Vísir - 04.08.1962, Qupperneq 2
2
VÍSIR
Föstudagur 3. ágúst 1962.
yrenn
or
íitew
HHihiU
u/rtav
i yátw mnmm mm 5i|íl Lfk- 3LW$- íilat axi Hlvt- dfUM 9BUUSXBKBK& ÍJ Í>Y] WHIWÍKíi'-WJí; stif Vf Jkóli aKrra''"45.'"‘-'Lv.s <f:!R Ug%h '.annaajaciiKKW Kffrb .. . r f L IS &%■ w~ in>? MiKtj. - r. ~ r ,rr m 0W SútíJ / Vl
T .ar áeíltnr ■- Sætz Zews
ir t yeit- Vatnt- ^»•11 . ÍVNPA- KvtTron —
skiptt - or . Bftk- KÍfÍM ■
Holti irtót- i/vhm ■ - 'hknb SokU ítrip- rHvrMin mni •
"4V Í*LY\Í t pre ng Wjók ?■
f- MyMt- itiæl L’rk- í. r*f- Af.
bH 1 bsi : Á Suj&J % íeik- Hf&r
m *— dtjibf 1 •
víkur. Heldur Vinnuveitendasam- fyrir hönd Trásmiðafélags Revkja-
bandið því fram að verkfallið sé J fara fram munnlegur málflutaing-
ólöglegt. Fékk stefndi frest til ur og síðan verður kveðinn upp
þriðjudags, til að leggja fram I dómur. Ekki er enn vitað hvenær
greinagerð um málið. Mun síðan I vænta má dóms í málinu. ,
Brnnda komín heim
Smygl —
Framh. af 7. síðu.
Áfengi og tóbak eru hinar
klassisku smyglvörur. Einnig
var miklu smyglað af barna- og
kvenfatnaði.
— Segðu mér, Unnsteinn, hve
margir menn vinna við tollgæzl-
una?
— Við erum 47 í Reykjavík
og eru það alltof fáir menn. Ár-
ið 1957 var bætt við allmörgum
mönnum, og batnaði þá aðstað-
an nokkuð. En á síðari árum
hefur starfssviðið færzt svo út,
flugferðir aukast með hverjum
mánuðinum, og höfnin stækkar.
Hefur fjölgunin hjá okkur alls
ekki verið f samræmi við stækk
un starfsviðsins.
Hins vegar má svo segja, að
það verði aldrei komið f veg
fyrir eitthvert smygl, hversu
margir menn sem væru við toll-
gæzlu. Það þyrfti að víggirða
landið til þess.
Nú er sagt að miklu sé smygl
að með bátum sem koma- að
utan, nýsmíðaðir eða úr ein-
hvers konar siglingum? Hafið
þið einnig eftirlit með þeim?
— Við fáum tilkynningar um
hvar þessi skip koma að landi
og við verðum að treysta því að
þær upplýsingar séu réttar. Ot-
gerðarmenn og skipafélög eru
mun varkárari í þessurn málum
í seinni tíð, og hefur það mjög
mikið að segja.
Fresmiiir —
Framb at ols l
lega enn sem komið er, en fer að
verða mjög bagalegt ef það dregst.
Onnur vinna heldur þar áfram.
— ★ —
Helztu byggingar ríkisins eru
Kennaraskólinn og Landsspítalinn.
Hafa staðið yfir sumarfrí á báðum
stöðum að undanförnu og ekkert
unnið við byggingarnar af þeim
sökum. Hvorug hefur því tafizt
enn, en ætlunin er að hefja vinpu
á þriðjudag við Landsspítalann.
— -k —
Trésmíðavinna hefur pá einnig
lagzt niður við byggingar borgar-
innar í Álftamýri, en þar eru í
byggingu 128 íbúðir.
Ef vinna hefst að nýju fljótlega
er ætluilin að 64 þeirra verði til-
búnar í október. Vinnustöðvunin
hefur þó meiri áhrif á þær 64 sem
verið er að steypa upp.
í fyrradag var lögfest í félags-
dómi mál Vinnuveitendasambands-
ins, fyrir hönd Meistarafélags tré-
smiða, gegn Alþýðusambandinu,
{ gærkvöldi gerðust þau gelði-
legu tíðindi á Slökkvistöðinni, að
kötturinn Branda kom í leitirnar
eftir að hafa verið týndur í fjóra
sólarhringa.
Það var kona vestur á Framnes-
vegi sem hringdi á Slökkvistöðina
og tilkynnti að þar væri óskila
köttur.
— Er hann ekki skaddaður á
eyrum? spurði brunavörðurinn,
sem svarað hafði í símann.
— Ég skal gá að því sagði kon-
an, hvarf úr símanum og kom aftur
og sagði: — Jú, það stendur
heima.
Fór nú mikil fagnaðaralda um
alla Slökkvistöðina og var sjúkra-
bíll sendur í skyndi til að sækja
Bröndu, þó sírenurnar hafi kannski
ekki gengið með fullum krafti.
Og nú er Branda komin aftur
heim til sín. Eyrun á henni eru
sködduð eftir brunann, sem henni
var bjargað úr á dögunum. Það
munu hafa verið strákar á ferð
niður við Tjörnina, sem tóku hana.
Hafa þeir ágirnzt hana fyrir það
hve falleg, hrein og strokin hún
var.