Tölvumál - 01.08.1990, Page 12

Tölvumál - 01.08.1990, Page 12
Ráðstefna 6. september 1990 — — Stefnumótun í upplýsinga- og tölvumálum ÁVARP í vaxandi samkeppni getur gott upplýsinga- og tölvukerfi sem fellur að markmiðum fyrirtækis skipt sköpum um árangur. Það er því mikilvægt að stefnumótun á þessu sviði haldist í hendur við almenna stefnumótun þess. Stefnumótun í upplýsinga- og tölvumálum hefur ekki verið gefinn nægur gaumur hér á landi á liðnum árum. Með ráðstefnunni, Stefnumótun í upplýsinga- og tölvumálum, viljum við vekja stjómendur til umhugsunar um þessi mál og hvetja til aðgerða. Ráðstefnan er ætluð stjórnendum fyrirtækja og stofnana en ekki síður stjórnendum upplýsinga- og tölvumála og þeim starfsmönnum öðrum sem fjalla um þau mál. Þá er efnið mjög áhugavert fyrir rekstrar- og tölvuráðgjafa. Mjög er vandað til vals fyrirlesara og efnis og vill stjóm Skýrslutæknifélagsins hvetja til þátttöku í þessari ráðstefnu. Halldór Kristjánsson, formaður UpplÝsingar um fyrirlesara Guðbjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri, Tölvudeild Ríkisspítala Guðbjörg er tölvunarfræðingur að mennt og hefur starfað á Tölvudeild Ríkisspítala frá 1983 og verið deildarstjóri frá 1985. Hún er í stjórn Skýrslutæknifélagsins. William A. King, Executive Consultant, Ernst & Young, E C G William er aðalhöfundur aðferðafræði Ernst & Young í stefnumótun í upplýsingamálum og hefur haldið fjölda erinda um stefnumótun. Ragnar Pálsson, framkvæmdastjóri, Samkort Ragnar var áður forstöðumaður tölvudeildar Sambandsins og sá um stefnumótun í upplýsingatækni við endurskipulagningu fyrirtækisins. Carl Johan Gerlach, Deputy Managing Director, Unidata Unidata er 700 manna tölvufyrirtæki, sem sér Unibank, einum stærsta banka Danmerkur, fyrir tölvuþjónustu. Carl Johan er formaður NDU. Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri, Eimskip hf Þórður hefur verið framkvæmdastjóri íjármálasviðs frá 1980 en upplýsingamál heyra undir hann. Hann er forstöðu- maður stýrihóps tölvumála hjá Eimskipafélaginu. Tim Lincoln, Senior Systems Management Consultant, IBM-UK Sérsvið Tim er stefnumótun og mat á fjárfestingum í upplýsingatækni. Hann hefur starfað hjá IBM frá 1968. Tim hefur skrifað fjölda greina í bækur og tímarit. Jan Henriksen, Managing Consultant, Price W aterhouse/IKO Jan er hagfræðingur að mennt og starfar sem ráðgjafi um stefnumótun í upplýsingamálum. Hann var áður fram- kvæmdastjóri Logica AS í Danmörku. Halldór Kristjánsson, framkvæmdastjóri, Tölvu- og verkfræðijþjónustan. Hann er verkfræðingur að mennt og hefur rekið eigin verkfræðistofu, Tölvu- og verkfræðiþjónustuna, frá 1986. Halldór hefur unnið að stefnumótun ijölda fyrirtækja í upplýsingamálum. Hann er formaður SÍ. L. Um erindin Current Trends in Information Systems Strategy William A. King Þróun árangursríkrar stefnu í upplýsingamálum er eitt mikilvægasta verkefni stjórnenda fyrirtækja. Vegna mikilvægis þessa verkefnis fyrir rekstur fyrirtækja hafa verið þróaðar á undanförnum árum mismunandi aðferðir við að móta stefnu í upplýsingamálum. Erindið Qallar um sögulegan bakgrunn aðferða í stefnumótun og rætt er um hvemig fyrirtæki taka á þessum málum nú. Ennfremur verður fjallað um mikilvæg atriði sem geta nýst ráðstefnugestum við stefnumótun í upplýsingamálum. Hversvegna stefnumótun i upplýsingatækni? Ragnar Pálsson Öllum fyrirtækjum er nauðsynlegt að marka sér stefnu og setja sér markmið. Stefnan í upplýsingatækni er einn mikilvægasti hluti stefnumótunar og markmiðasetningu fyrirtækja. Erindið mun fjalla um stefnumótun í upplýsingatækni sem Samband íslenskra samvinnufélaga hefur nýlega gengið í gegnum og Ragnar stjórnaði. Information Technology in the banking environment Carl Johan Gerlach Erindið fjallar um það hvernig stór norrænn banki notar upplýsingatækni til þess að styðja við starfsemi bankans í harðri samkeppni nýrrar Evrópu. Bankastarfsemi er upplýsingatækni. Fjármunir eru í vaxandi mæli meðhöndlaðir í tölvum. Hverjar eru væntingar viðskiptamanna og kröfur fyrirtækja? Hvaða atriði munu leiða til sigurs á þessum markaði? Stefnumarkandi áætlanagerð um hugbúnaö og tölvurekstur Eimskipafélagsins Þórður Magnússon Erindið fjallar um stefnumarkandi áætlanagerð varðandi hugbúnað Eimskipafélagsins og tölvurekstur. Gerð verður grein fyrir hlutverki og starfsemi stýrihóps tölvumála og hvernig reynt er að tryggja það að starfsemi og verkefni tölvu- og upplýsingadeildar endurspegli þarfir fyrirtækisins á hverjum tíma. Integrating Information Systems with the Organisation Tim Lincoln Þrátt fyrir það að tölvur hafa verið í notkun í fjölda ára er óánægja með þann árangur sem hefur náðst. Rannsóknir benda til þess að vandinn liggi í stjórnun tækninnar fremur en í tækninni sjálfri. í erindinu verður fjallað um ástæður þessa vanda og sýnt fram á að skortur á ferlum sem tengja upplýsingatæknina og fyrirtækið nánum böndum séu meginástæðumar. Tillögur eru settar fram um hvernig hægt er að bæta úr þessum vanda og fella upplýsingamál betur að starfsemi fyrirtækis. How to measure efficiency within Information Technology Jan Henriksen Erindið íjallar um hvort hægt er að mæla skilvirkni upplýsingakerfa og hvort til séu einfaldar aðferðir til þess. Sagt verður frá aðferðum og kynntar niðurstöður úr slíkum mælingum hjá fyrirtækjum. -J

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.