Vísir - 27.07.1962, Blaðsíða 5
Föstudagur 27. júlí 1962.
5
V’SIR
FELLT VANTRAUST
Á MACMILLAN
Vatraust krata á stjóm
Macmillans var fellt í neðri mál-
stofu brezka þigsins í gær með
„mesta hugsanlega mun‘“ — eða
98 atkvæðum (351:253).
Maudlig — hinn nýi fjármála-
ráðherra — talaði síðastur. Hann
kvað ekki stefnu stjórnarinar að
berjast gegn sanngjörnum kaup-
Æskuíýðsmót...
Framh. af bls. 16.
blaðamönnum að skoða þann mikla
undirbúning, sem gerður hefur ver
ið fyrir mótið. Hann hófst haustið
1961, en verklegur undirbúningur
hefur staðið frá því f júnímánuði.
Lögð hefur verið 3 km. löng
vatnsveita, er greinist svo í þvotta-
svæði, neyzluvatnsból og vatnssal-
erni. Á mótssvæðinu sjálfu hefur
verið sett upp 25 Iína símstöð, sem
er í sambandi við Valhöll. Raf-
stöð, 10 kílóvatta, hefur verið kom
ið fyrir á mótssvæðinu, þar er
ferðaskrifstofa, stór tjöld ætluð til
kvikmyndasýninga, verzlanir, póst-
hús, sjúkrahús með 10 rúmum,
sparisjóður o. fl.
FJÖLBREYTT
DAGSKRÁ.
Flestir skátanna munu koma til
Þingvalla á laugardaginn og reisa
þar tjöld sfn, en mótssetning fer
fram kl. 10 að morgni sunnudags
með hátíðlegri athöfn. Viðstödd
mótssetninguna verða m. a. Lady
Baden Powell og forseti íslands, en
hann er verndari skáta.
Fjóra daga mótsins verður svo-
kölluð skiptidagskrá. Verður hún
þannig, að öllum þátttakendum
verður skipt í fjóra hópa. Fyrsti
hópurinn fer í gönguferð á fjall,
annar fer til náttúruskoðana og
gróðursetningar, sá þriðji í víða-
vangs-skátaleiki, og sá fjórði fer í
Gjábakkahelli. Síðan munu hópar
þessir skipta um verkefni daglega.
Miðvikudaginn 1. ágúst verða
farnar hópferðir frá mótinu og
geta þátttakendur valið á milli sjö
ferða.
Laugardaginn 4. ágúst mun for-
seti íslands, ríkisstjórn og fleiri op-
inberir gestir heimsækja mótið og
verður þá efnt til hópsýningar.
Þann dag verða einnig afhent verð
Iaun fyrir flokkakeppni, sem há-
tíðarnefnd skátaársins hefur efnt
til í vetur.
Á sunnudaginn fara fram tvær
messur i Hvannagjá. Biskupinn yf-
ir íslandi mun messa, en kaþólsku-
messuna flytur sr. Haching. Verð-
ur hún fyrsta kaþólska messan að
Þingvöllum frá því á miðöldum.
Að kvöldi mánudags fara svo
fram mótsslit og þriðjudaginn 7.
ágúst halda allir heimleiðis, að und
anskildum nokkrum hópum er-
ændra skáta, er munu ferðazt hér
um.
STÓRAR TJALDBÚÐIR.
Gizka má á, að minnst um eitt
þúsund tjöld muni mynda skipu-
lagða borg að Þingvöllum. Verður
tjaldbúðunum skipt f fernt, fyrir
drengi, stúlkui, foringja og fjöl-
skyldu-tjaldbúðir, sem eru alveg
óþekktar hér. í þeim geta eldri skát
ar dvalizt með fjölskyldur sínar.
Mótstjóri verður Páll Gíslason,
aðstoðarmótstjóri Aðalsteinn Júlí-
usson og yfirtjaldbúðastjóri Magn-
ús Ftephensen.
hækkuum, heldur gegn því að
kaupgjaldið færi fram úr.því sem
efnahagur þjóðarbúsins þyldi. —
Macmillan boðaði að sett yrði
nefnd stjórninni til ráðuneytis um
kaupgjaldsmál.
Axel
Framh. af bls, 1.
og á mótorbát 'þeir Sigurður
Ólason læknir, Magnús E. Guð-
jónsson bæjarstjóri og Her-
mann Stefánsson íþróttakenn-
ari. Þeir þremenningarnir fórir
nokkuð frá á mótorbátnum og
komust að því að Iygnara var
upp við land nálægt Krossanesi,
færði Axel sig þá þangað og
gekk sundið úr því betur. Hafði
hann annars verið að hugsa um
að hætta.
Straumur bar
hann til baka.
Þegar nálgaðist Oddeyrina
jókst útfallið. Hvíldi Axel sig
þá á sundinu í 2 —3 mínútur,
lagðist hreyfingarlaus í vatnið
og á þeim stutta tíma rak hann
um hundrað metra til baka með
strauminum.
Þegar Axpl steig á land við
togarabryggjuna var þar saman
kominn talsverður mannfjöldi
sem fagnaði honum. Var klukk-
an þá um 8 f gærkvöldi. Axel
dvelst á Akureyri fram yfir
helgi og getur verið að hann
reyni önnur langsund í nágrenn
inu.
Bryndis
Sigurjóns-
dóttir lótin
Frú Bryndís Sigurjónsdóttir,
kona Magnúsar Blöndals Jóhanns-
sonar tónskálds, er látin. Hún var
þjóðkunn kona, þótt ung væri, þar
eð hún hafði með höndum stjórn
útvarpsþáttarins „Óskalög sjúk-
linga“ við miklar vinsældir.
Þessum þætti stjórnaði hún í
útvarpinu síðustu 5 — 6 árin, síðast
á laugardaginn var. Þá var hún
komin í sjúkrahús, en þó ekki
veikari en svo að hún talaði kynn-
ingarnar í þættinum inn á seglu-
band sem var flutt að rúmi henn-
ar. Það var og gert ráð fyrir því,
samkvæmt dagskrá útvarpsins, að
hún hefði óskalagaþáttinn núna
um helgina. Má af þessu ráða að
hér er um sviplegt fráfall að ræða.
Bryndís Sigurjónsdóttir var vel
menntuð og vinsæl kona og harm-
dauði öllum er hana þekktu. Þau
hjónin áttu tvo syni.
p. B _ 0 |. •' _ '
Næturtundir an sám-
komulags í vinnu-
deilunum
FUNDIR sáttasemjara með aðilum
í vinnudeilum sl. nótt stóðu til kl.
að ganga níu í morgun, án þess
að samkomulag næðlst. Ekki var
vitað, þegar blaðið fór í pressuna,
að nýir fundir hefðu verið boðað-
ir. i
Á fundi voru boðaðir í gær síð-
degis fulltrúar vinnuveitenda og
kjötiðnaðarmanna og gekk ekki
saman, aðilar í trésmiðadeilunni
og fulltrúar aðila í deilunni um
kaup og kjör yfirmanna á togurum
voru einnig boðaðir á fundi og
stóðu þelr til morguns. Fulltrúar
Vinnuveitendafélagsins og Sjó-
mannafélagsins ræddust við um
íþróttir —
Framh bls. 2
mikla kátínu áhorfenda og þeg-
ar blaðamenn reyndu að kom-
ast að því i búningsherbergjum
hverjir hefðu skorað mörk liðs-
ins, lokuðu hinir glaðværu
Skotar að sér og þvemeituðu
blaðamönnum um nokkrar upp-
lýsingar um hið dularfulla lið ;
sitt.
kröfurnar um 9% kauphækkun há-
seta og kyndara á millilandaskip-
um. Undirnefnd skipuð fulltrúum
beggja vinnur í málinu, svo sem
getið var í fréttum í gær.
k/WWWVWVWWWWV
Heildar -
bræðsla
norðaa -
lands
Síldarbræðslu i verksmiðjum áj
Norðurlandi nemur nú f heild *
541.500 málum. Ríkisverksmiðj-(
urnar á Siglufirði hafa brætt ]
280.858 mál, verksmiðjan áj
Húsavík 3700, Raufarhöfn <
131,992, Skagaströnd 30 þúsundj
og sílidarverksmiðjan Rauðka á |
Siglufirði 95 þúsund mál.
J.
SILFURTUNGLIÐ
★ Gömlu dansarnir í kvöld kl. 8.
★ Magnús Randrup og félagar sjá um fjörið.
'★ Dansað til kl. 1. — Ókeypis aðgangur.
Sími 19611.
GLAUMBÆR
Allir salir opnir í kvöld.
Elly syngur.
Dansað til kl. 1.
GLAUMBÆR
Peningalykt
Framh at bls 1.
allt í fullum gangi. Það var ham-
azt við að lesta Frey einum 1500
tunnum frá ísbirninum. Þeir bjugg
ust við að verða búnir að því um
þrjúleytið, og þá átti að leggja
af stað norður.
Geir var að renna sér upp að
bryggjunni, með 3050 mál (mun
minni togari en Freyr. Hann hafði
lagt af stað frá Seyðisfirði á mið-
nætti á fimmtudagskvöldið, og það
bar til tíðinda á leiðinni að öll
síldin sem skipað hafði verið á
dekkið, um 300 mál, ,,týndist“ á
leiðinni. Slæmt veður var í nótt,
og ekkert varð við ráðið. Síldin 'er
mikið kramin ,og nokkuð illa út-
leikin eftir þessa flutnihga. Aætl-
að er að uppskipunin úr Geir taki
um 5 tíma.
Bifreið ekið
beint ó
ijósastaur
í gær varð enn eitt bílslysið,
að þessu sinni í Fossvogi, rétt við
Fossvogskapelluna. — Ók bifreiðin
Y-534 á fullri ferð beint á ljósa-
staur við vegarbrún Reykjanesveg-
ar. Var höggið mikið og skemmd-
ist bifreiðin mikið. Við þetta fékk
ökumaðurinn mikið högg, en er þó ,
furðu lítið slasaður. Var hann flutt- i
ur á Landsspítalann og liggur þar I
nú
Sjónarvottar segja, að bifreiðinni I
hafi verið ekið greitt, en ekki neit.t.
sérstaklega hratt. Hins vegar virt-
ist aksturinn fremur óöruggur og
allt í einu sveigðist bifreiðin til
vinstri út af veginum og kom Ijósa
staurinn á bifreiðina miðja að fram
an. Höggið var sem fyrr segir mik
ið og færðist staurinn nokkuð fil
40 þús. múl
Framh. af bls. 16.
skipunum fyrir austan vegna
skarpra hitaskila í sjónum.
Hér fer á eftir upptalning á afla
64 skipa sem höfðu tilkynnt veiði
kl. 8 í morgun, samtals 40.400 mál
og tunnur:
Jón á Stapa 100, Einar Hálfdáns
100, Víðir II. 1300, Sæþór 1050,
Björn Jónsson 1000, Jón Finnsson
900, Ólafur Bekkur 800, Leifur Ei-
ríksson 1300, Gjafar 1400, Harald-
ur 1700, Keilir 600, Guðmundur á
Sveinseyri 600, Guðný 600, Ólafur
Magnússon EA 1300, Björgvin EA
40Ó, Valafell 700, Sæljón 300, Vík-
ingur II. 150, Helgi Flóventsson
1000, Gnýfari 400, Birkir 400, Eld-
borg 300, Gissur hvíti 450, Ásgeir
400, Sigurfari VE 400, Jón Odds-
son 550, Höfrungur II. 1450, Sig-
rún AK 400, Hrefna EA 500, Gunn
ólfur 500, Hyanney 750, Vilborg
400, Guðbjörg ÍS 350, Sigurður SI
250, Hagbarður 350, Jón Guð-
mundsson 750, Sæfari BA 700, Þór
katla 1000, Fagriklettur 1700,
Smári 700, Guðbjörg ÓF 850, Höfr-
ungur 500, Sigurður Bjarnason 700
Straumnes 550, Friðbert Guðm.ss.
250, Reykjaröst 400, Jónas Jónas-
son 800, Guðmundur Þórðarson
430, Hoffell 350, Hringsjá 800,
Hólmapes 400, Skipaskagi 450, Ás-
úlfur 600, Mímir IS 450, Sigurfari
AK 300, Helga Björg 350, Reykja-
röst 750, Kristbjörg 400, Fram GK
450, Ófeigur II. 700, Faxaborg 650
Garðar 550, Víðir SU 750, Dofri
600.
^ Boruguiba segir deiluna um
Bizerta leysta með samkomulagi
við Frakka. Þeir fara þaðan að
fullu og öliu 1964.
Alvarlegt s!ys á SigEufirði
í GÆR varð alvarlegt umferðar-
slys á mótum Eyrargötu og Grund-
argötu í Siglufjarðarkaupstað. 15
ára drengur frá Siglufirði Hörður
Sigþórsson varð fyrir fólksbifreið-
inni F 227 og þeyttist yfir hana og
meðvitundarlaus í 'sjúkrahús á j rakst á bílinn framanverðan. ( Var
staðnum og i nótt var send sjúkra-1 áreksturinn svo harður að dreng-
flugvél til Sigiufjarðar, sem átti; urinn tókst á loft og kom niður
að flytja hann til aðgerðar í
Reykjavík eða á Akureyri. Hörður
var á reiðhjóli með hjálparvél og'
hinum megin við bílinn, sem fyrr
segir.
Cerðardómur ...
Framh. af bls. 16.
þeirra og kom þar greinilega í Ijós,
hve afli skipanna varð miklu meiri
með nýju tækjunum.
Þrátt fyrir þessa lækkun á
skiptaprósetnunni verða tekjur sjó-
manna á síld rhjög miklar í sumar,
þar sem sjá má þegar að síldarver-
tíðin verður ein sú bezta sem hér
hefur komið. Verða tekjur þeirra
meiri en flestra annarra stétta,
enda hefur það sést af hinni geysi-
miklu aðsókn eftir að komast í
pláss á síldveiðibát um sérstaklega
ef þeir eru búnir hinum nýju
tækjum. •
Tveir fulltrúar í gerðardómi
skiluðu sératkvæði, þeir Jón Sig-
urðsson og Jón Þorsteinsson. Vildi
Uón Sigurðsson að skiptahluturinn
yrði óbreyttur eða 39 — 40,5%, en
Jón Þorsteinsson vildi að hann
yrði 35,5 — 37,5%, en eftir að veiði
hefði náð 700 þús. kr. verðmæti á
skip allt að 119 tonn og milljón
krónur á stærri skip yrði hann sem
fyrr 39,5-40,5%.