Vísir - 27.07.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 27.07.1962, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 27. júli 1962. dæmdur Sach von Opel auðugur þýzkur iðjuhöldur var nýlega handtek inn af frönsku Iögreglunni á Rivierunni. Hann ók með Sorayu fyrrum Persadrottningu á 200 km. hraða eftir mjóum strandvegi. Hann var dæmdur til að greiða 10 þús. krónur í sekt. Var tekið tillit til fjárhags hans í dóminum. París fékk póstberinn Con- stanine Mustorque að breyta samkvæmt eigin ósk um póst burðarhverfi í sjöunda sinn, þar sem hann hafði ekki frið fyrir ástleitni húsfreyjanna í hverfinu. stytti stúlkuna Ingrid Westmann heitir tvítug sænsk stúlka. Hún leið önn fyr ir það hve há hún var vexti eða 187 sentímetrar. Hafði hún far- ið til margra sálfræðinga til að fá lækningu við komplexum voru til skamms tlma álitin ham ingjusömustu hjón 1 Hollywood. Janet grét þegar dómstóll I, Santa Monica kvað upp skiln- aðardóminn. Ástæðan fyrir hjónaskilnaðinum er ótryggð Tonys, sem var orðinn ástfang- inn í ungri leikkonu að nafni Christine Kauffmann bláfátækra innflytjenda frá Suður Ítalíu. aðstoðar t Alcante, borg á Spáni, vann zigauni einn happdrættis- vinning. Hann leigði sér íbúð á 4. hæð í f jölbýlishúsi og lét bezta vin sinn hafa eitt her- bergið, — asna, sem hann gat ekki hugsað sér að skilja við sig. John Eisenhower sonur fyrrver andi forseta bandarlkjanna er ofursti I bandaríska hernum Hann hefur fengið sex mánaða orlof og ætlar að nota það til að hjálpa föður sínum að skrifa endurminningar sínar. Illilíj ilíli! í Bandaríkjunutr, er nýjasta tízkufyrirbrigðið baðföt úr leðri fyrir karlmenn. VÍSIR -o- Frank Sinatra kvikmyndaleik- arinn og dægurlagasöngvarinn frægi varð að taka fram ávísna- hjéfti sitt og skrifa háa ávísun sem skaðabætur til gistihússins sem hann bjó á I Mónakó. Hgnn hafði reiðzt ásælni þjónustu- fólksins á hótelinu og tekið upp stói I herberginu og kastað honum I vegginn svo hann möl brotnaði. En stóllinn var dýr-' mæt mubla frá dögum Lúðvíks 16. j grín -V' Montgomery marskálkur birti nýlega I ensku blöðunum áskor un til listaverkaþjófanna sem stálu málverki af Welling- ton hertoga, þar sem hann skor ar á þá að skila þessu dýrmæta málverki, sem metið er á tug milljónir króna. „Grlnið hefur staðið nógu lengi, sagði Mont gomery, ég vona að þeir skili málverkinu, af þessum manni sem var frábær hershöfðingi og gerði Iandi sínu ómetanlegt gagn“. bar Anthony Eden réðst á dögun- um harkalega á Macmillan for sætisráðherra fyrir að reka Selwyn Lloyd úr embætti fjár- málaráðherra. Um sömu mund- ir keypti Eden, sem nú heitir raunar Avon lávarður afgreiðslu borð úr veitingahúsi frá 18. öld. Það kostaði 45 þúsund kr. og ætlar Eden að nota það sem bar I kjallaranum heima hjá sér. HIISli sem nun naroi ar pessu. ia>ks a- kvað hún að fara til skurðlækn- is og sjá hvað hann gæti gert. Varð það úr að læknirinn stytti báða lærleggi hennar um 5 cm. og líður Ingrid nú miklu betur en áður. skilin Janet Leigh kvikmyndaleikkona hefur nú fengið endanlegan skilnað frá Tony Curtis, en þau tízkugreiðsla Margrét prinsessa, greifaynja af Snowdon sat nýlega rlkisveizlu sem haldin var I London til heiðurs Tubman forseta Líber- íu. Við það tækifæri setti hún upp hárgreiðslu, þá og kórónu sem sézt á myndinni. datt en sigraði Filippus hertogi af '•'MiKbbfg þykir mjög gaman að þvl að leika Polo, en svo kallast knatt leikur af hestbaki. Skipa leik- menn sér I lið á hestum líkt og I knattspyrnu og slá knöttinn á ferð með löngum kylfum. Ný- lega var Filippus fyrirliði enska polo-liðsins I landskeppni gegn Frökkum. Varð hann þá fyrir því óhapi að detta af baki og meiða sig. Hann sat I fjórar mínútur flötum beinum á vell- inum meðan hann var að jafna sig, en setti síðan hörku I sig, stökk upp á hestinn og leiddi enska liðið til sigurs, 9 mörk gegn 6. ráðherra Athony Celebrezze heitir nýj- asti ráðherrann I stjórn Kenne- dys í Bandaríkjunum. Hann tek ur við heilbrigðis- og mennta- málaráðuneytinu af Ribicoff, sem nýlega sagði af sér. Cele- brezze hefur undanfarin 10 ár verið borgarstjóri I Celveland. Hann er fyrsti maðurinn af ít- ölskum ættum, sem fær sæti I stjóm Bandaríkjanna. Cele- brezze er 52 ára. Hann er sonur sér út 73 bús. kr. Fyrir nokkru var maður einn hér í borg, Þórhallur Þorvaldsson, Kirkjuteig 29 dæmdur I 10 mán- aða fangelsi og enn fremur til greiðslu á 55 þúsund krónum í skaðabætur vegna víxla og tékka- fölsunar. í málinu fyrir sakadómi upplýst ist að hann hafði gerzt sekur um fölsun 13 víxla og tékka, samtals að fjárhæð 25968,000 kr og út- gáfu 8 innstæðulausra tékka að fjárhæð 29 þús. kr. Enn fremur hafði hann á þessu ári framið þjófnaði þrisvar sinnum og stolið þá samtals 17,700.00 kr. og loks hafði hann framið ökugjaldssvik að upphæð 180 krónur. Með brot- um þessum aflaði hann sér 73 þús. kr. sem hann eyddi að miklu leyti I áfengiskaup í veitingahúsum borgarinnar. Ben Kheddo: Borgarastyrjöld Ben Khedda segir hættuna af borgarastyrjöld nálæga. Hann er nú einn ráðherra eft- ir I Algeirsborg, þar sem eru hersveitir hollar honum og 1200 manna lið, sem er hollt honum, er á leið til Constantine, þar sem lið Ben Bella reynir að ná völdunum. Mestur hluti Alsír er á hans valdi. Franska stjórnin hefur fyrir- skipað, að franskar hersveitir í Alsír skuli vera viðbúnar öliu. Frakkar hafa þar um 200.000 manna lið. Þá hefur franska stjórnin boð að, að hún muni senda aukið lið Aisír, ef öryggi franskra borg- ara verði teflt í frekari hættu. Föstudagsgreinin Framh. af 7. siðu. \ . þingið. Þar hafa sameipazt gegn honum nær allir republikanar á þingi og stór hópur demo- krata, flokksmanna hans, eink- um þeir sem íhaldssamastir eru og ekki hrifnir af neinum breyt ingum. Læknafrumvarp fellt. Það var mesti ósigur Kenne- dys á þingi fram að þessu þeg- ar öldungadeild Bandaríkja- þings felldi I síðustu viku með 52 atkv. gegn 48 frumvarp hans um læknishjálp fyrir aldrað fólk Þar snerist hvorki meira né minna en 21 demokrati gegn forsetanum. Allur þessi mikii andbyr hef- ur fengið töluvert á Kennedy og hefur mótþróinn stundum orð- ið svo mikill, að stjórn Iíenne- dys hefur orðið veikari og farið er að tala um það, að þessi ungi maður sem virtist svo vænlegur forseti ætli að missa stjórnina út úr höndum sér. Aðstaða hans er líka erfið fyrir það, að nú nálgast óðum þingkosningar I haust, þegar endurkjósa á um þriðjung öld- ungadeildarþingmanna og hluta fulltrúa I fulltrúadeildina. Er jafnvel talið hugsanlegt vegna þessara erfiðleika, að flokkur Kennedys missi þingmeirihlut- ann. Þó munu úrslitin I atkvæða- greiðslunni um læknishjálp fyr- ir aldraða ekki verða til að rýra fylgi Kennedys Þegar honum barst fréttin um að læknafrum- varpið hefði verið fellt, sagði hann: — Þjóðin mun greiða at- kvæði um það I nóvember hvort hún vill læknafrumvarpið eða ekki. Ég bíð rólegur eftir úr- skurði hennar. Hótað stjórnarslitum. Adenauer forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands hafði mikla ánægju af heimsókninni til Frakklands sem ég lýsti I einum þessara vikulegu þátta fyrir nokkru. En þegar hann kom heim til Bonn mættu honum erfiðleikar og sagði hann þá við einn sam starfsmanna sinna: — Ég held ég hefði átt að vera eftir í París. Þar leið mér vel innan um hóp franskra vina. En þegar ég kem svo heim til Bonn er engu lík- ara en það séu tómir fjand- menn I kringum mig. Það sem Adenauer átti' við var að ríkisstjórn hans var hætta búin vegna þess að sam- starfsflokkarnir Frjálsir demó- kratar hótuðu stjórnarslitum. Erich Mende foringi Frjálsra demokrata notaði til þess litla átyliu, en raunverulega ástæðan var sú, að hinn litli flokkur Frjálsra demókrata telur sig tapa á stjórnarsamstarfinu við Kristilega lýðræðisflokk Aden- auers. Kom það berlega I ljós í héraðsstjórnar kosningum, sem fram fóru I Rínarhéruðum. I þingkosningum s.l. haust juku Frjálsir demókratar mjög fylgi sitt og náðu um 12% at- kvæða, og úrslitavaldi I þjóð- þinginu. En I héraðsstjórnar- kosningunum á dögunum hafði atkvæðamagn þeirra hrapað aft ur niður I 6,9%. Er Erich Mende foringi nú almennt kall- aður maðurinn sem' jók fylgið um milljón atkvæði en tapaði aftur milljón atkvæðum. Að vísu getur Adenauer verið ánægður með það að atkvæðin eru að koma aftur tii fiokks hans. Hins vegar þýðir það um leið, að stjórnarsamstarfið er ó- tryggt og getur nú farið svo hvenær sem árekstrar verða, að það rofni. I Þorsteinn Thorarensen

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.