Vísir - 18.07.1962, Síða 13
100
hesfavísur
Heimskringla hefur nýiega gefið
út bók er nefnist 100 hestavísur.
Eru f henni vísur eftir ýmsa menn
og eru meðal þeirra vísur eftir
mörg þjóðskáldanna. Einnig eru í
bókinni margir gamlir húsgangar,
og vísur eftir ókunna höfunda.
Fyrsta vfsan i bókinni er eftir j
Jón Arason og fer hún hér á eftir:
Ég held hann ríða úr hlaðinu bezt, !
sem harmar engir svasfa,
hamingjan fylgir honum á hest,
heldur í tauminn gæfa.
Þessi er eftir Stefán frá Hvíta- !
dal:
Gráni fljót og geymi sig,
gráni rót og fylli,
gráni hótin — gleðji þig
Grána fótasnilli.
Matthías Jochumson samdi þessa
vísu:
Skjóna er lúin, löt og körg,
lemstrum búin, skökk og örg
krafta rúin beztri björg,
beinin fúin sundur mörg.
Bók þessi er í litlu broti og er
frágangur og prentun óvenjulega
smekklegt. Hún er prentuð í Prent-
smiðjunni Hólar.
Stjóm og starfslið Kjötvers h.f., hins nýja kjötvinnslufyrirtæk is, sem nokkrir kjötkaupmenn hér í borg hafa sett á stofn,
ný kjötvinnslustöð
PÁU S. PÁLSSON
hæstarétíarlögmaður
Bergstaðastræti 14
Sími 24200.
GUSTAF OLAFSSON
hæstaréttarlögmaðui
Austurstræti 17 Sími 13354
m'RGEIR SIGURJÓNSSOH
hæstaréttarlögmaður
iVIáiflutningsskrifstofa
Austurstræti 10A Simi 11043
Um þessar mundir tekur til starfa
nýtízku kjötvinnslustöð í Reykja-
vík - KJÖTVER h.f. Fyrirtækið
er til húsa í nýrri verksmiðjubygg-
ingu að Dugguvogi 3 og er búið
nýjum og bezta fáanlegum véla-
kosti til framleiðslu sinnar. Um
tuttugu manns starfa að fram-
leiðslunni, þeirra á meðal kunnir
kjötiðnaðarmenn íslenzkir og
danskir kjötvinnslumeistarar, en
vinnslustjóri er Magnús Guð-
mundsson, áður kjötvinnslumaður
hjá „Síid og Fiski“. Helztu fram-
leiðsluvörur verða m.a. pylsur,
bjúgur, fars, búðingar, áskurður
og salöt alls konar, en vinnslu-
afköstin eiga að geta numið 4 —.5
smálestum á dag. Allar vörur
Kjötvers h.f. verða merktar fram-
leiðsluheitinu „Karo“.
VAXANDI FÉLAG.
Reyndar er þarna ekki um nýtt
fyrirtæki að ræða, þar eð það er
upphaflega stofnað þann 25. jan.
1961, og stóu þá að því sex kaup-
menn og kjötvinnslumenn. Var það
fyrst í leiguhúsnæði að Laugavegi
32, sem reyndist brátt alltof þröngt
fyrir starfsemi þess. Því var hafizt
handa um nýja verksmiðjubygg-
ingu, hlutafé aukið úr kr. 84.000.00
í kr. 500.000.00 og hluthöfum
fjölgað. Eru þeir nú um 30, en
gera má ráð fyrir að þeir verði
fleiri á næstunni. Heildverzlun
SKRIFSTOFA
Háskóla Islands
verður til 15. ágúst aðeins opin mánudaga,
miðvikudaga og föstudaga kl. 10—12 f. h.
Kristjáns Ó. Skagfjörð annast
dreifingu á vörum fyrirtækisins út
um land, en þ.ær eru nú á boðstól-
um í 50 — 60 verzlunum í Reykja-
vík og ýmsum bæjum og kaup-
túnum. Út á land eru vörurnar
sendar með bflúm og flugvélum.
TILGANGURINN.
Tilgangurinn með stofnun og
starfrækslu Kjötvers er fyrst sá
að skapa framleiðslunni sem hag-
kvæmust skilyrði, og tryggja neyt-
endum' þannig í senn fyllstu vöru-
vöndun og sanngjarnast verð. í
stað þess að margir smáframleið-
jendur vinni hver um sig við örð-
ugar aðstæður og ónógan vélakost,
sem bæði torveldar vöndun vör-
unnar og gerir hana dýrari, jafn-
vel þótt viðkomandi kunni iðn
sína til hlítar, er þarna gengið til
samstarfs öllum í hag — vörurn-
ar unnar 1 nýtízku vélum af sér*.
lærðum og þaulvönum mönnum í
hentugum og rúmgóðum húsakynn
um, þar sem unnt er að fullnægja
ströngustu kröfum um hreinlæti
og þrifnað, auk þess sem hin mikla
umsetning tryggir sanngjarnt verð
til neytenda, þótt hráefnið, sem
keypt er til framleiðslunnar, sé að
sjálfsögðiu alltaf eingöngu fyrsta
flokks. Hið sama gildir auðvitað
um hvaða framleiðslu sem er, en
er þó hvergi eins áríðandi og varð-
andi alla matvælaframleiðslu, sér
í lagi þegar um jafn vandmeðfarin
matvæli og kjöt er að ræða. Fram-
leiðslumerkið „Karo“ á þvl stöðugt
og alls staðar að tryggja neytend-
um vönduðustu og heilnæmustu
vöru við sem hagstæðustu verði,
og eins tryggir fullkomið dreif-
ingarkerfi, að þær vörur séu alltaf
í því bezta ásigkomulagi, sem kraf-
izt verður, hvar á landinu sem er.
STJÓRN OG STARFSEMI.
Yfirsmiður við hina nýju og
glæsilegu verksmiðjubyggingu
Kjötvers var Vermundur Eiríksson.
Múrverk annaðist Ólafur Bjarna-
son, Heigi Guðmundsson sá um
pípulögn, Raftækjastöðin um raf-
lögn alla, Óskar Ólason um máln-
inguna, en Ársæll Magnússon um
terrasólögn. Ofnasmiðjan hefur
smíðað vinnuborð og vagna, Tækni
h.f. reykofna og lyftu, en Glófaxi
h.f. hefur annazt blikksmíð alla og
Alúminíumsmiðjan það, sem gert
er úr alúmíni. Um 600 ferm. af
hinu nýja húsnæði er þegar tekið
£ notkun.
Framkvæmdastjóri Kjötvers h.f.
er Viggó M. Sigurðsson, eigandi
Hlíðarkjörs, en stjórn þess skipa
Jónas Gunnarsson, Kjötborg, for-
maður, Jón Bj. Þórðarson, Heima-
kjöri og Garðar S. Svavarsson £
Kjötverzlun Tómasar Jónssonar.
Sex ferðir F.í. um helgina
Ferðafélag Islands efnir til sex
ferða, tveggja sumarleyfisferða og
fjögurra helgarferða sem hefjast n.
k. laugardag.
Sumarleyfisferðirnar eru annars
vegar um Landmannaleið og austur
£ Skaftafellssýslu, en hins vegar
um Kjalarsvæðið.
Fyrr nefnda ferðin er 9 daga
ferð og er þá farið sem leið liggur
í Landmannalaugar, Kýlingar, Jök-
uldali og Eldgjá og þaðan niður í
Skaftártungu. Eftir það liggur leið-
in austur á Síðu og Fljótshverfi og
alla leið inn £ Núpsstaðaskóga.
Hin sumarleyfisferðin er 6 daga
ferð um Kjalarsvæðið, fyrst ekið
að Hagavatni, en síðan austur að
Hvftárvatni, Kerlingarfjöll, Hvera-
velli og Þjófadali. Skoðaðir verða
merkustu og fegurstu staðir á Kili
og gengið á ýmis fjöll. Báðar fram-
angreindar leiðir eru óvenju svip-
miklar og fjölbreyttar, farið um
eldstöðvar, inn á milli jökla, um
eyðisanda og gróðurvinjar f öræf-
unum. Eru þær hvor um sig meðal
fegurstu leiða sem getur að líta í
óbyggðum.
Helgarferðirnar eru að venju i
Þórsmörk og Landmannalaugar, en
þangað eru áætlunarferðir um
hverja helgi yfir sumarmánuðina,
en auk þess verður efnt til ferða
norður á Kjöl, allt norður á Hvera-
velli, og loks til ferðar á Trölla-
kirkju. Ekið verður á laugardag-
inn norður um Borgarfjörð að
Fornahvammi og gist þar. Á sunnu-
daginn verður ekið upp á Holta-
vörðuheiði og þaðan gengið upp á
Tröllakirkju. Á heimleið verður ek-
ið um Kaldadal.
Happdrætfi
Krabbameinsfélagið hefur ákveð-
ið að efna framvegis til þriggja
happdrætta á ári hverju og annað
á þessu ári er nú hafið, nefnist
það Sumarhappdrætti og verður
dregið f þvf 31. ágúst n.k.
Félagið hefur ákveðið að gefa
fólki úti á landi kost á þvf að
skoða vinningana og um leið að
kaupa sér miða. 1 því skyni hefur
félagið sent bifreið með hjólhýsi
til Siglufjarðar og gekk ferðin að
óskum.
Vinningar verða tvö hjólhýsi og
ensk jappabifreið, og verð hvers
miða kr. 25.
Í.S.I.
K.S.Í.
A-lmdslið — B-landslið
keppa á Laugardalsvellinum í kvöld. Leikurinn hefst kl. 8.30.
Verð aðgöngumiða:
Stúkusæti kr. 30.00
Stæði kr. 20.00
Barnamiðar kr. 5.00
Komið og sjáið 22 beztu knattspyrnumenn íslands.
KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS.