Tölvumál - 01.08.1990, Blaðsíða 15
Ágúst 1 990
Staðallinn hefurfengið auðkennið
ÍST 32 og heitið "Almennir útboðs-
og samningsskilmálar um þróun
gagnavinnsluketfa
Fyrirhugað er að byggja verk-
samning um eitt stœrsta verk, sem
boðið hefur verið út á tölvusviðinu
hér á landi í ÍST 32.
um hugbúnaðarverkefni, eins og t.d.
ákvæði um fomminjar, náttúmvætti
og gangstéttar. Fjölmörg atriði hans
em þó almenns eðlis og hafa verið
tekin óbreytt eða lítið breytt upp í
ÍST 32. ÍST 30 hefúr því gjaman
verið notaður í stærri hugbúnaðar-
útboðum hér á landi á undanfömum
ámm, einkum á tæknisviðinu.
Fyrsta stóra verkið, sem fór fram
samkvæmt ÍST 30 og íslenskt
hugbúnaðarfyrirtæki bauð í var
stjómkerfi eða kerfiráður fyrir
Hitaveitu Reykjavíkur. Þetta verk
var boðið út árið 1983. Mjög vel
var að þessu útboði staðið af hálfu
verkkaupa og ráðgjafa hans. Þrátt
fyrir samkeppni frá u.þ.b. 10
erlendum stórfyrirtækjum fékk
íslenska fyrirtækið verkið. í
kjölfarið fylgdi ítarlegur verksamn-
ingur, þar sem aftur var byggt á ÍST
30.
Sennilega þýðir það, að þama hafa í
fyrsta skipti verið fyrir hendi
ákvæði um tafabætur í verki, sem
hugbúnaðarfyrirtæki tekur að sér.
Allt eftirlit af hálfu ráðgjafans var
mjög gott á verktímanum. Um-
fangsmikið formlegt viðtökupróf fór
fram áður en kerfið taldist afhent.
Kerfið hefur verið í notkun í nokkur
ár og afar fáar villur hafa fundist í
því.
Frá þessum tima hefur hefur ÍST 30
verið beitt á nokkur verkefhi á
tölvusviðinu bæði tæknilegs og við-
skiptalegs eðlis. Sú reynsla hefur
sýnt fram á hagnýtt gildi ÍST 30, en
jafnframt leitt í ljós ákveðna
annmarka hans fyrir hugbúnaðar-
verkefni, enda var hann alls ekki
saminn með slík verkefhi í huga.
í fyrrasumar hófst síðan undir-
búningur að gerð ÍST 32. Þriggja
manna nefnd var skipuð til að vinna
að staðlinum. í henni eru fulltrúar
Staðlaráðs íslands, Félags íslenskra
iðnrekenda og Ráðgjafamefhdar
ríkisins um upplýsinga- og
tölvumál. Um þessar mundir er
nefhdin að fjalla um þær athuga-
semdir, sem fram hafa komið við
frumvarp staðalsins. Að því loknu
verður ÍST 32 gefinn út sem for-
staðall, en svo skemmtilega vill til,
að hann verður fyrsti forstaðallinn,
sem Staðlaráð Islands gefur út.
Eftir að forstaðallinn kemur út ætti
það að vera hagsmunamál allra, sem
standa að þróun gagnavinnslukerfa
að hann verði notaður við útboð og
samningagerð í sem flestum verk-
efhum.
Fyrstu viðbrögð benda til þess, að
staðallinn eigi eftir að hljóta tölu-
verða útbreiðslu. M.a. má nefha að
fyrirhugað er að byggja verk-
samning um eitt stærsta verk, sem
boðið hefur verið út á tölvusviðinu
hér á landi á ÍST 32.
1 5 - Tölvumál