Vísir - 22.06.1962, Side 13
Föstudagur 22. júní 1962.
V'SIR
13
Kveðjuorð
Guðmundur Jónasson
FRA FLATEY
Mikill og óbætanlegur mann-
skaði hefur orðið við fráfall Guð-
mundar Jónassonar, en hann lézt
á Landsspítalanum á 10 ára stúd-
entsafmæli síhu hinn 16. júnl s.l.
Guðmundur var fæddur 12.
september árið 1929 og var því
aðeins 32 ára að aldri, er hann
kvaddi þennan heim. Hann var
sonur Jónasar Jónassonar, fyrrum
ritstjóra á Akureyri og síðar kenn-
ara og hreppstjóra i Flatey á
Skjálfanda og konu hans Guðríð-
ar Kristjánsdóttur frá Siglufirði.
Guðmundur lagði ungur að ár-
um út á menntabrautina, enda var
hann ágæta vel til þess fallinn.
Hann stundaði fyrst nám í héraðs-
skólanum að Laugum og síðar í
Gagnfræðaskóla Húsavíkur, en ár-
ið 1949 hóf hann nám við Mennta-
skólann á Akureyri og lauk þaðan
stúdentsprófi vorið 1952 með góð-
um vitnisburði. Hann innritaðist í
Háskóla Islands haustið 1952 og
lauk þaðan B. A.-prófi árið 1955.
Síðar lagði hann leið sína á önnur
lönd til frekara náms f fræðum
sínum. Að loknu námi í Háskóla
hóf Guðmundur kennslustörf og
var strax talinn af þeim, sem til
þekktu, hinn frambærilegasti
skólamaður.
Árið 1957 gekk Guðmundur að
eiga Bergljótu Lfndal (Theodórs
Líndals prófessors). Eignuðust þau
tvo drengi.
Hér hefur verið drepið á örfá
æviatriði Guðmundar Jónassonar.
Það er ekki ætlunin að gera það
frekar nú og hér í þessum örfáu
kveðjuorðum. En það mun vissu-
lega verða gert þótt síðar verði,
enda skal það verða aldrei að
fymist minning þessa ágæta
drengs.
Guðmundur Jónasson var með-
almaður á hæð, fríðleiksmaður og
samsvaraði sér vel. Hann var vel
íþróttum búinn og framkoman öll
hin drengilegasta. Hann var glað-
sinna hvatleikamaður, gamanmála-
maður, ef þvf var að skipta, og
spaugsamur, en gersamlega áreitn-
islaus við alla ménn. Hann var
lífsglaður baráttumaður, sem brot-
izt hafði úr fátækt til m'ennta og
mikils þroska með harðfylgi sfnu
og atorku. Það eru harkaleg örlög,
sem búa svo ágætum manni hel í
blóma lífsins.
Vinir Guðmundar senda eigin-
konu hans og sonum, öldruðum
foreldrum og öðrum venzlamönn-
um sínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Það er stórt skarð höggvið í
vinahópinn frá Garði, sem ófyllt
mun standa meðan þeir lifa.
Sverrir Hermannsson.
Nokkrir vinir Guðmundar Jón-
assonar hafa ákveðið að stofna
sjóð til að heiðra minningu hans
og mun síðar verða greint nánar
frá þvi máli.
Japönsk eik — Oregon pine
Nýkomið:
Japönsk Eik, 1”—
Burma Teak, 2”—
Danskt Brenni, 1’
Þýzk Eik, 1”—2”
Eikarspónn, 1 fl.
Almspónn, 1 fl.
iy4”—iy2”—2”—2y2" frá kr. 338.00 cub. ,
-2i/2” ------ 696.00 —
—3y3” ------ 155,20 —
------,289.00
----- 39.35 m!
— — 33.30 m:
Douglas Fir Dekkplankar, 314 x 5% ■— 6y4.
Koma næstu daga. — Tekið á móti pöntunum.
HALLVEIGARSTÍG 10
Vegna flutnings
verða skrifstofur okkar og vörugeymslur lokaðar á morgun, laugardag-
inn 30. júní. — Opnum aftur mánudaginn 2. júní að Sætúni 8 (gegnt
Höfða). — Óbreytt símanúmer: 24000.
O. Johanson & Kaaber hf.
Fjölbýlishús í Safamýri
'■'m
I »« » I ., ‘ 1 ... IK .» » »' 1 • »
Mjög fullkomar íbúðir með tvennum svölum, svefnherbergi sér. — Húsið stendui
fremst af fjölbýlishúsum við Miklubraut, opið svæði fyrir framan.
Fasteignamiðstöc
Austurstræti 14 . Símar 14120 og 20424
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••c
HÁBÆR
.. VEIZLUHÚSIÐ
Okkar vistlegu salarkynni eru til reiðu
jafnt fyrir hádegi og kvöldverðarsam-
kvæmi. Einnig eftirmiðdagsfundi.
HÁBÆR
er í öllum viðurgerkiingi frúbær
Pantið með fyrirvara í síma 17779.
HÁEÆR
,. ELDHÚS
Frá eldhúsinu í HÁBÆ .Hverskonar heitur mat-
ur og kaldur veízlumatur smurt brauð og snitt-
ur sent um allan bæ. Síminn er 17779.
0áí
Er fluff uð Luuguvegi 66
SBMI 11616
Verzlun Duníels
Síldarstúlkur
óskasi til Sunnu á Siglufirði og til Seyðisfjarðar.
Fríar ferðir, húsnæði og kauptrygging.
Upplýsingar á skrifstofu ísbjarnarins h.f. Hafnar-
hvoli. Sími: 1-1574.
GLAUMBÆR
HÁDEGISVERÐUR Á HÁLFTÍMA
Framreiddur kl. 12.00—15.00.
Hér fer á eftir matseðill vikunnar:
Föstudagur 22-6 ‘62 Laugardagur 23-6 ‘62
Gulertusúpa
og
Soðið saltkjöt m/guliófum
kr. 40
eða'
St fiskfl m/agúrkum kr. 30
eða
Omelett m/skinka kr. 30
Mjólkursúpa
og
soðinn saltf m/smjöri kr. 30
eða
Bixematur m/eggi kr. 30
eða
Hakkað buff m/lauk kr. 30
Eftirmiðdagskaffi framreitt frá kl. 3-6.
LA UMBÆR
FRIKIRKJUVEGI 7 . SIMI 22643 og 19330