf-
uðborgar írlands, „eyjunnar
grænu”, sem alltof fáir íslendingar
heimsækja. Þetta er fagurt land og
viðmótsþýð þjóð, sem býr við
forna menningarsögu eins og ís-
lendingar og sem raunar er ís-
lendingum tengd. Ferðazt er um
ýmsar fegurstu byggðir Irlands,
meðal annars til Cork.
Frá Dublin er svo flogið til Lon-
don og dvalizt þar í fáeina daga
áður en ferðinni lýkur. Farseðill
er síðan opinn heim í 30 daga eins
og í öllum sumarferðum SUNNU.
Ítalía í septembersól.
Þessi vinsæla þriggja vikna ferð,
sesn varð óhemju vinsæl af þeim
sem tóku þátt í henni í fyrra, verð-
ur nú alveg með sarrfa sniði og
hefst, 14. september. Flogið er til
Milano og farið þaðan með ný-
tízku ítölskum langferðabíl stutta
dagleið til Feneyja, draumaborgar-
innar frægu við Adriahafið, þar
sem dvalizt er í fjóra daga. Þaðan
er ekið um fagurt land til Florens
hinnar fornu höfuðborgar vísinda
og fagurra lista á Ítalíu. Þaðan er
ekið eftir þriggja daga viðdvöl til
Rómar með viðkomu í Assisi og
dvalizt í fimm daga í borginni ei-
lífu. Þar er skoðað allt hið mark-
verðasta og verið við áheyrn hjá
páfa. Frá Róm er farið til Napoli
og Sorrento með viðkomu í Pam-
pei í Sorrento, hinum undurfagra
baðstrandarbæ við Napoli flóann,
er svo dvalizt f fjóra daga og farið
þaðan út til Capri sem er örstutt
til. Frá Napoli er síðan siglt með
stærsta og glæsilegasta hafskipi
ítala, Leonardo Da Vinci, sem er
33 þúsund smál., til Suður-Frakk-
lands. Á skipinu eru þrjár sund-
laugar, glæsilegur samkomusalur,
verzlanir og fjölbreytt skemmtana-
líf. Síðustu þrjá daga ferðarinnar
er síðan dvalizt í Nizza á frönsku
Rivieran. Hægt að fljúga heim með
viðkomu í London, eða Kaup-
mannahöfn að vild.
Mallorka i september.
Sjöunda september hefst hálfs
mánaðar ferð til Mallorca, sem
SUNNA efnir til vor og haust.
Búið er eingöngu á beztu hótelum
I. fl. A og luxusfl. og öll herbergi
með einkabaði og sólsvölum. Farið
verður í ferðalög um þessa undur-
fögru paradísarey, sem um 400 Is-
lendingar hafa nú heimsótt á veg-
um ferðaskrifstofunnar SUNNU.
Þar er margt að sjá, enda Mall-
orca stórt land með löngum land-
leiðum um tilkomumikið og litrfkt
Iandslag. En umfram allt er það
þó sjórinn og sólin, sem heillar
fólk til stranda hennar og septem-
bermánuður er af fíestum talinn
heppilegastur til dvalar þar og þá
hóflegur hiti.
Spánn, Portúga! og Marokko.
Þriggja vikna ferð sem hefst 15.
september. Flogið til Madrid. Dval
izt þar í nokkra daga, en ekið síð-
an um hið tilkomumikla landslag
Spánarsléttunnar til Portúgals,
sem er undurfagurt land með
blómaskrúði og vogskornar strend-
ur, land sem fáir íslendingar
þekkja enn þá af eigin raun. Þar
verður dvalizt f höfuðborginni
Lissabon, sem talin er ein af feg-
urstu borgum veraldar.
Frá Lissabon er farið aftur til
Spánar og komið til Sevilla, hinn-
ar sögufrægu höfuðborgar Suður-
Spánar og þaðan^til Gibraltar og
yfir sundið til Afríku. Dvalizt verð
ur í Marokko í þrjá daga og ferð-
azt suður undir Atlasfjöll hin
nyrðri. Þegar komið er aftur til
Spánar verður dvalið í baðstrand-
arbænum Torremilinos í nokkra
daga, skammt sunnan við Malaga
og þaðan haldið til Granada og svo
aftur til Madrid. I þessari ferð,
sem gerir ráð fyrir hóflegri yfir-
ferð og góðum hvíldum kynnist
fólk öllu því eftirsóknarverðasta
á Spáni og Portúgal, en fær að
auki að kynnast hinum sérkenni-
lega töfraheimi Afrfku í Marokko,
þar sem fullkominn friður rfkir
milli innfæddra og Evrópumanna,
sem báðir halda sínum siðum.
Um byggðir Vestur-lslendinga
og á heimssýninguna í Seattle.
Þetta er fyrsta skipulagða hóp-
ferðin frá Islandi til Ameríku-
byggða frá því á árum „vestur-
faranna”. Flogið verður til New
York og þaoan farið til margra
helztu byggða íslendinga f Banda-
ríkjunum og Kanada. Dvalizt á
„íslendingadeginum” á Gimli og
ferðazt vestur á Kyrrahafsströnd
og dvalizt þar meðal annars á
heimssýningunni miklu í Seattle.
Frá þessari ferð hefur áður verið
skýrt í blöðum og útvarpi