Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Page 13

Tölvumál - 01.12.1991, Page 13
Desember 1991 EDI or DIE Ágúst Ú. Sigurðsson, ritstjóri 7. nóvember sl. hélt EDI-fél- agið á íslandi ráðstefnu þar sem viðhorf ýmissa framámanna í EDI-væðingu voru kynnt. Rasðumenn komu frá Noregi, Danmörku og Stórabretlandi auk íslands. Viðhorfin sem fram komu til EDI voru mjög á einn veg, enda er óvíst að yfirlýstum efasemdamönnum hafi verið boðið til pontu. Fyrirlesurum bar saman um að nú væri þróun EDI komin á það stig að ekki þurfi lengur að glfma við "Catch 22" mótsögnina, EDI-snjóboltinn sé farinn að velta af sjálfsdáðum. Fyrirsögn þessarar frásagnar er einmitt fengin frá einum fyrirlesaranna og lýsir skoðun hans um framtíð EDI. Nýlega hófu fyrirtækin Sól og Bónus samskipti með EDI- skeytum sín á milli. Fulltrúar beggja þessara fýrirtækja stigu í pontu og mátti skilja af ræðu þeirra að skammt sé nú þess að bíða að þau muni hafna heild- söluviðskiptum við þá aðila sem ekki nota EDI samskipti við vörupantanir. Sumir fýrirlesaranna vitnuðu til 20/80-reglunnar, sem segir að EDI sé einungis að 20 hundraðs- hlutum tæknimál, en afgangurinn séstjórnunarlegseðlis. Eftirlok ráðstefnunnar var opnuð sýning þar sem ýmsir aðilar sýndu búnað til EDI samskipta. Friðrik Sóphusson, Qármálaráðherra sendi þar "fyrstu EDI toll- skýrsluna" með viðhöfn. UNB+UNOA:2+2303483839+6501881019+911024:1555+00000337++CUSDEC UNH+15+CUSDEC:2:912:UN:1591++1 BGM+929+F61506111LULUX0001+++ABQ:005421 RFF+AWB:10712345020 RFF+ABA:1 RFF+PQ:005421 RFF+Zl:1 RFF+IV:030451 LOC+40:NL::5 LOC+18::::FLUGFRAKT GIS+ET:109:159 NAD+IM+2303483839::159 RFF+VA:00462 TOD+++FOB+7::::AMSTERDAM MEA+AAE+G+KGM:8 2 5 MOA+5+63:57142:DDM MOA+5+144:89532:ISK MOA+5+81:2455:ISK MOA+5+70:1000:ISK MOA+5+39:57142:DDM UNS+D CST+001+84719100:122:159 LOC+27:FR::5 MOA+5+63:57142 MEA+AAE+AAL+KGM:8 2 5 MEA+CT++NMB:1 TAX+1++::159+A GDS+2 FTX+AAA+++SEGULDISKUR UNS+S UNT+30+15 UNZ+1+00000337 Þetta er EDI-skeytið sem fjármálaráðherra sendiá EDI-sýningunni 13 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.